Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Gulag on June 21, 2007, 20:17:28

Title: vont mál...
Post by: Gulag on June 21, 2007, 20:17:28
http://www.helgasigrun.blog.is/blog/helgasigrun/entry/242629/

þarna er þingmaður að bera það saman að ef það á að búa til braut fyrir mótorsportið hér, er alveg eins gott að gera æfingasvæði fyrir nauðgara...

Svo tekur steininn úr að Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnarfulltrúi VÍS samsinnir þessari vitleysu.

varla er gaman fyrir KK að vera að vinna í brautarmálum með yfirlýsingar af þessu tagi á netinu, og það frá þingmanni og starfsmanni VÍS.

Hvet ykkur að taka afstöðu í þessu, getið séð þráðinn á ruddar um þetta á: http://ruddar.spjallbord.net/default.aspx?g=posts&t=1108

Erum við mótorsportsáhugafólk á sama levelli og nauðgarar?  er eðlilegt að forvarnarfulltrúi komi fram með yfirlýsingar af þessu tagi?  maður bara spyr sig.
Title: vont mál...
Post by: Racer on June 21, 2007, 20:59:39
ég sendi skoðun mína á þessu póstföng sem gefinn voru upp og bauð þessari konu vingjarnlega að mæta uppá braut þessa helgina og sjá hvernig starfsemi fer fram þar og Ekki tryggi ég hjá vís á næstunni ef starfsmenn láta svo orð falla.

Hvað gerist næst.. fólk byrjar að tala illa um hjólamenn og hvar endar þetta svo? Hjá þeim sem fara á fjöll á jeppunum eða menn sem keyra til vinnu og til baka á 4 dekkja faratæki.
Title: vont mál...
Post by: Valli Djöfull on June 21, 2007, 21:10:45
Skondið...  Það eru greinilega ekki allir sammála henni innan Vís...  Veit ekki um neitt tryggingarfyrirtæki sem er auðveldara að fá viðauka hjá  :lol:
Title: vont mál...
Post by: 1965 Chevy II on June 21, 2007, 23:47:42
Þetta er svo heimskulegt að það tekur því ekki að æsa sig yfir þessu.
Title: spurning
Post by: TONI on June 21, 2007, 23:53:29
Eru ekki sömu reglur sem ganga yfir starfsmenn VÍs og t.d motorsport áhugamenn, það eru nokkrir sem skemma fyrir allri hjörðinni, sé ekki ástæðu til þess að bera virðingu fyrir VÍS fyrr en þeir sem eru þessarar skoðunar inna VÍS já og flokkssystkyni þessa stjórnmálamanns biðji þetta fólk afsökunar á opiberum vetvangi á þessum ummælum og geri grein fyrir því hvers vegna þessi orð voru látin falla. Þetta eru MJÖG stór orð.
Title: vont mál...
Post by: Dodge on June 21, 2007, 23:59:56
Hún var ekkert alveg að fatta að þetta væri íþrótt eins og annað.
Title: vont mál...
Post by: 1965 Chevy II on June 22, 2007, 00:22:14
Ég sendi smá svar og bauð henni bara á brautina,hún/þær eru ekki alveg að skilja að svona svæði nýtist í miklu meira heldur en fyrir einvherja "örfáa" hraðafíkla, sem eru reyndar mjög margir.
Title: Re: vont mál...
Post by: keb on June 22, 2007, 11:47:47
Quote from: "AMJ"
http://www.helgasigrun.blog.is/blog/helgasigrun/entry/242629/

þarna er þingmaður að bera það saman að ef það á að búa til braut fyrir mótorsportið hér, er alveg eins gott að gera æfingasvæði fyrir nauðgara...

Svo tekur steininn úr að Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnarfulltrúi VÍS samsinnir þessari vitleysu.

varla er gaman fyrir KK að vera að vinna í brautarmálum með yfirlýsingar af þessu tagi á netinu, og það frá þingmanni og starfsmanni VÍS.

Hvet ykkur að taka afstöðu í þessu, getið séð þráðinn á ruddar um þetta á: http://ruddar.spjallbord.net/default.aspx?g=posts&t=1108

Erum við mótorsportsáhugafólk á sama levelli og nauðgarar?  er eðlilegt að forvarnarfulltrúi komi fram með yfirlýsingar af þessu tagi?  maður bara spyr sig.


Atli .... þetta er sennilega spurning um hugarfarsbreytingu og málvenjur ....

Tillaga þar sem þú liggur ekkert á þínum skoðunum frekar en ég.

keppnis /aksturs/ kappakstursbraut = íþróttaleikvangur
kappakstur = íþróttamót o.sv frv....

að sama skapi:
nauðgari = kynferðisafbrotamaður
stjórnmálamaður = spillt eintak mannveru með völd

það er alveg spurning um að stilla sama strengi og senda öllum alþingismönnum, blaðamönnum, lögreglu og forstöðufólki tryggingarfélaga vel skrifaða greinargerð þar sem tekið er á öllum þáttum íþrótta á ökutækjum.
Title: vont mál...
Post by: 1966 Charger on June 22, 2007, 15:46:32
Ég er búinn að lesa þetta blogg yfir en þar sem ég hef það prinsipp að pósta ekki á Framsóknarbloggi þá læt ég þessa athugasemd vaða hér:

Þið fíklarnir sem tryggið hjá VÍS ættuð að velta fyrir ykkur að iðgjöldin ykkar fara m.a. í að greiða Ragnheiði forvarnarfulltrúa laun.  Hún segir m.a.:

