Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: firebird400 on December 03, 2004, 17:24:22

Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: firebird400 on December 03, 2004, 17:24:22
hver er munurinn á venjulegum Camaro og Berlinetta
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: Jakob Jónh on December 03, 2004, 17:44:04
Sælir og hver er munurinn á z28 og venjulegum camaro?
Title: Berlinetta
Post by: Addi on December 03, 2004, 19:09:04
Ef minnið svíkur mig ekki þess mun meira þá er Berlinetta útlitspakki, áður Type-LT áður RS. Ég á '79 Berlinettu og hann kom með krómgrilli og ljósahringum og á álflegum og e-ð.
Ef ég fer með rangt mál, endilega leiðréttið mig. Z-28 er performance pakki, þ.e. önnur fjöðrun, kraftmeiri vél o.þ.h. eftir því ég best man.
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: JHP on December 03, 2004, 19:43:59
Er ekki berlinetta verkamanna camaro líkt og mustanginn er sportbíll verkamannsins.(http://www.live2cruize.com/phpBB2/images/smiles/biggrin.gif)
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: Svenni Turbo on December 03, 2004, 20:17:49
Quote from: "nonni vett"
Er ekki berlinetta verkamanna camaro líkt og mustanginn er sportbíll verkamannsins.(http://www.live2cruize.com/phpBB2/images/smiles/biggrin.gif)

Jú jú en 78 til 81 henti GM frændi smá krómi með svo gömlu kallarnir mundu kaupa þá, því engin annar vildi þá. :twisted:
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: einarak on December 03, 2004, 23:05:19
Quote from: "nonni vett"
Er ekki berlinetta verkamanna camaro líkt og mustanginn er sportbíll verkamannsins.(http://www.live2cruize.com/phpBB2/images/smiles/biggrin.gif)


 sport?  bíll?   mustang????
:)
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: Gummitz_ on December 04, 2004, 02:16:27
orginal týpan af bílnum er Chevrolet camaro sport coupe, þ.e.a.s af þessum árgerðum 79-80-81, berlinetta og Z28 eru síðan aukahlutapakkar rétt eins og SS sem fékst reyndar ekki á þessum tíma,
Z28 bíllin er með öflugri vélum (305 og 350) fengust með performance drifi og hlutfölum að aftan og 350thm skiptingu, z28 er með loftinntök á frambrettunum, skóp,kanta við brettin, og svo voru þeir með sona sitt look á innrétinguni,  z28 er sona "MUSCLE" útgáfan.

Berlinetta er sona "kellingar" útgáfan 6cyl, ekki með neinu skrautti á, meiri hljóðeinangrun las ég einhevrstaðar, og sona já meiri fólksbíll bara, ekki með  f41 fjöðrunakerfinu eða neinu skemmtilegu,
er samt ekki frá því að þessir bílar hafi fengist með 8cyl þótt 6 cyl væri grunnurinn, því samkvæmt vin code á berlinettu sem ég skoðaði einhverntíman þá var hún orginal með 267cid,

annars stóð þetta allt á gömlu síðuni minni..
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: Gummitz_ on December 04, 2004, 02:19:12
annars datt mig í hug að krukka aðeins í þessu eftir að hafa  hafa villst inná þennan póst og viti menn..

http://www.geocities.com/ivar_v8/forsida.html

hún virðist samt lokast ef það er of mikil straumur inn á hana

(http://www.geocities.com/ivar_v8/camaroinn_minn-3.jpg)
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: Ásgeir Y. on December 04, 2004, 13:32:08
nú er camaroinn hjá mér berlinetta og hann er orginal með 150 hp 305, digital mælaborði, rafdrifnum rúðum, t-topp og öllum pakkanum, hann er '84 módel
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: Binni GTA on December 04, 2004, 15:48:21
En var ekki Berlinettan alltaf 6 cyl ?
Title: ???
Post by: Addi on December 04, 2004, 18:32:41
Ég veit það ekki!!, minn kom með 305 (LG3) uppgefin 130 hross
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: sJaguar on December 04, 2004, 20:47:17
nei hann kom líka með V8
Title: berlinetta.
Post by: Einar Camaro on December 06, 2004, 11:42:55
Sælir.

Varðandi 3ju kynslóðina, þá komu 3 týpur af camaro fyrsta árið, '82.

Sport coupe, Berlinetta og Z28.

Sport coupe kom standard með 4 cyl. 2.5 l vél, v6 og v8 optional.
Berlinetta kom með 2.8 v6 standard, v8 optional.
Z28 kom með 4 hólfa 5.0 l v8 standard, cross-fire 5.0 optional.
Engin 350 fyrr enn '87 í IROC-Z.

Berlinettan var talsvert betri pakki en sport coupe'inn. M.a. með meiri hljóðeinagrun, mýkri fjöðrun og öllum mælum. Hann var skreyttur með gulllituðu berlinetta merki á afturstuðara og á hliðunum, auk merkis á stýrinu. Skúffurnar undir framljósum voru málaðar í öðrum lit og einnig rönd neðan á bílnum. þá kom hann með sér bólstrun í innréttingu.

Álfelgur voru standard annað en á sport coupe sem kom standard á koppum og með 5 arma stálfelgur sem option.

'84 kom digital mælaborð í berlinettuna eingöngu.

Hætt var að framleiða berlinettuna '86 og voru allir fídusar í þeim bíl breytt í LT aukahlutapakka fyrir sport coupe'inn '87.

