Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Vefstjóri KK on March 21, 2005, 19:29:49
-
Jæja stjórnin hefur tekið ákvörðun um þá flokka sem verða keyrðir í sumar. Hér koma þeir.
OF-flokkur
9.90-flokkur
10.90-flokkur
11.90-flokkur
12.90-flokkur
13.90-flokkur
14.90-flokkur
Mótorhjólaflokkar óbreyttir.
Látið nú gamminn geysa og lýsið ánægju ykkar (nú eða óánægju, þið sem eruð óstöðvandi nöldurseggir).
Við erum alveg sannfærðir um að þetta leysir ótal vandamál í sambandi við flokkaskoðanir og menn sem ekki þora að kæra hinn, heldur röfla bara í vini sína (fullir eða ófullir).
Kv. Nóni
-
Hisssa!
Það er ekki farið eftir vilja þeirra sem ætluðu sér að keppa í sumar.
Þið hafið greinilega tekið upp það sem Ingólfur hefur alla tíð verið að reyna koma á. Loksins hefur það tekist og óska ég honum og þessari stjórn góðs gengis með þessa nýju flokka.
Að mínu mati, miðað við þetta, er það eina sem getur bjargað Kvartmílu á Íslandi OF-flokkur. Því það er eini flokkurinn af þessum sem er kappakstur aðra flokka tel ég vera ökuleikni. þ.e.a.s. að hitta á fyrirfram ákveðinn tíma. Auðvita munu menn velja þann flokk sem ökutæki þeirra nær auðveldlega og passa sig síðan á því að fara ekki undir tímann. Góða skemmtun!
Gretar Franksson
-
alveg sáttur en mætti hafa 15.9 flokk líka ;) :lol:
finnst 14.9 halda litlu bílunum frá :) , miklu skemmtilegra að vera á slowrider með undir 160 hö ;)
mætti eflaust gera meira grein frá hverjar öryggisreglurnar eru nákvæmilega í þessum sec flokkum
Svo gilda að sjáfsögðu allar öryggisreglur eins og alltaf.
Finnst þær ekki vera nógu skýrar yfirheild/almennt ,
þær eru allar inní hinum og þessum flokkunum.
-
Hisssa!
Það er ekki farið eftir vilja þeirra sem ætluðu sér að keppa í sumar.
Þið hafið greinilega tekið upp það sem Ingólfur hefur alla tíð verið að reyna koma á. Loksins hefur það tekist og óska ég honum og þessari stjórn góðs gengis með þessa nýju flokka.
Að mínu mati, miðað við þetta, er það eina sem getur bjargað Kvartmílu á Íslandi OF-flokkur. Því það er eini flokkurinn af þessum sem er kappakstur aðra flokka tel ég vera ökuleikni. þ.e.a.s. að hitta á fyrirfram ákveðinn tíma. Auðvita munu menn velja þann flokk sem ökutæki þeirra nær auðveldlega og passa sig síðan á því að fara ekki undir tímann. Góða skemmtun!
Gretar Franksson
Sæll Grétar, um hvaða flokk baðst þú? Þú ætlar að keppa er það ekki? Ég vona það. Ef ekki þá ertu bara velkominn í keppnistækjaskoðun á keppnisdögum því að það er virkilegur skortur á svoleiðis fólki.
Ég er ekki hissa á að fá þessa athugasemd frá þér nema að einu leiti, því að ég hélt að þú myndir ekki skilja eftir þig þessi ummæli um Ingólf og okkur félaga hans í stjórninni. Ég held að aðalfundur mundi dæma störf stjórnarinnar þegar þar að kemur, ekki kom neitt framboð til formanns á síðasta aðalfundi þrátt fyrir óskir þar um. Ég held líka að menn vinni af heilindum í þessu annars vanþakkláta starfi og vilji klúbbnum bara það besta og að geta staðið upp úr þessu starfi með stolti, kannski með viðurkenningu annarra í farteskinu.
