Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Jón Bjarni on July 07, 2010, 20:06:10

Title: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Jón Bjarni on July 07, 2010, 20:06:10
Kvartmíluklúbburinn kynnir:

King Of The Street.

Þetta er 4. keppni sumarsins.
Hún fer fram laugardaginn 17. júlí 2010

Keppnislýsing:

Þetta er keppni fyrir götubíla. Samþykkt eldsneyti er eingöngu það sem selt er á bensínstöðvum, ætlað til götuaksturs.
Tæki skulu standast bifreiðaskoðun á staðnum,minniháttar frávik leyfð á pústkerfum,t.d ekki nauðsyn að hafa hvarfakút.
Dekkjabúnaður bíla verður að DOT eða E merktur og ekki stærri en 30 tommur á hæð ef um ET street, drag radial eða aðra götuslikka að ræða.
Það verður fylgst með því að menn séu að nota rétt bensín.
Þetta eiga semsagt að vera bílar sem eru keyrðir öðru hverju um göturnar en ekki bara á kvartmílubrautinni.

Keppt verður í sex flokkum á bílum og fjórum flokkum á mótórhjólum.

Bílaflokkar.
Bílar með drifi á einum öxli keppa í 4 flokkum:
4 sílendra
6 sílendra
8+ sílendra yngra en 1985
8+ sílendra eldra en 1985

Fjórhóladrifsbílar keppa í einum flokk:
4x4 flokkur

Jeppar, trukkar og pikkupar keppa í einum flokk:
Jeppaflokkur

Mótorhjól:
Racerar
799cc og minni
800cc og stærri
Hippar
999cc og minni
1000cc og stærri

Einnig verða þessi flokkar keyrðir, en þeir gilda ekki til titilsins King of the street.


Outlaw street - keyrður 1/4 mílu
númeraskylda og allt leyft.
keyrt heads up og pro tree

Opinn flokkur keyrður 1/8
Allt leyft
Keyrt heads up og pro tree



Til þess að taka þátt þarftu að hafa:


Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur í klúbb innan vébanda aksturíþróttarnefndar ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda

Keppnisfyrirkomulag.

Keppt verður eftir fyrirkomulagi sem kallast Second chance.  Þetta kerfi er þannig upp sett að þú þarft að tapa tvisvar til að detta út. 
Skýringarmynd er hér:
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=51796.0
 
ATH: það er einungis keyrt 1 run í hverri umferð,  Þannig að ef þú klikkar í ferðinni þá getur það kostað þig sigurinn.
Keyrt verður á protree.

Allir flokkar verðir keyrðir þangað til að sigurvegar hefur fundist í öllum flokkum. 
Þeir sem lenda í fyrstu 3 sætum í hverjum flokki, keppa um titilinn King of the street í hjólaflokki og bílaflokki,
Það verður keyrt með allt flokks fyrirkomulagi
(Keppendum er raðað upp eftir besta tíma hvers og eins og er byrjað á því að stilla saman lakasta og næstlakasta tíma.
Sá sem tapar ferð er úr leik, sigurvegari hverrar ferðar heldur áfram á móti þeim sem næstur er í tímaröðinni.)
Sá sem sigrar þann útslátt verður síðan krýndur King of the street



Dagskrá:

Fimmtudagurinn 15. júlí

19:00 – 22:00   Æfing fyrir keppendur / opinn æfing

Laugardagurinn 17. júlí

9:30 – 11:00   Mæting keppenda
11:00      Pittur lokar
11:05      Fundur með keppendum
11:15 – 11:45   Æfingaferðir
11:45      Tímatökur hefjast
13:20      Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45   Hádegishlé
13:45      Keppendur mættir við sín tæki
14:00      Keppni hefst
16:25      Keppni lýkur
16:55      Kærufrestur liðinn
20:30      Verðlaunaafhending, staðsetning auglýst síðar
ATH: Dagskrá getur breyst ef keppendafjöldi verður mikill.