Þannig að það er langt í frá að berlinettan hafi verið verkamanna útgáfan af camaro, allavegana í 3ju kynslóðinni.
sport coupe'inn var það, berlinettan var luxury útgáfan og z28 performance útgáfan. Sést líka ágætlega á verðlistanum fyrir t.d. '83 árgerð af camaro:

Camaro SC Coupe --$8,036.00
Camaro Brl Coupe --$9,881.00
Camaro Z28 Coupe --$10,336.00

Læt þetta duga í bili.

Kv, Einar.
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: firebird400 on December 06, 2004, 13:34:44
Flott innlegg, takk fyrir það :D
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: einarak on December 06, 2004, 19:23:16
þú gleymdir RS-inum (Rally Sport), sem að ég held kom þegar berlinettan hætti eða einhvað... allavega 89-90-90og 92....

  Hann var með graðara kit og stærri spoiler heldur en Iroc-Z...
  Bæði v6 og v8, meira veit ég ekki........
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: Binni GTA on December 06, 2004, 23:00:08
Sýndu okkur meira af þessum Camaro Einar minn !  :wink:
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: einarak on December 07, 2004, 01:07:39
Reyndar gamlar myndir... aðeins komin meiri mynd á þetta núna...
mælaborðið og stokkurinn á milli sætana komið í og svona...
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: ÁmK Racing on December 07, 2004, 08:15:50
Berlinetta var með öðrvísi grill ljótara og annað mælaborð og margt annað öðvísi.Ég á Z28 84 og vinur minn 85 berlinetta þei eru talsvert öðrvísi.K.v Árni
Title: Grill.
Post by: Einar Camaro on December 07, 2004, 09:32:06
Sport coupe og berlinetta komu með sama grilli, með 3 raufum í og park/stefnuljósin voru innfelld. Z28 kom síðan með öðruvísi grilli, engar raufar og park/stefnuljós í plani við rest.

Það má síðan deila um útlitið. Sjálfur á ég berlinettu og þegar ég var búinn að taka hann allan í sundur og var að taka hann í gegn, spáði ég mikið í hvort ég ætti að skipta um framenda þar sem mér bauðst slíkur af Z28 bíl. Niðurstaðan var að ég hélt mínum og sé ekki eftir því í dag, finnst hann bara töluvert flottari :)

Kv, Einar.

Ps. Nafni, hvernig var að koma þessum rpm mæli fyrir? Er hann hannaður til að passa beint í eða þurfti að mixa þetta, og þá jafnvel að klippa úr þarna bakvið?
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: einarak on December 07, 2004, 11:30:27
Bara stóri dósaborinn og hlífðargleraugun....  
það er nánast ekkert eftir af orgenal mælaborðinu þarna bakvið....
   
p.s. ég þarf svo að fara að renna til þín eftir lokinu í consolið fyrir manual shift...
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: old and good on December 14, 2004, 14:40:06
Ég á 3gen breytingabók þar sem farið er yfir allar árgerðirnar og hvað var nýtt og hvað var tekið burt og berlinetta er semsagt eina tíban með 3 raufum að framan og var fáanleg með 4 og 6 cyl vélum. 4 cyl vélin var frammleidd af pontiac og var kölluð "the iron duke" og var í rauninni ekkert annað en 5L gm vél sem var búið að skera helminginn í burtu.

berlinetta er einn af ódýrustu pökkunum þannig að segja má að þetta sé verkamannaútgáfa. það voru digital mælar í berlinettunum allavega sumum árgerðum og var þetta stundum kallað "star wars" pakkin. ég er samt ekki viss það gæti verið að það hafi verið hægt að fá berlinetta með minni 8 cyl vélini.

 útlitslega er berlinettan talsvert ljótari en hinar útfærslurnar að mínu mati sjáði t.d. munin á berlinetta og rs bíl..... berlinettan er eins og semi jeep!
 
(http://www.pepcars.de/gastgal/daniel/index-Dateien/image002.gif)

og svo rs
(http://www.inwave.com/schools/Craig/academics/teched/craig_auto/pics/RSfront.jpg)
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: Ásgeir Y. on December 14, 2004, 18:18:03
nú segi ég einsog áður.. camaroinn minn er orginal berlinetta en ég fletti upp vin kóðanum og komst að því að hann er orginal með 150 hp v8 þar að auki kom hann með digital mælaborði, rafdrifnum rúðum og t-topp hinsvegar hefur hann eflaust verið kitt laus og með þessum ljóta framstuðara en það er breytt í dag
Title: Hmm.
Post by: Einar Camaro on December 15, 2004, 15:38:57
Sæll Old and good.

Eins og ég sagði áður, er Berlinetta ekki eina týpan sem er með 3 raufum í grilli, heldur er sport coupe þannig líka.

Einnig er það svo, að V8 305 var option í Berlinettu, eins og áður sagði.

Berlinetta var síðan töluvert nær Z28 í verði heldur en sport coupe. En ég var akkúrat búinn að setja inn verðdæmi í fyrri pósti.

Svo er alltaf spurning hvort maður fari útí SUV breytingu..spái í þessu :D

Annars mæli ég með google.com ef menn eru í vafa með staðreyndirnar.

Kv, Einar.
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: vignir on December 20, 2004, 12:34:21
en hvenar kom IROC-Z fist á markað
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: Firehawk on December 20, 2004, 16:41:13
Quote from: "vignir"
en hvenar kom IROC-Z fist á markað


Hann kemur fyrst 1985 og sá síðasti kom 1990.  

Það er alveg magnað að sjá hversu margir auglýsa Camaro 1982 til 1984 sem IROC-Z. Einnig eru 6 sýlendra bílar ótrúlega oft orðnir að IROC. Þetta er eins og að auglýsa verkamannatýpuna af Lansernum sínum sem EVO  :roll:

-j
Title: Camaro Barlinetta ?
Post by: vignir on December 20, 2004, 18:46:59
okey þakka þer