Vona ég nú að þeir sem allt finna þessu til foráttu gefi þessu tækifæri og reyni að vinna klúbbnum vel með jákvæðni og bjartsýni.
Það er í gangi ákveðin vinna á vegum stjórnarinnar um fyrirkomulag keppnishalds í framtíðinni og eru flokkareglur þar með taldar. Þessi ákvörðun er hluti af því.
Virðingarfyllst, Nóni
-
Hisssa!
Það er ekki farið eftir vilja þeirra sem ætluðu sér að keppa í sumar.
Þið hafið greinilega tekið upp það sem Ingólfur hefur alla tíð verið að reyna koma á. Loksins hefur það tekist og óska ég honum og þessari stjórn góðs gengis með þessa nýju flokka.
Að mínu mati, miðað við þetta, er það eina sem getur bjargað Kvartmílu á Íslandi OF-flokkur. Því það er eini flokkurinn af þessum sem er kappakstur aðra flokka tel ég vera ökuleikni. þ.e.a.s. að hitta á fyrirfram ákveðinn tíma. Auðvita munu menn velja þann flokk sem ökutæki þeirra nær auðveldlega og passa sig síðan á því að fara ekki undir tímann. Góða skemmtun!
Gretar Franksson
Þáttaka í OF flokki var mjög lítil bæði í fyrra og hitteðfyrra, og hvernig á þá sá flokkur að bjarga þáttökufjölda í kvartmílu á Íslandi, þú hefur sjálfur verið lítið sem ekkert með s.l. 2 ár, sem er akkurat sá vandi sem er verið að reyna að leysa þ.e. að auka þáttöku. En annars get ég ekki séð hvers vegna þú ert að setja út á þetta, OF flokkurinn er hér áfram inni. Svo má deila um hvað er aksturleikni og hvað ekki. Til dæmis sé ég ekki hvernig er spennandi kvartmíla að 9 sek. bílar séu að keppa við 7 sek. grindur. Góða skemmtun.
Hins vegar vil ég benda á að ef svo fer að allir hugsa svona eins og þú heldur fram með föstu index flokkana, þá virkar það bara þegar einn keppandi í flokk gerir þetta, en þegar það eru orðnir 2-6 bremsukarlar í flokknum verður það bara gaman og spennandi.
Það er verið að keyra allstaðar erlendis þessa index flokka, og gefst bara vel.
Þórður Ingvarsson
-
Ég veit allt,
ég get allt,
geri allt miklu betur en fúll á móti.
Ég kann allt,
ég skil allt,
fíla allt miklu betur en fúll á móti.
Smíða skútu skerpi skauta
bý til þrumu osta og grauta.
Haltu kjafti.
Ég sé allt,
ég man allt,
Brugga miklu betur heldur en fúll á móti.
Ég finn allt,
ég er allt,
hef miklu hærri tekjur heldur en fúll á móti.
Ég er kroppur,
ég er fróður,
fallegri í framan heldur en fúll á móti.
Ég er góður,
aldrei óður,
ekki fitukeppur eins og slappi fúll á móti
Smíða skútu skerpi skauta
bý til þrumu osta og grauta.
Haltu kjafti.
hættið að þrasa,hittumst á brautinni reynum að fara hraðar en síðast og hittumst svo á pallinum í góðu grilli og einum (eða tveim) öl og eigum góða stund.
(http://forums.godragracing.com/images/smiles/all_coholic.gif)
-
Hafði stjórnin ekki næga trú á eigin hugmyndum að hún treysti sér ekki til þess að setja hana fram á aðalfundi til almennrar kostningar eins og lög félagsins gera ráð fyrir?
Eða er stjórnin enn og aftur að gefa út þá yfrlýsingu að hinn almenni félagsmaður þessa félags sé bæði hálviti og asni?
Svaraðir þú mér ekki Ingólfur hér á spjallinu fyrir stuttu að engar breytingar væru í vændum og þú skildir ekki hvað við værum að óttast,
aðeins væri um léttar umræður að ræða.
