Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Jón Bjarni on August 04, 2009, 22:04:05

Title: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Jón Bjarni on August 04, 2009, 22:04:05
Sælir Félagar Góðir

Nú er komið að fimmtu keppni sumarsins.
Þetta er 3. umferð íslandsmótsins, hún fer fram laugardaginn 15 Ágúst

Dagskrá:

9:30 – 11:00   Mæting Keppanda
10:00 – 10:45   Æfingarferðir
11:00      Pittur lokar
11:05      Fundur með keppendum
11:20      Tímatökur hefjast
13:20      Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45   Hádegishlé
13:45      Keppendur Mættir við sýn tæki
14:00      Keppni Hefst
16:25      Keppni lýkur
16:55      Kærufrestur liðinn
17:00      Verðlaunaafhentng

Til að taka þátt þarftu að hafa:

Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:

Flappinn@simnet.is

Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM

Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu.
Nánari upplýsingar í síma 8473217, Jón Bjarni

SKRÁNINGU LÝKUR Fimmtudagskvöldið 13. Ágúst Á SLAGINU 00:00

þegar skráningu er lokið verður EKKI hægt að skipta um flokk nema að flokkurinn innihaldi aðeins einn keppanda.

Þeir sem eru ekki vissir í hvaða flokk þeir ætla að skrá sig í:

Það er leyfilegt að skrá sig án þess að tilgreina flokk.
Þá getur fólk mætt á æfinguna og ákveðið hvaða flokk það á heima í.
Það fær samt einginn að keyra á þessair æfingu nema að vera búinn að skrá sig og borga keppnisgjöld

Dagskrá keppninar verður birt síðar
Mæting er á milli 9:30 og 11.
Á slaginu 11 verður hliðinu lokað og þeir sem mæta eftir það verða ekki með.

ATH til keppanda.
Þeir sem mæta á keppnisæfinguna þurfa ekki að fylla út skráningarblaðið aftur.
ALLIR KEPPENDUR EIGA AÐ KOMA VIÐ Í FÉLAGSHEIMILINU OG FÁ DAGSKRÁ Á LAUGARDEGINUM ÁÐUR EN ÞEIR FARA NIÐUR Í PITT!!!!!!!!!!!

Til að flýta fyrir skráningu þá er gott ef menn geta komið með þetta skjal útfyllt.
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?action=dlattach;topic=42742.0;attach=44370 (http://www.kvartmila.is/smf/index.php?action=dlattach;topic=42742.0;attach=44370)

Æfing sem er aðeins ætluð keppendum verður haldin Fimmtudaginn 13. Ágúst
Æfingin byrjar upp úr 19:00
 
Keppnisgjöld verða að vera greidd fyrir Kl: 00:00 Fimmtudaginn 13. Ágúst
ATH.  Þetta er loka frestur á keppnisgjöldum nema eitthvað komi uppá hjá mönnum og þeir geta ómögulega greitt keppnisgjald á réttum tíma. 

Enginn fer niðrí pitt fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd

Einnig ætla ég að biðja sem flesta að reyna að millifæra keppnisgjöldin

Reikningsnúmerið er:
#1101-26-111199
Kennitala:
# 660990-1199

Keppnisgjaldið er 5000kr

KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA


Keppendur undir 18 ára aldri þurfa skriflegt leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum

Ef það eru einhverjar spurningar þá er ykkur velkomið að hringja í síma 847-3217, Jón Bjarni
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: vidir orri hauksson on August 04, 2009, 22:50:19
Ég var að spá í hvaða flokk ég fer og þessháttar.  Ég er á alveg original 1000 súkku og var þess vegna að spá hvernig hjólum er skipt, þ.e. eftir vélastærð og einnig hvort ég keppi þá á móti breyttum hjólum með gaffallengingum og svoleiðs??????   er ég þá í I flokki standard  eða eru bara 2 flokkar eins og í götmílunni
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Anton Ólafsson on August 04, 2009, 22:55:48
Hérna
http://www.kvartmila.is/wiki/index.php/Reglur:M%C3%B3torhj%C3%B3l (http://www.kvartmila.is/wiki/index.php/Reglur:M%C3%B3torhj%C3%B3l)
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: vidir orri hauksson on August 04, 2009, 23:00:46
Thank you my good man :mrgreen:
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: ÁmK Racing on August 04, 2009, 23:55:20
Er þetta ekki lokaumferð íslandsmótsins?Kv Árni
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Jón Bjarni on August 05, 2009, 00:00:43
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: 3000gtvr4 on August 05, 2009, 22:03:31
Má ekki setja eitthvað um þetta á forsíðuna ekki allir sem skoða hérna
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Guzti on August 06, 2009, 11:20:56
Segjum sem svo að veðurspáin standist og það verði rigning alla helgina, verður keppnin þá færð fram á næstu helgi eða eitthvað lengra?
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Valli Djöfull on August 06, 2009, 11:40:06
Segjum sem svo að veðurspáin standist og það verði rigning alla helgina, verður keppnin þá færð fram á næstu helgi eða eitthvað lengra?
Er ekki muscle car dagur næstu helgi á eftir?
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Jón Bjarni on August 06, 2009, 12:12:57
Það verður tekin ákvörðun um hvort við frestum keppninni í hádeginu á föstudaginn.
Þannig að ef það gerist þá tökum við líka ákvörðun um hvenær við reynum að halda hana aftur.
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: bæzi on August 06, 2009, 12:21:58
Það verður tekin ákvörðun um hvort við frestum keppninni í hádeginu á föstudaginn.
Þannig að ef það gerist þá tökum við líka ákvörðun um hvenær við reynum að halda hana aftur.

