Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: psm on February 04, 2009, 17:21:58

Title: Prjón
Post by: psm on February 04, 2009, 17:21:58
Hvað hafa margir bílar náð að lyfta framhjólum á íslandi?
væri gaman að fá smá upptalningu
Title: Re: Prjón
Post by: Jón Þór Bjarnason on February 04, 2009, 20:02:09
Ég hef ekki hugmynd um þá tölu en mig minnir að Benni í bílabúð benna hafi prjónað hæst á Willys.
Endilega ef einhver á mynd af því. Ég finn hana ekki hér í fljótubragði.
Title: Re: Prjón
Post by: maggifinn on February 04, 2009, 20:26:30
ég á það til á vídjói,
Moli vinsamlegast minntu mig á það á aðalfundinum
Title: Re: Prjón
Post by: Kristófer#99 on February 04, 2009, 21:25:50
ég á það til á vídjói,
Moli vinsamlegast minntu mig á það á aðalfundinum

er ekki hægt að koma því á netið :?::?:
Title: Re: Prjón
Post by: motors on February 04, 2009, 21:33:12
Benni á Willys háááátt,Einar á Novu og Camaro,Benni á Vegu,Leifur á Pintó,Þórður á Willys og Camaro,örugglega Stígur á kryppunni,Jenni á Monzu,og örugglega fleiri..... :-k
Title: Re: Prjón
Post by: Skúri on February 04, 2009, 21:45:24
Ég man fyrst eftir því að hafa séð gömlu Kryppuna hans Dadda lyfta hjólum, ´78 eða ´79 og svo Benna á Svarta Torfærutröllinu ´79.
Svo er náttúrulega haugur af bílum eftir það.
Title: Re: Prjón
Post by: Kimii on February 05, 2009, 00:15:07
Benni á Willys háááátt,Einar á Novu og Camaro,Benni á Vegu,Leifur á Pintó,Þórður á Willys og Camaro,örugglega Stígur á kryppunni,Jenni á Monzu,og örugglega fleiri..... :-k

frikki á transam, rúdolf á temptest, gilli á challanger og flest allir of bílarnir
Title: Re: Prjón
Post by: Moli on February 05, 2009, 00:44:58
ég á það til á vídjói,
Moli vinsamlegast minntu mig á það á aðalfundinum

Reyni að muna það!  :wink:

Hérna er myndin af Benna á Willys.

Title: Re: Prjón
Post by: kiddi63 on February 05, 2009, 06:35:32
Jæja, alltaf í boltanum bara   :shock: :lol:

(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/kvartmila/gamlar_sandspyrnu/sandscan_041.jpg)
Title: Re: Prjón
Post by: ljotikall on February 05, 2009, 09:47:57
ekki sami willys ne ökumaður samt 8-)
Title: Re: Prjón
Post by: baldur on February 05, 2009, 09:56:24
Hvaða ökumaður er þetta á seinni myndinni?
Title: Re: Prjón
Post by: Skúri on February 05, 2009, 11:27:44
Hann heitir Reynir þessi sem er á neðri myndinni og var að keppa í torfæru og sandspyrnu ´79 og ´80.
Það er nokkrar myndir af honum inn á síðunni minni www.icejeep.com , bæði í sandspyrnu og torfæru.
En þegar var verið að spyrja hverjir höfðu verið að lyfta framhjólunum þá gerði ég ráðfyrir að það væri verið að tala fólksbíla um upp á braut,
 það er nefnilega ekkert voðalega mikið mál að láta stuttan Willys jeppa prjóna á malbiki.
Hérna koma svo nokkrar myndir Willys jeppum að prjóna þar sem maður er nú með króníska Willys dellu  :D.

Fyrsta myndin er af Benni ´79
Mynd nr. 2 er af Hlöðver Gunnarsyni austur í Hrauni í Ölfusi ´78, það var í fyrsta skipti sem ég sá farartæki prjóna af stað.
Mynd nr. 3 er af Alberti Kristjánsyni upp á braut líklegast ´82
Seinasta myndin er svo af jeppanum hans Benna eins og honum var stillt upp á Páskasýningu KK ´80

Ps. ég held að allar þessar myndir séu af www.bilavefur.net bara svo það sé á hreinu  :lol:

Title: Re: Prjón
Post by: Dodge on February 05, 2009, 21:22:43
Dóri á porche, Stjáni Skjól á camaro, og sennilega það ólýklegasta var það ekki Hafsteinn Valgarðs á Stock looking 4th gen camma
með bæði svona snyrtilega jöfn rétt frá jörðu?
Kalli á Dartinum, og svo náði ég smá rifu...
Title: Re: Prjón
Post by: Stefán Már Jóhannsson on February 05, 2009, 21:40:56
(http://php.internet.is/oskarfj/camaro/spjall/download/file.php?id=51&mode=view)

Kannski stock looking.. En alvöru tæki. Er reyndar enn fallegri í dag.
Title: Re: Prjón
Post by: TONI on February 07, 2009, 02:31:37
þetta líka
Title: Re: Prjón
Post by: TONI on February 07, 2009, 02:33:58
þessir lyfta dekkjum
Title: Re: Prjón
Post by: Chevy_Rat on February 07, 2009, 18:13:45
þessir lyfta dekkjum

Góður Toni varstu nokkuð aðeins að smakka það :smt030 í gærkvöld/nótt  :lol:
Title: Re: Prjón
Post by: baldur on February 07, 2009, 18:31:38
Ég gleymi því nú seint þegar að Benni Eiríks setti framdekkin á Vegunni sirka meter upp í loftið hérna um árið, það var nú samt ekki það góð ferð því hann fór útaf þegar framhjólin komu aftur niður, en startið var tilþrifamikið.
Title: Re: Prjón
Post by: TONI on February 07, 2009, 20:44:55
Hehe, smá Carlsberg....en hugmyndin kom áður en hann kom til :D
Title: Re: Prjón
Post by: Halldór H. on February 08, 2009, 00:20:36
Efni í prjónabrók  :D   (http://i44.tinypic.com/2u7shua.jpg)
Title: Re: Prjón
Post by: Kristófer#99 on February 08, 2009, 00:21:56
Efni í prjónabrók  :D   (http://i44.tinypic.com/2u7shua.jpg)



ílla góður lettinn
Title: Re: Prjón
Post by: SPIKE_THE_FREAK on February 13, 2009, 15:16:35
það eru samt líka hellingur sem hefur náð að lyfta upp off track bara útá götuni en ekkert hátt endinlega gamli dusterinn hans pabba gat það en fór alldrey langt frá götuni kanski strukust bara við en haha var samt alldrey allveg off ground en nálægt því kanski. veit ekki