24
« on: March 06, 2010, 11:12:02 »
Sælir félagar.
Þegar þessi heimasíða var sett upp í upphafi fyrir tíu árum síðan var hún fyrst og fremst hugsuð til þess að halda á lofti nafni Kvartmíluklúbbsins og kynna starfsemi klúbbsins.
Mín trú er sú að þessi heimasíða hafi skilað þeim árangri ,það er að segja ég held að það sé ekki litið á Kvartmílinga sem hálfgerða utangarðsmenn eins og mjög algilt var fyrr á árum og tel ég það þessari heimasíðu mikið að þakka, það má eiginlega segja að Kvartmila.is sé okkar fjölmiðill, en fjölmiðill missir algerlega tilgang sinn ef hann hefur ekki áhorf,hlustun eða lestur og til þess þarf fjölmiðillinn að bjóða upp á fróðleik,auglýsingar og lýflegar umræður. Ég tel það ekki rétt að stjórnir hverju sinni geti heft tjáningarfrelsi einstaklinga hér á netinu vegna eigin geðþótta vitsmunamats á viðkomandi einstaklingi, slíkt flokkast undir hroka.
Êg held að það sé farsælla að halda þessari heimasíðu eins og hún er enda er hún sjálfsagt víðlesnasti akstursíþrótta fjölmiðill landsins og ætti freka að reyna að nýta þessar miklu fléttingar til aukinna tekna fyrir félagið. Gjaldskildir fjölmiðlar eru barn síns tíma hér á landi og er hið gjaldþrota áróðursrit Morgunblaðið góð sönnun þess.
Menn hafa verið að tengja þessa ákvörðun við umræðu hér vegna breytingu á lögum klúbbsins er varða reglubreytingar,langar mig því að lýsa skoðunn minni á þeim gjörningi sem mér finnst mikil afturför
Nær hefði verið í þessum efnum að stíga það óumflýjanlega spor og verða þannig enn og aftur leiðandi og mótandi á landsvísu með því að koma því á að reglubreytinganefndin sé skipuð kosnum fulltrúum þeirra akstursíþróttafélaga sem árlega halda spyrnukeppnir og að þessi nefnd sé innan sérsambands akstursíþrótta innan ÍSÍ.
Það er enganvegin eðlilegt að mínu mati að kvartmíluklúbburinn sé einráður um keppnisreglur á landsvísu í spyrnukeppnum að Ba menn tildæmis sem hafa haldið keppnir í spyrnu í áratugi hafi ekkert um það að segja lengur, þeir fengu þó hér áður þegar lýðræðið var haft í hávegum að koma á aðalfund KK og höfðu umfjöllunar og kosningarétt um reglubreytingar hverju sinni.
Það getur ekki verið eðlilegt í Íslandsmeistaramótaröð að reglunefnd eins klúbbs skipuð einkavinum stjórnar þess klúbbs hverju sinni geti sýslast og breytt leikreglum hvenær sem þeim hentar án þess að nokkur hafi um það að seigja
Ég held að það sé sportinu til framdráttar að stuðla að því að gera spyrnukeppnir að landsvísu íþróttagrein en vera ekki eitthvert Zippoleikni sport utangarðsmanna í Kapelluhrauni.
Kv.
Agnar H Arnarson