"Ég er þó alls ekki sannfærð um að hraðafíklar láti vera að fá útrás fyrir "fíkn" sína þótt þeir fái sérstakt akstursíþróttasvæði. Þar vitna ég í rannsókn, sem gerð var í Bandaríkjunum, sem sýnir að mikil tengsl eru á milli þeirra sem eru meðlimir í akstursíþróttaklúbbum (aðallega spyrnuklúbbum) og þeirra sem teknir eru fyrir of hraðan akstur í umferðinni.´

Röksemdafærsla Ragnheiðar er veik vegna þess að hún gefur lesandanum ekki upp heimildina (það kemur í veg fyrir að lesandinn geti skoðað þessa rannsókn á gagnrýnin hátt).  En ef að þetta eru dæmigerð vinnubrögð forvarnarfulltrúans (að draga sterkar ályktanir út frá niðurstöðum  einnar rannsóknar) þá býð ég spenntur eftir hvað gerist ef hún segir yfirmönnum sínum hjá VÍS að hún sé ekki sannfærð um að öryggisbelti dragi úr líkunum á dauðsföllum í umferðinni vegna þess að rannsókn áhættufræðingsins John Adams við University College of London hafi leitt í ljós að lögleiðing bílbelta í 18 löndum hafi annaðhvort leitt til aukningar eða engrar breytingar v. fjölda dauðsfalla í umferðinni.

Sjá http://www.time.com/time/nation/article/0,8599,1564465,00.html?cnn=yes

Ragnar
Title: vont mál...
Post by: Kiddi J on June 23, 2007, 14:28:42
Enn ein góð ástæða fyrir því að kjósa EKKI framsóknarflokkinn...
Title: vont mál...
Post by: Bannaður on June 23, 2007, 18:00:02
ég hef skrifað þessari ragnheið bréf og fengið svar frá henni og ég get vottað það að þessi manneskja er HÁLVITI.
Title: vont mál...
Post by: ADLER on June 23, 2007, 18:02:50
Framsóknar kerlingar eru ekki marktækir einstaklingar þegar að þær láta svona.
 :evil:

Ég veit að forvarna fulltrúinn er ekki vel liðinn hjá mörgum á sýnum vinnustað sumir jafnvel hata hana enda er manneskjan alveg ömuglegur yfirgangsseggur sem heldur að allt sem frá henni komi sé það eina rétta og allir aðrir eiga að beygja sig undir það sem hún segir.

Svona fólk á bara að halda sér saman ef það getur bara verið neikvætt, það ætti frekar að eyða kröftunum í það vera með jákvæða umræðu svo hægt sé að byggja upp það sem fjöldinn kallar á og í þessu tilfelli er það æfinga og keppnis svæði fyrir aksturs íþrótta fólk.

Ég skammast mín stundum fyrir það að vera Íslendingu og alveg sérstaklega þegar að maður þarf að hlusta á svona endalausa neikvæðni allan daginn frá fólki sem er með jafn mikil völd og þessar belju heimsku kerlingar .
Title: vont mál...
Post by: Codec on June 25, 2007, 14:17:17
Quote from: "66 Charger"
[...]
Röksemdafærsla Ragnheiðar er veik vegna þess að hún gefur lesandanum ekki upp heimildina [...] hún sé ekki sannfærð um að öryggisbelti dragi úr líkunum á dauðsföllum í umferðinni vegna þess að rannsókn áhættufræðingsins John Adams við University College of London hafi leitt í ljós að lögleiðing bílbelta í 18 löndum hafi annaðhvort leitt til aukningar eða engrar breytingar v. fjölda dauðsfalla í umferðinni.

Sjá http://www.time.com/time/nation/article/0,8599,1564465,00.html?cnn=yes

Ragnar


Þetta er verðugt svar, Rangar, og frábært að benda á þessa grein.

kv. Svenni.
Title: vont mál...
Post by: moparforever on June 25, 2007, 20:00:03
getum við ekki bara fengið bæði svæðin?  :shock:
Title: svæði
Post by: TONI on June 25, 2007, 21:34:26
Ljómandi hugmynd, þá geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi  :wink:
Title: vont mál...
Post by: PalliP on June 29, 2007, 00:16:47
Þetta er alvarlegt mál að líkja mönnum sem hafa mótorsport að áhugamáli við nauðgara!  Þessi Helga Sigrún er búin að taka út þessa færslu sína og er hálf hissa á því að drullað sé yfir hana.

Sem mótorsport keppandi og áhugamaður er ég skúffaður yfir því að forvarnarfulltrúi VIS skuli koma fram og styðja þessa vitleysu.
'Eg byrjaði að keppa 17ára í rallycrossi og þar lærði ég að keyra, taldi mig kunna mikið þegar inná brautina var komið í fyrsta sinn en annað kom á daginn, viðbragðið lélegt og aksturshæfnin líka.  'Eg fékk það tækifæri að læra að keyra þarna og krassa oft og velta, og enginn bar skaða af nema bílgarmurinn.  'Eg varð reynslunni ríkari og lærði hvar mátti keyra svona og hvaða búnað þarf til þess, og í umferðinni var ég alltaf eins og maður, svo ég blæs á þessa þvælu og tel þessar örugglega ágætu konur skulda okkur akstursíþrótta fólki afsökunarbeiðni.

Ef þetta er reyndin og VIS bakkar það upp sem Ragnheiður segir, skora ég á akstursíþrótta fólk sem tryggir hjá VIS að segja þar upp og tryggja þar sem það er velkomið.

kv.
Páll Pálsson
S:822-0501