Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Harry þór on June 14, 2009, 14:20:35
-
Sælt veri fólkið. Það var gaman að taka þátt í þessu með allt þetta góða fólk sem lagði á sig ótrúlega mikla vinnu. Prógrammið sem við lögðum upp með gékk eftir þrátt fyrir rigningu í klukkutíma. það sýnir okkur að við getum byrjað keppni seinna td. kl 14 - eða jafnvel kl 15 sem er áhorfendavænn tími. Rigningin setti strik í reikningin en við tókum ákvörðun að keyra keppni, v/ margir 4x4 - jafnblautt hjá öllum - fáir GF - OF bílar. það er líka gott að fá keppni frá og geta einbeitt sér að næstu keppni. Við í keppnisstjórn sáum nokkra hnökra á í framkvæmdinni, sem verður löguð. Þá er ég að tala um þessa tvöföldu skráningu. Næst mæta menn fullskráðir á keppnisstað. Það væri líka gott að fá málefnalega umræðu um keppnishaldið og eins hvort það sé stemmning á að byrja seinna ,tímatökur kl 11 - 12?
Ég vil þakka öllum þeim sem komu að keppnishaldinu og ekki síst keppendum sem stóðu sig vel, TAKK :-({|=
Ég vil þakka - Jón Bjarna sem er búinn að vinna undafarnar vikur ómælda vinnu allan daginn , fjársjóður þar á ferðinni.
Baldur sem allt getur og kann , bara nefna það og hann reddar því, takk fyrir.
Ingó Arnarson sem keyrði keppnina áfram af mikilli kunnáttu og röggsemi.
Valli í stjórnstöð
Addi - ræsir
Halldór - burnout
Gísli þór - öryggisbíll/ stjórnstöð
Gísli Rúnar - uppröðun í pitt
Kristinn Snær - pittprentari
Jakob - öryggisbíll
Maggi Finnbjörns - vigt
Gunni - vigt
Kristján Finnbjörns - skoðun
Ási - skoðun
Ólafur Örn - burnout - miðasala
Haukur - burnout / miðasala
Bjarni - burnout / miðasala
Gummi - track
Svo er það Valur Vífills - reynslu bolti þar á ferðinni - takk. :-({|=
Frikki og Leifur sem eyddu heilu föstudagskvöldi í track málum og fengu svo rigningu á sig - flottir félagar þar á ferðinni sem mættu
svo daginn eftir manna fyrstir til keppni. =D>
Hálfdán ráðgjafi í reglum fær þakkir fyrir sína kunnáttu í þágu KK. :-k
Hafi ég gleymt að nefna einhvern biðst ég afsökunar á því :oops:
Ekki má gleyma strákunum í sjoppunni Davíð og Jón Þór 8-)
mbk Harry Þór - sem tók að sér verkstjórn og röfl.
-
Vil byrja á að hrósa ykkur fyrir frábæra keppni og mjög gott skipulag. Þetta er ein best keyrða keppni sem ég hef tekið þátt í og eru þær nú orðnar nokkrar síðan 1987. Gaman að sjá hvað það voru margir og góðir starfsmenn á svæðinu. Persónulega er ég ekkert spenntur fyrir því að seinka keppnunum en það má vera að það séu góð rök fyrir því. Það væri kannski í lagi að hliðra um klukkutíma og byrja keppnina kl 2. en varla seinna en það.
-
ég vil þakka öllu þessu frábæra fólki sem komu að keppninni þetta var virkilega gaman og gekk rosalega vel fyrir sig =D>
Kv
Reynir Reynisson
-
Þessi keppni var bara snilld og frábærlega vel skipulagt, þakka öllu starfsfólki fyrir allt . Þetta hefði ekki gengið svona vel fyrir sig ef það væri ekki fyrir ykkur öll.
-
Þetta var frábær keppni í alla staði og fannst mér mjög skynsamlegt að klára hana, þá er hún bara frá og ekki þarf að spá meira í henni.
Mér fannst það stór sniðugt að keyra strax á tímatökur og taka æfingarferðir bara eftir tímatökunar. En kannski er það verra fyrir suma veit það ekki.
Segi bara sammála þessu hjá þér Harry og þakka ég þér sjálfum fyrir þín störf
Quote frá Harry póst:
Ég vil þakka - Jón Bjarna sem er búinn að vinna undafarnar vikur ómælda vinnu allan daginn , fjársjóður þar á ferðinni.
Baldur sem allt getur og kann , bara nefna það og hann reddar því, takk fyrir.
Ingó Arnarson sem keyrði keppnina áfram af mikilli kunnáttu og röggsemi.
Valli í stjórnstöð
Addi - ræsir
Halldór - burnout
Gísli þór - öryggisbíll/ stjórnstöð
Gísli Rúnar - uppröðun í pitt
Kristinn Snær - pittprentari
Jakob - öryggisbíll
Maggi Finnbjörns - vigt
Gunni - vigt
Kristján Finnbjörns - skoðun
Ási - skoðun
Ólafur Örn - burnout - miðasala
Haukur - burnout / miðasala
Bjarni - burnout / miðasala
Gummi - track
Svo er það Valur Vífills - reynslu bolti þar á ferðinni - takk. Boo hoo!
Frikki og Leifur sem eyddu heilu föstudagskvöldi í track málum og fengu svo rigningu á sig - flottir félagar þar á ferðinni sem mættu
svo daginn eftir manna fyrstir til keppni. Applause
Hálfdán ráðgjafi í reglum fær þakkir fyrir sína kunnáttu í þágu KK. Think
Hafi ég gleymt að nefna einhvern biðst ég afsökunar á því Embarassed
Ekki má gleyma strákunum í sjoppunni Davíð og Jón Þór Cool
mbk Harry Þór - sem tók að sér verkstjórn og röfl.