Agnar H Arnarson
-
Eflaust ef menn koma saman og skrá sig í einhvern flokk sem á ekki að vera keyrður þá væri mjög líklegt að menn fá þá að keyra í þeim flokki ef þeir koma nógu margir saman??
Er það ekki rétt hjá mér og ef það er rétt þá ættu menn að fara á milli skúra og hjálpa hvor öðrum að gera tæki til eða lána mönnum pening til að skrá sig sem meðlim 2005 og/eða lána mönnum fyrir keppnis útgjöldum og drulla sér að mæta í keppnir.
allanvega ætla ég að bíða spenntur að menn koma uppí klúbb á næstu fimmtudögum til að skrá sig sem meðlim 2005 og ef enginn kemur að skrá sig þá héld ég áfram að horfa á sjónvarpið og bora í nebba ;)
Það veltur á ykkur hvort ég fæ einhverja hreyfingu fyrir keppnirnar eða hvort spikið er enn á sínum stað.. hjálpið mér að komast í form fyrir keppnirnar 8)
-
Hafði stjórnin ekki næga trú á eigin hugmyndum að hún treysti sér ekki til þess að setja hana fram á aðalfundi til almennrar kostningar eins og lög félagsins gera ráð fyrir?
Eða er stjórnin enn og aftur að gefa út þá yfrlýsingu að hinn almenni félagsmaður þessa félags sé bæði hálviti og asni?
Svaraðir þú mér ekki Ingólfur hér á spjallinu fyrir stuttu að engar breytingar væru í vændum og þú skildir ekki hvað við værum að óttast,
aðeins væri um léttar umræður að ræða.
Agnar H Arnarson
Agnar, þú ert kannski til í að vanda orðavalið. Ég man ekki eftir því að stjórnarmeðlimir hafi gefið út þessa yfirlýsingu og er ég þó ritari í stjórninni (núverandi). Vinsamlegast lestu það sem ég skrifaði áður og reyndu svo að fara að hugsa um hvað klúbbnum er fyrir bestu og grafðu stríðsöxina, hér er enginn í stríði nema þú sjálfur.
Við erum að vinna vinnuna sem þarf að vinna, komdu með tækið þitt á brautina í sumar og þá verða allir sáttir.
Kv. Nóni
-
Tja hérna það nýasta á klakanum sekúnduflokkar.
Mér skildist á sinum tíma að þetta væri síðasta árið fyrir gömlu flokkana
ef þáttaka væri ekki nóg, en skoðanakönnun í vetur gaf 5 stk. í S/E
Afhverju eru gömlu flokkarnir ekki keyrðir.
Vel má vera að þessir nýju flokkar reynist vel erlendis,en þeir koma ekki
hingað að glápa á okkur.
Hvaða ÖFL eru hér að verki.
Ef engin kappakstur er í gangi eða engin rigur þá mættir engin.AMEN
kv.Gisli Sveinss
-
Fari þetta bara í r***gat... heimska helv***s sekúndu bull... so be it... heng frekar heima og horfi á Formúluna... með öðru auganu.. að lesa leiðinlega bók.
-
Ég vona að það verði góð þátttaka í ökuleikni í sumar. Allt í einu er það bara ekkert mál að keppa í "kvartmíluökuleikni" !!! Það ætti þá ekki að fæla keppendur eða þátttakendur frá eða hvað.
Auðvitað hvað segi ég nú bara. Þeir sem keyra alvöru kappakstur ættu ekki að vera í vandræðum með að fara heim með dollurnar eða hvað. Alvöru menn á alvöru kappakstursbílum taka að sjálfsögðu þátt í OF og sekunduflokkum líka og sýna okkur hinum hvernig á að gera þetta svo við skiptum um skoðun og tökum aldrei þátt í þessu rugli aftur...
stigurh
-
Hæ.
