Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Nóni on May 22, 2005, 13:43:07
-
Frábær keppni, smá hnökrar í keyrslunni en allir í góðu skapi þrátt fyrir frost og fellibyl. Alvöru kallar (og kellingar) sem ekki láta smá kulda stoppa sig í að keppa í kvartmílu.
N flokkur mótorhjóla að 1000cc
1. sæti Davíð S. Ólafsson á Suzuki GSXR 1000 nýtt íslandmet 9,74 sek. á 141 mílu.
2. sæti Ólafur Þór Arason á Kawasaki ZX 10 R
3. sæti Hrafn Sigvaldason á Suzuki GSXR 1000
T flokkur mótorhjóla að 1300cc
1. sæti Þórður Arnfinnsson á Suzuki GSXR 1100 (1255)
2. sæti Bergþór Björnsson á Suzuki Hayabusa 1300
14.90 flokkur
1. sæti Birkir Friðfinnsson á SAAB 9000 turbo ´89
2. sæti Ingvar Jóhannsson á Dodge Neon ´95
3. sæti Gunnlaugur V. Sigurðsson á Chevrolet Camaro
4-6. sæti
Marteinn Jóhannsson á Honda Civic ´92,
Þórir Már Jónsson á SAAB 900 GLE ´83,
Gunnar Siguðsson á VW Golf GTI ´87
OF flokkur
1. sæti Helgi Már Stefánsson á Camaro Pro Mod. 454
2. sæti Leifur Rósinbergsson á Ford Pinto, 383
3. sæti Stígur Herlufsen á Volvo PV 544, 454
4. sæti Kári Hafsteinsson á Dragster 468
Kv. Nóni
-
djöfull var þetta fucking óþægilegt að spyrna þarna i gær, ég lennti bara i endalausu spóli út af þessu helvítans traction grip olíu drasli :evil:
-
hvaða olíu drasli?
-
L O L
Þetta heitir Track Bite, ekkert skylt við olíu.
-
djöfull var þetta fucking óþægilegt að spyrna þarna i gær, ég lennti bara i endalausu spóli út af þessu helvítans traction grip olíu drasli :evil:
Já Marteinn, það tóku flestir eftir að þú áttir í verulegum vandræðum með að komast af stað. Bíllinn trakkaði mikið betur hjá þér á fimmtudagskvöldið. Hins vegar voru fleiri sem græddu á þessu og menn sem voru á vetrardekkjum komust vel af stað og var Birkir t.d. með 2,26 í 60 fet á SAABinum sem er mun betra en ég hef náð á honum áður og þá fór hann líka á 15,177 sek. sem er frábær tími á bílnum sem á að fara á 15,8 eða eitthvað svoleiðis. Slikkabílarnir græddu verulega á þessu og voru að trakka svakalega. Mitt ráð til þín er að fá þér annaðhvort slikka eða mjúk vetrardekk til að reisa á. Endilega komdu aftur og prófaðu, Hondan virðist vera að virka flott.
Kv. Nóni
-
já svona er þetta, en ég mun koma aftur, ég náði einum tíma í spóli þarna sem var 15,4 en ég náði á fimmtudagskvöldið var 15,063
kv
marteinn
-
Bridgestone Blizzac loftbóludekkin hafa komið vel út,mjúk og gripgóð.
-
hæ.
Til hamingju, þetta var flott kappakstursmót... Fínir bíla og spennandi keppni. 'I OF var þvílík spenna að maður hefði þurft að hafa naríur til skiftanna. Flottir tímar og menn að standa sig vel.
Voru ekki allir að taka sinn besta tíma.??
M.a. o. Væri hægt að setja hér inn "keyrsluna" á keppninni þ.e. hverja ferð fyrir sig með tímum hraða og viðbragði.??
Er það ekki eitthvað sem á að vera kökubiti úr tímatölvunni.??
En, Gamla stjórnin hefði samt haft betra veður.......
Og Nóni. þú ert fínn þulur.. En hvað er þetta með þig og Kópavog.???
Til hamingju Helgi Leifur Kári Stígur Davíð og restin af keppendum og starfsfólki..... flott mót. Takk fyrir mig og mína fjölsk.
-
OK en hvað með tíma og hraða, maður er nú alltaf svagur fyrir góðum tímum.
-
Ertu kaldhæðin eða hvað?
Aðrar naríur!!
Ég athugaði veðrið hjá gömlu og það var skúr!
Átt þú ekki að vera tilbúin með draggan?
Nóni, koma svo með tíma og alles infó.
-
Hæ.
Stígur minn halda legvatninu. Nei þetta var alveg frá hjartanu, það var ekki laust við að kæmu "fullnæginar dropar" af fögnuði við að sjá menn gera vel... (þar koma þessi naríuskifti)
Og ítrekað.: voru ekki allir í OF að ná sinu "personal best" á þessari keppni.???
N'ONI... hvar eru tímarnir, .60ft.reaction, og MPHið?? (sko, bara frekja í mínum)
Með fyrirfram þökk í hógværð og lítillæti.
PS. þetta með minn kappakstursbíl, kemur í öðrum pósti....
-
Mitt ráð til þín er að fá þér annaðhvort slikka eða mjúk vetrardekk til að reisa á. Endilega komdu aftur og prófaðu, Hondan virðist vera að virka flott.
Kv. Nóni
Samt ekki nota Nagladekk!!!!!! sem sagt skilið naglana eftir heima
-
Mitt ráð til þín er að fá þér annaðhvort slikka eða mjúk vetrardekk til að reisa á. Endilega komdu aftur og prófaðu, Hondan virðist vera að virka flott.
Kv. Nóni
Samt ekki nota Nagladekk!!!!!! sem sagt skilið naglana eftir heima
ég sem var að kaupa mer rosa nagladekk
á minn til að komast áfram eitthvað :lol:
-
Ekki þegar maður hleypir þér ekki inná brautina vegna áhættu um að skemma hana.. þá veit ég hvaða dekk ég mun skoða ansi vel :twisted: