Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Einar K. Möller on May 25, 2006, 14:24:59

Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Einar K. Möller on May 25, 2006, 14:24:59
Svona er staðan á metunum í dag:

http://www.kvartmila.is/met.htm

Hafi einhver hérna útá einhverjar tölur að setja vinsamlegast sendið mér þá PM eða email ( einar@kvartmila.is ).

EKM
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Marteinn on May 25, 2006, 23:36:30
uppáhaldsmetið mitt
 :lol:
F Mótorhjól  Unnar Már Magnússon  Kawasaki ZX7 R   141.126  ??.??.200?
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Einar K. Möller on May 26, 2006, 00:00:30
Þetta er svona þegar fólk gleymir að skrásetja... grunar þó að þetta met sé síðan 2002.. spurning svo aftur hvenær árið 2002 það var  :?
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Nóni on May 26, 2006, 00:15:07
Þurfa met ekki að vera sett í keppnum?


Kv. Nóni
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Einar K. Möller on May 26, 2006, 00:16:10
Jú vissulega þurfa þau að vera sett í keppnum.

Skelltu á mig PM varðandi þetta, ég vill þessi met séu á kristaltæru.

EKM
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: stefan325i on June 25, 2006, 16:42:45
RS      Guðlaugur Halldórsson      Subaru Impreza 2.0L Turbo      11.732


Elvar bara að herða sig aðeins og hirða þetta met..........
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Kristján Skjóldal on July 20, 2006, 20:20:10
Er 8,39 metið í of :?:
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Einar K. Möller on July 20, 2006, 23:50:12
8.39 er núgildandi met í OF já.
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Kristján Skjóldal on July 21, 2006, 08:09:08
Átti Ingó ekki 7.8o 7.90 eithvað :?:  eða er Einar nær indexi :?:  :?:
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: baldur on July 21, 2006, 08:17:21
Átti Ómar Norðdal ekki metið í MC?
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Einar K. Möller on July 21, 2006, 08:21:41
Ingó átti metið jú en OF var núllaður fyrir þetta season og Einar næstur Index-i hingað til.

Ómar átti metið á götuslikkum, MC flokkur er kominn á radial barða aftur og þá gildir metið hans smára.
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Ingó on July 21, 2006, 12:18:26
Quote from: "Kristján"
Átti Ingó ekki 7.8o 7.90 eithvað :?:  eða er Einar nær indexi :?:  :?:


Besti tíminn sem ég náði var 7,84  en metið var 7,98 index 7,45 sett árið 2001 eða 2002. Það var trúlega bætt af Þórði um einhver brot árið 2003. En eins og menn vita þá er þetta dálítið ruglíngslegt.

kv Ingó

 :)
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Kristján Skjóldal on July 21, 2006, 17:57:26
Er bara koma aftur og reina en betur :?:
Title: Íslandsmet - Uppfært
Post by: Dr.aggi on July 21, 2006, 18:11:17
Sælir.
Ástæðan fyrir því að met í OF voru núlluð er vegna þess að viðmiðunar línuriti var breitt núna fyrir þetta sumar eftir samþykkt frá aðalfundi 2003.
Línuritið breyttist það mikið að það þótti ekki sambærilegt því eldra og því forsendur hvers keppnistæki aðrar.
En Ingó fór þrátt fyrir það á 7.84 og er alveg jafn góður tími sem áður,
en við verðum í index flokkum að reikna Íslandsmetið út með hliðsjón af indexi.

Ég vona að ég hafi náð með þessu bulli að skíra þetta eitthvað út.

Kv.
Aggi