Svört spá .......  :eek:
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Jón Bjarni on August 06, 2009, 16:03:05
Það verður að fresta keppnisæfingunni.

Við reynum aftur á morgun ef veðrið skánar
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: ÁmK Racing on August 06, 2009, 16:55:59
Úrkomuspáin á vedur.is er ekki svo slæm fyrir laugardag það verður að sleppa því annars get ég ekki keyrt.
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Jón Bjarni on August 06, 2009, 17:46:35
Úrkomuspáin á vedur.is er ekki svo slæm fyrir laugardag það verður að sleppa því annars get ég ekki keyrt.

þetta er að fara skánandi, það stefnir allt í keppni :D
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Kimii on August 06, 2009, 18:07:46
verðum að fresta allavega einni keppni... svona til að halda í hefðina
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Jón Bjarni on August 06, 2009, 18:30:33
verðum að fresta allavega einni keppni... svona til að halda í hefðina

nei þetta er svo leiðinleg hefð  :)
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: ingvarp on August 06, 2009, 19:21:32
þar er ég mikið sammála þér  :D

spáin er góð fyrir föstudagskvöld og laugardag :D

er æfing núna eða ?
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Jón Bjarni on August 06, 2009, 19:23:28
þar er ég mikið sammála þér  :D

spáin er góð fyrir föstudagskvöld og laugardag :D

er æfing núna eða ?

ef þú hefðir lesið aðeins ofar þá hefðiru vitað það :D
henni var frestað
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Jón Bjarni on August 07, 2009, 00:47:36
Keppandalistinn

Flokkur   Nafn    Tæki
OS   Samúel Sindrason   Subaru Impreza RS
OS   Tómas Hólmsteinsson   Honda Civic
OS   Einar Sigurðsson   Nissan skyline R32 GTR
OS   Kjartan Viðarsson   MMC Eclipse
OS   Þórður Birgisson   Mitsubishi eclipse gsx '90

RS   Stefán Örn Sölvason   BMW E30 318is
RS   Ingþór Magnússon   honda intergra turbo
RS   Alfreð Fannar Björnsson   Honda Civic Turbo

14.90    Jóhannes Rúnar Viktorsson    Mercedes Benz C320 BRABUS
14.90   Brynhildur Anna Einarsdóttir   Opel astra Turbo
14.90    Sæunn María Pétursdóttir   Mazda Miata

13.90   Heiðar Arnberg Jónsson   Ford Mustang

12.90   Axel Darri Þórhallsson   Chevrolet Camaro SS

GT   Sigursteinn Sigursteinsson   Ford Mustang GT 2006

MC   Þröstur Guðnason   Chevrolet Chevelle # SS 1970
MC   Geir Harrysson   1969 Chevrolet Camaro
MC   Ragnar S. Ragnarsson   Dodge Charger 1966

MS   Kristján Finnbjörnsson   NOVA
MS   Garðar Þór Garðarsson   Pontiac Trans Am ´81

SE   Elmar Hauksson   Plymouth Road Runner '69
S/E   Gísli Sveinsson   Dodge Challenger 1970

GF    Þórður tómasson   Camaró 1969
gf   Jón karl Grétarsson   1973 chevrolet vega
GF   Kjartan Kjartansson   Ford Mustang 1986

OF   Leifur Rósinbergsson   ford pinto
OF   Stígur A Herlufsen   Volvo Pv 544

Prufubíll.   Árni Már Kjartansson   Camaro Rs 632

   Sæunn María Pétursdóttir   Mazda Miata
      
Flokkur   Nafn    Tæki
I   Víðir Orri Hauksson   Suzuki gsxr 1000 árg 2005
I    Reynir Reynisson   Yamaha R1
I   Hafsteinn Eyland   Zx10r 2008
I   Björn B Steinarsson   Suzuki GSXR 1000 03
I   Stefán Þór Stefásson   Honda CBR 1000 RR
I   Pétur V. Pétursson   kawasaki zr1000 2007

J   Axel Thorarensen Hraundal   Kawasaki ZX10-R 2007

K   Guðjón Þór Þórarinsson   Kawasaki zx12R

E   Oddsteinn Guðjónsson   Yamaha R6

F   Ólafur H Sigþórsson      Yamaha R6
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: bæzi on August 07, 2009, 07:24:03
ég ætlað að vera með.....