Það er náttúrlega hið mesta böl fyrir framgang Kvartmílu á íslandi, ef EKM. ætlar að vera heima......... (kannski einsgott, hann er svo orðljótur. Það eru börn og viðkvæmt fólk á keppnum)
En "SURPRÆS"..... 'Eg skildi þetta allann tímann sem svo að allir flokkar væru opnir og KEPPENDUR fengju að velja í hvaða flokk þeir vildu fara. (þið munið,,,, "lýðræðiskjaftæðið")
Og þannig veldu menn sjálfir hvaða flokkar "lifðu" og hverjir féllu niður.
Og ég spyr nú líka, eiga þeir sem ekki eru með turbo saab, (bara venjulegann) ekki að fá að vera með eða telst spennandi að keppa í 14.90 á 16.90 bíl????
Er ekki rétt að hafa venjulegt Bracket fyrir þá sem það vilja ef bara eru þessir skylduflokkar (sem áður eru taldir ) svona fyrir þá sem vilja "STANDANN". Og vilja þá frekar laga indexið en að laga bílinn til að vera samkeppnisfær.
Og svo meira spurt,; Eru ekki þessir ??.90 flokkar allir keyrðir á "Pro tree".? Og verðum við þá með "prótrí" líka ??
Með von um að hvað sem verður, sé klúbbnum til bóta.,
-
16.90?? eru einhverjir unglingar á skellinöðrum í dag?
Ég hélt að allir unglingar í dag hengju bara yfir tölvuleikjum.
Á ekki að selja inn á þessar kvartmílugóðaksturskeppnir?
Og Nóni minn ég er í engu stríði eina sem ég er á móti eru þessar Adolfs ákvarðanir gegn lýðræðislegum lögum félagsins.
Og Nóni maður þarf stundum ekki að segja hlutina með orðum heldur í verki.
En þau hafa verið sögð samanber hér "en ég var allavega á þessum fundi og man eftir hvað menn voru heitir út í einhverja gapuxa sem ekkert höfðu um málið að segja."
Kv.
Aggi
-
Mér þætti allavega eðlilegt að keyra þessa flokka á pro tree til þess að gera þetta erfiðara.
-
Iss þetta er ekki gott.K.v Árni Már Kjartansson
-
Hæ.
Hvað meinarðu, ekki gott.???
Þetta er albest, nú þegar maður tapar, er það ekki mér að kenna, eða flokknum, heldur stjórn klúbbsins......... múhahahaha.
Alveg alfínt..
PS, Ef menn segja "ekki gott" er gott að koma með.: Af hverju.
.: Og hvað er til bóta.
-
Mér bara líst ekki nógu vel á þetta þó getur vel verið að þetta sé allt í lagi.Án þess að hafa prófað svona þá finnst mér þetta mun sniðugra en venjulegt Bracket(hef prófað það).Var ekki bara í lagi að keyra þá flokka sem voru í boði sem sé gömlu flokkana.En það er ekki ég sem ræð og svo.Kv Árni már Kjartansson (Gamaldags)
-
Þetta er nú ekkert stórmál strákar ef okkur langar,fjórum eða fleiri, að keyra SE eða eitthvað þá bara skráum við okkur í þann flokk.......ekki senda þeir okkur heim "sorry ætlum ekki að keyra þetta".
-
Stjórn,
Nóni þú segist halda að menn vinni í þessu af heilindum. Ég spyr því geri þá ekki eins og flestir keppendur vilja? Það er mestur vilji að keppa í MC,SE, einnig GF...... að ónefndum OF sem þið megið nú eiga að þið hélduð inni.
Menn vinna af heilindum fyrir KK ef þið farið eftir því sem flestir keppendur viljum helst. Í stað þess að níða þessa sekunduflokka inn. Í hreinskilni sagt þá eru menn ekki sáttir við svona vinnubrögð. Ég minni á að það var gerð skoðanakönnun þar sem þetta kemur fram.
Þetta er sett hér fram sem sanngjarna og málefnalega umræðu á líðandi stund. Við viljum ekki endilega dæma stjórnina löngu seinna á Aðalfundi.
Gretar Franksson
-
Vá aftur regluþras, ég treysti núverandi stjórn fullkomnlega fyrir þessu, mér þykir þetta hin fínasta ákvörðun, auðveldar skoðun á keppnistækjum, þú keppir við jafna bíla og hvað með það þótt að það séu einhverjir "bremsukallar", þeir þurfa a.m.k. að vera ansi færir í því til að fara ekki undir tíma. Legg til að Delay Box, throttle stop yrðu bönnuð. Punktur og pasta :x
-
Hæ Kiddi það er bannað að nota allan hjálpar búnað.K.v Árni
-
Stjórn,
Nóni þú segist halda að menn vinni í þessu af heilindum. Ég spyr því geri þá ekki eins og flestir keppendur vilja? Það er mestur vilji að keppa í MC,SE, einnig GF...... að ónefndum OF sem þið megið nú eiga að þið hélduð inni.
safnið þá saman þessum SE , MC og GF mönnum fyrir hverja keppni og skráið ykkur í þessa flokka ykkar og ÞAÐ LIGGUR ALLT HJÁ YKKUR að þessir menn ykkar mæta!!!
Þið vitið eflaust ekki að þið veikið þessa stöðu ykkar til að fá að keppa.. kvartmílan deyr bara út ef menn mæta ekkert og hvað ætla menn þá að gera suða í BA mönnum um að smíða braut? , það á að manna bílana af fjölskyldunni og Safnið saman öllum skúrameisturum seinustu ára og koma eigin tæki uppá brautina.
-
Ok, glæsilegt, þ.e. með bann á hjálpartækjum :o
-
Stjórn,
Nóni þú segist halda að menn vinni í þessu af heilindum. Ég spyr því geri þá ekki eins og flestir keppendur vilja? Það er mestur vilji að keppa í MC,SE, einnig GF...... að ónefndum OF sem þið megið nú eiga að þið hélduð inni.
Menn vinna af heilindum fyrir KK ef þið farið eftir því sem flestir keppendur viljum helst. Í stað þess að níða þessa sekunduflokka inn. Í hreinskilni sagt þá eru menn ekki sáttir við svona vinnubrögð. Ég minni á að það var gerð skoðanakönnun þar sem þetta kemur fram.
Þetta er sett hér fram sem sanngjarna og málefnalega umræðu á líðandi stund. Við viljum ekki endilega dæma stjórnina löngu seinna á Aðalfundi.
Gretar Franksson
Já Grétar, ég veit að ég vinn allavega í þessu af heilindum og hef staðið á minni skoðun í þeim málum sem ég hef talið mig hafa vit á.
Ég veit líka að staðreyndin er sú að erfitt er að fá menn til að vinna við keppnirnar og skoða bílana og þetta einfaldar málið mikið. Einnig var samþykkt á MC-fundi sem haldinn var í haust að prófa þetta fyrirkomulag fyrir þá.
Ég er sammála Kidda í því sem hann segir um bremsukallana, það er að sjálfsögðu hægt að skrá sig í flokk sem er 2 sek. seinni en þeirra bílar keyra og eru því ekki að keppa til að hafa gaman af því heldur að ná í dollu og sýna hana heima þegar gestir koma (lítil typpi?). Þetta verður ekki vandamál ef fleiri en einn eru í toppbaráttu.
Gefum þessu séns og stillum bílunum okkar upp miðað við það sem við ætlum að gera og ef við eignumst meiri pening þá förum við bara upp um flokk, þetta auðveldar mönnum að gera það sem þeir vilja. Það er líka hægt að keppa með tækið sem maður á og þarf ekkert að breyta því og ef þetta gefst ekki vel sem ég efast um þá er hægt að horfa aftur til fortíðar þrasa um reglur og annað slíkt. Í þessu er hægt að sleppa regluþrasi og bara hía á þá sem bremsa og kalla þá kellingar, hvað finnst ykkur.