Upplýsingar um skráningu:

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:

jonbjarni@kvartmila.is

Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM

Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á Kvartmíluspjallinu.
Nánari upplýsingar í síma 8473217, Jón Bjarni

SKRÁNINGU LÝKUR föstudagskvöldið 16. júlí Á SLAGINU 22:00

Það fær enginn að keyra keppnisæfingu nema að vera búinn að skrá sig og borga keppnisgjöld.

Til að flýta fyrir skráningu þá er gott ef menn geta komið með þetta skjal útfyllt.
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?action=dlattach;topic=42742.0;attach=44370
ATH það þarf bara að fylla þetta út einu sinni fyrir æfingu og keppni.

Keppnisgjöld verða að vera greidd fyrir kl: 23:59 föstudaginn 16. júlí.
ATH.  Þetta er loka frestur á keppnisgjöldum nema eitthvað komi uppá hjá mönnum og þeir geti ómögulega greitt keppnisgjald á réttum tíma.
Enginn fer niður í pitt fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd.

Einnig ætla ég að biðja sem flesta um að reyna að millifæra keppnisgjöldin

Reikningsnúmerið er:
#1101-26-111199
Kennitala:
# 660990-1199

Keppnisgjaldið er 5000kr
KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA

ATH til keppenda.

Þeir sem mæta á keppnisæfinguna þurfa ekki að fylla út skráningarblaðið aftur.
ALLIR KEPPENDUR EIGA AÐ KOMA VIÐ Í FÉLAGSHEIMILINU OG FÁ DAGSKRÁ Á LAUGARDEGINUM ÁÐUR EN ÞEIR FARA NIÐUR Í PITT!!!!!!!!!!!

PITTUR LOKAR KL 11:00
ÞEIR SEM ERU EKKI MÆTTIR FYRIR ÞANN TÍMA FÁ EKKI AÐ TAKA ÞÁTT
ÞAÐ VERÐUR TEKIÐ HART Á ÞESSU Í ÞESSARI KEPPNI


Ef það eru einhverjar spurningar þá er ykkur velkomið að hringja í síma 847-3217, Jón Bjarni
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Buzy84 on July 16, 2010, 12:38:03
Jæja Jón,,,,,hvar er keppnislistinnnnnn :)
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Jón Bjarni on July 16, 2010, 17:47:55
það er skráningarfrestur til 10 í kvöld.. þannig að hann kemur þá :)
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Buzy84 on July 16, 2010, 18:28:01
það er skráningarfrestur til 10 í kvöld.. þannig að hann kemur þá :)

Okey :) hlakka til
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Jón Bjarni on July 16, 2010, 22:08:21
Keppandalistinn:

Flokkur   Nafn    Tæki   Merking
4cyl   Sigurjón M. Jóhannsson    Ford Sierra RS Cosworth    4/5
4cyl   Ólafur Rúnar Þórhallsson   Opel OPC   4/6
4cyl   Kjartan Dofri Jónsson   Nissan 240sx   4/7
4cyl   Ellert Hlíðberg   Nissan 200zx   4/8
4cyl   Ólafur Örn Karlsson   VW Golf GTI Edition 30   4/9
4cyl   Brynhildur Anna Einarsdóttir   Opel Astra 1.6 Turbo   4/10
         
6cyl   Jón Þór Bjarnason   Pontiac Fiero   6/5
6cyl   Sigurður Sören Guðjónsson   Nissan 300ZX TT   6/6
6cyl   Daníel Hinriksson   Toyota Supra   6/7
6cyl   Sveinbjörn Sveinbjörnsson   M3 BMW 1994   6/8
         
