Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: kiddi63 on October 10, 2004, 17:37:32

Title: Camaro spurning
Post by: kiddi63 on October 10, 2004, 17:37:32
Veit einhver hversu margir Camaro af ´74 árgerð hafa komið hingað til lands??  :shock: , það er eins og þetta sé sjaldgæf árgerð.
Title: Camaro spurning
Post by: Ásgeir Y. on October 10, 2004, 19:37:20
það hafa 5 stykki verið skráð hér heima, þar af einn uppá velli
Title: Camaro spurning
Post by: kiddi63 on October 11, 2004, 08:14:21
þakka upplýsingarnar.
En ég finn furðulega litlar uppl um þessa árgerð á netinu, er að spá hvort þetta hafi verið eitthvað "misheppnuð árgerð" sem enginn vill muna eftir..  :?: :shock:  
Eftir því sem tölur segja þá er það er ekki málið að eitthvað fáir hafi verið framleiddir.
Title: Camaro spurning
Post by: Firehawk on October 11, 2004, 09:26:15
Hér er flest af því sem þú þarft að vita:

http://www.nastyz28.com/camaro/camaro74.html

http://www.nastyz28.com/gallery/1974/1974.html

Mönnum hefur yfirleitt fundist 70-73 og 78-81 árgerðirnar af 2nd gen verið flottari. Stuðarinn á 74-77 er svolítið klossaður á móti rennilegum línum í bílnum. Af þessum ástæðum eru 74-77 ekki eins vinsælir og þess vegna minna af þeim á netinu.

'74 er auðþekkjanlegur á því að hann er með "kubbslegum" stuðurum og lítilli afturrúðu.

Engu að síður eru þetta mjög fallegir bílar

-j
Title: Camaro spurning
Post by: GunniCamaro on October 11, 2004, 12:31:40
Aðalástæðan fyrir fámenni ´74 árg., að mínu mati, er að ´74 var orkukreppan mikla skollin á sem gerði út af við muscle bílana og aðeins ein performance týpa í boði frá camaro sem var Z-28.
Það er reyndar til einn Z-28 bíll hér og var hann hvítur með Z-28 röndunum þegar Ingólfur Arnars átti hann og virkaði hann rosalega, en þessi bíll er bara svipur hjá sjón frá því sem hann var, því orginal 350 vélin er ónýtt og búið að taka Z-28 fjöðrunarbúnaðinn úr honum.
Ég veit ekki hvernig staðan er á honum í dag eða hver á hann en mér skilst að það sé verið að gera hann upp.
Síðan hefur það ekki hjálpað til að halda lífinu í þessa árgerð að ´74 komu allir amerískir bílar með þessa stóru ljótu öryggisstuðara vegna kröfu frá amerískum stjórnvöldum og þeir þyngdu bílana umtalsvert.
Title: Camaro spurning
Post by: kiddi63 on October 13, 2004, 19:25:46
Já ég er nú fekar sammála þessu með stuðarann, en ef maður fer út í þetta þá er nú varla stórmál að fjarlægja þetta stálstykki og finna
eitthvað nettara.  8)
Title: Camaro spurning
Post by: GunniCamaro on October 14, 2004, 16:42:36
Málið er að það er meira en járnstuðarinn, það er eitthver heljarinnar demparafesting fyrir innan sem, ef ég man rétt, átti að þola og gefa eftir árekstur á 5 mílna hraða á þess að skemma bílinn.
Er einhver sérstök ástæða fyrir því að þú ert hrifinn af ´74 árg. og af hverju ekki að velta fyrir sér 70-73 árg., þeir eru ekki með þennan ljóta stuðara og eru þess vegna léttari.
Title: Camaro spurning
Post by: kiddi63 on October 14, 2004, 19:29:09
Það er alls ekki það að ég sé neitt hrifinn af þessari árgerð, mér stóð svona bíll til boða og var bara að pæla hvort það væri eitthvað vit í því.
En ´68 Camaro heillar mig miklu meira en þeir eru vandfundnir til sölu, allavega hér á landi  :roll:
Title: Camaro spurning
Post by: Chevera on November 05, 2004, 00:28:03
sælir hver var að bjóða svona bíl og er hægt að nálgast hann ?
takk :?:
Title: Z28
Post by: Ingó on November 07, 2004, 11:42:13
Ég átti 2 74 Camaro báðir voru með 350  annar var Z28 4 gíra  245 HP og keppti ég á honum í standard flokki á ca 84-86 og tíminn sem ég náði á honum að mér minnir 13,41 sem var met á þeim tíma. Þetta var virkilega skemmtilegur bíll bæði kraftmikill og hafði frábæra aksturs eiginleika . Hinn bíllin var líka mjög skemmtilegur þótt hann væri ekki eins öflugur 14.60 . Að mínu mati eftir að hafa átt tvo 74 Camaro þá eru frábærir bílar akstri og mæli ég hiklaust með þessum bílum.

Ingó.
Title: Camaro spurning
Post by: Chevera on November 11, 2004, 11:44:30
sæll Ingó veistu hvar bíllinn sem var ekki z28 er staddur núna?
og í hvaða útfærslu var hann þegar þú áttir hann? litur og annað slíkt?
Title: Camaro spurning
Post by: Ingó on November 17, 2004, 12:19:50
Ég veit ekki hvar hann er . Þegar ég eignaðist bílinn var hann grár ég málaði bílinn efekt rauðan og seldi hann til Vestmannaeyja.

Ingó
Title: Camaro
Post by: ilsig on December 09, 2004, 02:09:37
Ingo er þetta sá.
kv.Gísli
Title: Camaro spurning
Post by: Ingó on December 10, 2004, 12:29:38
já þetta er hann.

kv Ingó