Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: Jón Þór Bjarnason on November 19, 2009, 20:51:17

Title: Pústgrein
Post by: Jón Þór Bjarnason on November 19, 2009, 20:51:17
Hvaða aðilar eru helst að smíða flækjur?

Er hægt að sjóða í svona pottstál og borgar það sig?

Er einhver hérna sem á til fremri pústgrein úr 3800 series II framdrifsbíl. (sjá meðfylgjandi mynd)
Title: Re: Pústgrein
Post by: Mtt on November 19, 2009, 21:01:28
það er allavegana til pottsuðu vír í jak á dalshrauninu í hfj.

Kv Mtt
Title: Re: Pústgrein
Post by: 440sixpack on November 25, 2009, 23:01:49
Ef þú ætlar að sjóða þetta saman verðurðu að fasa sárið og hita allt stykkið og hafa það vel heitt þegar það er soðið saman, með pottsuðuvír.
Title: Re: Pústgrein
Post by: KiddiJeep on November 26, 2009, 00:07:41
Ef það er ekki þeim mun erfiðara að komast að þessu í bílnum þá myndi ég hreinlega setja pústgreinina í og láta vélina sjá um að halda greininni heitri \:D/
Title: Re: Pústgrein
Post by: Contarinn on December 11, 2009, 20:57:28
Ef það er ekki þeim mun erfiðara að komast að þessu í bílnum þá myndi ég hreinlega setja pústgreinina í og láta vélina sjá um að halda greininni heitri \:D/


Er þá ekki djöfull hvasst útum rifuna sem þú ert að sjóða í ?
Title: Re: Pústgrein
Post by: Jón Þór Bjarnason on December 12, 2009, 15:01:51
Búinn að versla mér allt í pústkerfið. Það verður fremst 3" og fer svo niðrí 2,75"
Málið var að ég var búinn að versla mér 3800 series II af 99´camaro en vandamálið var að inngjöfin var drive by wire og tókst mér ekki að koma bensín pedalnum fyrir þannig að hann væri í þægilegri stöðu. Þá fann ég 3800 series II supercharged úr Buick park avenu ultra ´97 sem ég verslaði og á ég bara eftir að tengja rafmagnið og ganga frá pústinu og þá get farið út að spóla.
Vélin er uppgefin um 240 hp í bíl sem er að losa 1000kg þannig ég vona að þetta eigi eftir að virka ágætlega og skila mér allavega í háum 12 sek.

Hér eru myndir af alveg eins uppsetningu á pústkerfi.

Title: Re: Pústgrein
Post by: KiddiJeep on December 12, 2009, 20:19:37
Ef það er ekki þeim mun erfiðara að komast að þessu í bílnum þá myndi ég hreinlega setja pústgreinina í og láta vélina sjá um að halda greininni heitri \:D/


Er þá ekki djöfull hvasst útum rifuna sem þú ert að sjóða í ?
Gerði þetta svona á pústgrein á AMC258 og man ekki til þess að rokið hafi verið neitt mikið til ama