8cyl   Ingólfur Arnarsson   Corvette C6   8/5
8cyl   Sævar Þrastarsson   Corvette C5   8/6
8cyl   Ingimundur Helgason   2007 Shelby GT 500   8/7
8cyl   Sigursteinn U. Sigursteinsson   Ford Mustang   8/8
8cyl   Jón Borgar Loftsson   Mazda RX8 LSX   8/9
8cyl   Davíð Freyr Jónsson   Pontiac Trans Am '98   8/10
8cyl   Bæring Jón Skarphéðinsson   Corvette C5 402 N/A    8/11
8cyl   Kristján Stefánsson.   1993 Chevrolet Camaro Z/28.   8/12
8cyl   AXEL DARRI ÞÓRHALLSSON   CHEVROLET CAMARO 2002   8/13
8cyl   Hilmar Jacobsen   Saleen Sterling 2008   8/14
8cyl   Aðalsteinn Jón Símonarson   Mustang Cobra SVT 2003   8/15
         
MC   Ómar norðdal   Nova   MC/5
MC   Kristján Skjóldal   Camaro 1969   MC/6
MC   Friðrik Daníelsson   Pontiac Trans Am   MC/1
MC   Kristinn Rúdólfsson   Pontiac   MC/8
MC   Harry Herlufsen   Chevrolet Camaro 1979   MC/9
         
4X4   Einar skúli Skúlasson   Evo IX   X/5
4X4   Höskuldur Freyr Aðalsteinsson   Subaru legacy Outback   X/6
4X4   Þórður Birgisson   Mitsubishi eclipse gsx '90   X/7
4X4   Gunnbjörn Gísli Kristinsson   Subaru Impreza WRX   X/8
4X4   Gunnar Yngvi Rúnarsson   Subaru Impreza GT WRX   X/9

OF   Stigur Keppnis   Volvo 540   OF/5
OF    Finnbjörn Kristjánsson   Volvo krippa   OF/2
         
Outlaw   Daníel Guðmundsson   mmc evo   OL/5
Outlaw   Ari Jóhannsson   Chevrolet   OL/6
Outlaw   Rúdólf Jóhannsson   Pontiac   OL/7
         
Trukkar   Bragi Þór Pálsson   Dodge Ram   T/5
Trukkar   Sveinbjörn Hrafnsson   Mercedes-Benz ML 63   T/6

800+   Arnold Bryan Cruz   2008 kawasaki zx   H/5
800+   Ólafur Harðarson       Yamaha R1     H/6
800+   Þórður Hilmarsson   Hayabusa   H/7
800+   Hafsteinn Eyland   GSXR 1100   H/8
800+   Þórir Hálfdánarson   Susuki Hayabusa 2008   H/9
800+   Davíð örn ingason   Honda cbr 929   H/10
800+   Hallgrímur E Hannesson   Yamaha R1   H/11
800+   Björn Sigurbjörnsson   Suzuki GSXR 1000 Brock's   H/1
800+   Brynjar Smári Þorgeirssson   Suzuki Hayabusa 1300 2009   H/13
800+   Ingi björn sigurðsson   yamaha yzf 2007    H/14
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: stigurh on July 16, 2010, 23:23:37
Ég vil fara í outlaw. Er það flokkur þar sem nítró er leyft ?

Lét taka converterinn upp, sá var á síðasta séns. Vonandi heldur hann núna. Búin að færa hásinguna aftar um 6mm það ætti að gera trikkið fyrir dekkin. stærra nítró líka. Nú skal krippó fara góða tíma

Stígur Keppnis
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: 1965 Chevy II on July 17, 2010, 00:06:36
Outlaw er fyrir bíla á númerum.
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Moli on July 17, 2010, 00:24:14
shhiiii.. þetta stefnir í mergjaðan dag!!!!  8-)
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: ingvarp on July 17, 2010, 10:59:57
djöfulsins bömmer að þurfa að vinna allann hellvítis daginn  :evil:
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Daníel Már on July 17, 2010, 19:12:21
Til hamingju með sigurinn Frikki! Þú ert alveg rosalegur á ljósunum! :)

