Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Nonni on March 27, 2012, 20:31:53

Title: Boddy hlutir, Blazer K5 og aðrir Chevy Trucks
Post by: Nonni on March 27, 2012, 20:31:53
Mig vantar nokkra boddyhluti í stóra Blazer (1981) en finn ekki allt sem mig vantar á LMC.  Vitið þið um einhverjar góðar erlendar síður eða jafnvel partabíla hér heima sem hægt er að versla hluti úr?

kv. Jón Hörður
Title: Re: Boddy hlutir, Blazer K5 og aðrir Chevy Trucks
Post by: T/A on March 31, 2012, 11:45:17
Sæll,
Ég er með K5 '73 módelið í höndunum og er að leita að hlutum í þann bíl...sumt get ég notað er í bílum alveg fram yfir 1980.
Þannig að ef það er eitthvað sem þú vilt/þarft ekki að nota get ég kannski notað það.

Ég man eftir breyttum 1980 bíl sem var rétt fyrir austan Selfoss fyrir ekki svo mörgum árum. Þú getur kannski prófað að heyra í Ljónstaðarbræðrum og ath. hvort þeir viti um eitthvað.
Kv. Kristján Pétur
Title: Re: Boddy hlutir, Blazer K5 og aðrir Chevy Trucks
Post by: Nonni on March 31, 2012, 19:49:31
Sæll, ég á húdd af 1974 Blazer K5 sem ég gæti alveg verið til í að losna við, man ekki eftir neinu öðru í svipinn (á samt örugglega eitt og annað ef vel er leitað).  Hvað vantar þig?

kv. Jón Hörður
Title: Re: Boddy hlutir, Blazer K5 og aðrir Chevy Trucks
Post by: Benedikt Heiðdal Þorbjörn on June 06, 2012, 21:52:02
ég á lúguna fyrir bensínlokið NÝTT. Húddlæsinkuna NÝTT. Gúmí púðana ofan á brettin fyrir húddið. millibílstönk NÝ Helt 10 bolta GM.
Title: Re: Boddy hlutir, Blazer K5 og aðrir Chevy Trucks
Post by: Bjarki Hreins on June 07, 2012, 02:24:39
http://www.autobodyspecialt.com/cgi-bin/commerce.cgi?display=home (http://www.autobodyspecialt.com/cgi-bin/commerce.cgi?display=home)

Verslaði af þessum í 1978 k20 pickup og var sáttur með verð og gæði.  Veit ekki hvernig er að láta þá senda til Íslands þar sem ég var á svæðinu og greip stöffið með mér.

Kv. Bjarki Hreins.
Title: Re: Boddy hlutir, Blazer K5 og aðrir Chevy Trucks
Post by: Nonni on June 07, 2012, 08:46:04
ég á lúguna fyrir bensínlokið NÝTT. Húddlæsinkuna NÝTT. Gúmí púðana ofan á brettin fyrir húddið. millibílstönk NÝ Helt 10 bolta GM.

Þetta er allt í góðu lagi hjá mér en takk samt :)
Title: Re: Boddy hlutir, Blazer K5 og aðrir Chevy Trucks
Post by: Nonni on June 07, 2012, 08:46:44
http://www.autobodyspecialt.com/cgi-bin/commerce.cgi?display=home (http://www.autobodyspecialt.com/cgi-bin/commerce.cgi?display=home)

Verslaði af þessum í 1978 k20 pickup og var sáttur með verð og gæði.  Veit ekki hvernig er að láta þá senda til Íslands þar sem ég var á svæðinu og greip stöffið með mér.

Kv. Bjarki Hreins.

Takk fyrir þetta, er líklegast búinn að finna þessa hluti hér heima en veit af þessu ef það gengur ekki upp :)
Title: Re: Boddy hlutir, Blazer K5 og aðrir Chevy Trucks
Post by: motorstilling on June 23, 2012, 00:44:51
Ég á brettakanta fyrir þig!!   :D
Boggi
Title: Re: Boddy hlutir, Blazer K5 og aðrir Chevy Trucks
Post by: Nonni on June 24, 2012, 07:58:24
Ég á brettakanta fyrir þig!!   :D
Boggi

Hann er með þessa fínu brettakanta fyrir 44", en takk samt :)