Áfram málefnaleg umræða, út með leiðindi og pirring.
Kv. Nóni, bjartsýnn
-
Ég bara sé ómögulega vandamálið við þetta,því ekki að prufa þessa sekúnduflokka nú ef þeir eru fúlegg þá bara slúffa þeim,það er ekki eins og allt fari til helvítis við að prufa þetta. :roll:
Keppnistjórn hefur líka leyfi til að henda upp um flokk dóminerandi aðilum (bremsuköllum,sem hafa reyndar ekki gefið sig fram).

EINMITT
Svo sýnist mér 5 aðilar vera búnir að tjá sig um að þeim líki þetta ekki, af þeim eru 2 sem ætla að keppa í OF-flokk (þeir ættu að vera ánægðir), 1 sem ég hef ekki séð keppa og býst ekkert frekar við, 1 sem hefur komið einu sinni eða tvisvar síðustu 3 ár og þá er eftir 1 sem hefur verið virkilegur harðkjarnanagli og mætt í allar keppnir sem ég veit um. Það er auðvitað vont að þurfa að troða á Gísla þegar hann hefur verið einn flottasti keppandinn í mörg ár, en svona er þetta Gísli, laun heimsins eru vanþakklæti.
Kv. Nóni
-
Sælir piltar og stúlkur, er ekki hægt að fá uppgefna þá kennitíma/index sem hafa verið í notkun hjá mönnum undanfarin ár. Og er ekki svona sirka rétt hjá mér að Novan mín fengi um 8sec index = 3300libs/555cid ?
mange takk
-
Sæll Einar,
Ég er með gamlar Index tölur um suma keppendur, það væri gott ef menn bættu inn fleirri tölum sem þekkja til.
Þú fengir kennitíma 8.30sek miðað við þetta.
Einar B Nova 555/3200 8.30sek
Þórður Camaro 540/2800 8.05sek
Gretar F Vega 540/2930 8.10sek
Stjáni Grind 454/2225 7.60sek
Ingó Grind 515/1980 7.35sek
Jónas Karl Volvo 499/2450 7.90sek
Valur Vif Grind 360/1750 7.90sek
Aggnar Grind 350/1850 8.00sek
Auðunn S Camaro 440/2600 8.30sek
Friðbjörn Valiant 8.55sek
Jenni Monsa 8.35sek
Það getur verið að tölur séu ekki alveg réttar, en þetta er ekki fjarri lagi
Ef menn vilja þá get ég sett inn kennitíma fyrir ykkur hér þið þurfið bara að gefa upp Rúmtak/þyngd (cid/pound) 1pound=0,454kg
Gretar Franksson
-
Jónas Karl Volvo 499/2450 7.90sek
Stigurh Volvo 454 /2555 stálhedd tunnel tveir holley´s og powerglide Stígurh 176 pund
Hvað er með þessa vikt?
Er Jónas léttari en ég?
-
Sæll Stígur,
Já hann er léttari en þú. Moparbrennarinn er einnig léttari. Þú verður að gera eitthvað í þessu!
GF.
-
Fituhlúnkur!!
-
Hmm.. setja Stíg á diet í sjoppunni , er ekki hægt að búa til diet kaffi? :hehehe <- ekki spyrja hvað mér dettur í hug margt skrítið sem virkar oftast.
-
http://www.kvartmila.is/opinn.html
Er þetta ekki umrætt línurit?
-
5 pund farin. Ég er að redda þessu. Set stefnuna á 70 pund.
-
Stigur,
Þú fengir Index 8,20 sek miðað við þetta, 454/2555
GF.
-
Baldur,
Línuritið hefur ekki verið uppfært. Það var samþykkt á Aðalfundi fyrir 3 árum að miða við Altered flokkana í Competition. Það hefur þær afleiðingar að línan verður meira lágrétt. Þetta gefur þyngri ökutækjum aðeins meira forskot. (sem dugar vart til, nema....)
GF.