Vill einnig óska Daníel Hinriks á Toyota Supra til hamingju með 2.sætið !! bara flott hjá ykkur í dag strákar!
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Daníel Hinriksson on July 17, 2010, 19:31:40
Takk fyrir daginn, þetta var bara gaman.  8-)

Til hamingju með sigurinn Frikki, ég átti ekki break í svona ljósameistara  :mrgreen:
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Kiddi on July 17, 2010, 19:47:27
Takk fyrir mig... Vill óska Frikka til hamingju með titilinn  :)
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: 1965 Chevy II on July 17, 2010, 21:12:59
Takk fyrir daginn félagar,þetta var æðislegur dagur á kvartmílubrautinni,kóngurinn seigur á ljósunum í dag það hlýtur að vera einhver taugaveiklun :mrgreen:
Til hamingju með árangurinn allir saman.
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Buzy84 on July 17, 2010, 21:27:06
Takk fyrir frábæran dag allir, og til lukku að vera komin í 10sec Danni már :)
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Daníel Már on July 17, 2010, 22:06:17
Takk fyrir það. Mega sáttur að vera kominn í 10 second club! :)
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: SPRSNK on July 17, 2010, 22:32:36
Takk fyrir góðan dag!
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Einar K. Möller on July 17, 2010, 23:47:14
Meiriháttar dagur, allir til sóma, flottur árangur... Svona á þetta að vera. Til hamingju sigurverarar  =D>
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Daníel Hinriksson on July 18, 2010, 02:06:06
Svo vil ég líka þakka KK staffinu fyrir að halda glæsilegustu kvartmílukeppni sem ég hef séð  =D>

Keep up the good work!

p.s. já já, Lilja mín pullurnar voru virkilega fínar hjá þér!  :mrgreen:
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Moli on July 18, 2010, 02:45:47
Dagurinn var flottastur... mæli með að Einar Möller setji inn mynd af hvítu sólgleraugunum sínum eftir daginn í dag!  :mrgreen:

Til hamingju sigurvegarar!  =D>
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Einar K. Möller on July 18, 2010, 03:12:32
Maggi minn, bara fyrir þig skal ég taka mynd...  :wink:
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: 1965 Chevy II on July 18, 2010, 09:44:34
Ekki má gleyma að þakka starfsfólkinu fyrir,þau voru öll til sóma og stóðu sig frábærlega  =D>
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Jón Bjarni on July 18, 2010, 16:07:57
Þetta var frábær dagur á brautinn í gær :)

Ég vil óska öllum keppendum til hamingju með sína tíma og sigurvegurum til hamingju með sigurinn.
Ég þakka líka öllum sem komu að keppnishaldinu kærlega fyrir hjálpina,  Þetta vææri ekki hægt á ykkar :)


Kv
Jón Bjarni
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: 69Camaro on July 18, 2010, 18:10:29
Takk fyrir góða skemmtun, takk fyrir mig, vel að öllu staðið í keppnishaldi.  =D>  Rétt að þakka einni Ingó fyrir að mæta með sýningar pallinn á svæðið, lyfti þessu í nýjar hæðir.
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: bæzi on July 18, 2010, 19:43:05
mega flott keppni í alla staði bæði hjá keppsnishöldurum og keppendum.....


 =D>

kv bæzi
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Addi on July 18, 2010, 22:31:46
Þakka öllum fyrir frábæran dag á brautinni og vil um leið óska mönnum til hamingju með sína árangra =D> =D>
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Jón Bjarni on July 19, 2010, 01:05:11
úrslit:
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=50794.msg190887#msg190887
Title: Re: KING OF THE STREET - skránig er hafinn
Post by: Lolli DSM on July 19, 2010, 11:36:19
Takk fyrir frábæran dag allir saman. Virkilega flott keppni. Fullt af áhorfendum en samt hefði ég viljað sjá fleiri :)