Jón B sendi þér PM

kv Bæzi
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: AnnaOpel on August 07, 2009, 10:24:53
hvað er þetta prufubilar?  :oops:
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: sammidavis on August 07, 2009, 11:45:39
Verður keppninni frestað ? eða ekki  :-k
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Lolli DSM on August 07, 2009, 11:50:28
Keppni..? Eða ekki?  :-k
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Kimii on August 07, 2009, 12:01:40
keppni? ekki?
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: ingvarp on August 07, 2009, 12:02:33
sammála síðustu ræðumönnum :D

nenni ekki að keyra rúmlega 100km fyrir ekki neitt  :lol:
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Jón Bjarni on August 07, 2009, 12:23:41
Það er búið að ákveða að fresta keppinni.
Veðurspáin er það óhagstæð að við viljum frekar fresta heldur en að lenda í rigningu

Keppinn verður færð til laugardagsins 15 ágúst

kv
Stjórn KK
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Valli Djöfull on August 07, 2009, 12:26:57
Það er búið að ákveða að fresta keppinni.
Veðurspáin er það óhagstæð að við viljum frekar fresta heldur en að lenda í rigningu

Keppinn verður færð til laugardagsins 15 ágúst

kv
Stjórn KK
Hmm.. Fresta þá Muscle car deginum líka?
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: ingvarp on August 07, 2009, 13:01:52
DJÖFULL  ](*,)
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: Jón Bjarni on August 07, 2009, 13:03:15
Það er búið að ákveða að fresta keppinni.
Veðurspáin er það óhagstæð að við viljum frekar fresta heldur en að lenda í rigningu

Keppinn verður færð til laugardagsins 15 ágúst

kv
Stjórn KK
Hmm.. Fresta þá Muscle car deginum líka?

jamm fram á sunnudag
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: ingvarp on August 07, 2009, 13:49:08
úúú þannig 2 dagar á brautinni um næstu helgi = AWESOME !

verður kannski æfing á föstudeginum ?  [-o<
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Kimii on August 07, 2009, 14:00:23
afhverju ekki að reyna á sunnudaginn? þokkalegasta spá...

http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/hofudborgarsvaedid/#teg=urkoma
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Danni EVO on August 07, 2009, 16:04:03
verður ekki opnað aftur fyrir skráningar fyrst keppnini var frestað?
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Jón Bjarni on August 07, 2009, 16:11:59
verður ekki opnað aftur fyrir skráningar fyrst keppnini var frestað?

Jú það er opið fyrir skráningar
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Dropi on August 09, 2009, 05:33:07
like
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Lolli DSM on August 09, 2009, 18:49:44
like

Afþví að þú nærð þá að vera með??  8-)
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: ingvarp on August 09, 2009, 19:34:53
hvað er þetta prufubilar?  :oops:

x2 !  :)
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning - ATH æfingu frestað
Post by: 1965 Chevy II on August 09, 2009, 20:29:28
hvað er þetta prufubilar?  :oops:
Bara bílar ökumanna sem eru ekki að keppa og eru að prufa bílana.
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: ingvarp on August 09, 2009, 20:55:20
en segið mér...

afhverju er Sæunn María Pétursdóttir - Mazda Miata bæði að keppa og prufubíll ?  :-k
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Jón Bjarni on August 09, 2009, 21:11:26
en segið mér...

afhverju er Sæunn María Pétursdóttir - Mazda Miata bæði að keppa og prufubíll ?  :-k

það eru bara smá mistök hjá mér  :lol:
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: AnnaOpel on August 09, 2009, 23:28:34
hvenær verða þá æfingar í vikunni ? verður opin æfing og keppendur fá forgang á fimmtudeginum?
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Axelth on August 12, 2009, 07:23:08
Hafa keppendur bæst í hjólaflokkana ??
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Gixxer1 on August 12, 2009, 15:32:37
Sæll Axel.
Ég reikna með að koma um helgina.

Kv Bjössi Sigurbjörns
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Jón Bjarni on August 12, 2009, 15:55:55
Hafa keppendur bæst í hjólaflokkana ??

sæll

ég set ekki neinn lista á spjallið fyrr en skráningu er lokið (aftur)
en það eru eitthverjir búnir að bætast við.
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -FRESTAÐ TIL 15 ÁGÚST!!!
Post by: Jón Bjarni on August 13, 2009, 16:09:06
Keppnisæfingu er frestað til morguns,föstudags.

kv
Jón Bjarni
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Kristján Skjóldal on August 13, 2009, 22:25:14
jæja hvernig lítur nú út keppandalistinn  :?:
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Jón Bjarni on August 14, 2009, 00:04:04
jæja hvernig lítur nú út keppandalistinn  :?:

ég er að klára hann
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Jón Bjarni on August 14, 2009, 00:08:36
Keppandalistinn

Flokkur   Nafn    Tæki   Merking
OS   Samúel Sindrason   Subaru Impreza RS   OS / 11
OS   Tómas Hólmsteinsson   Honda Civic   OS / 6
OS   Einar Sigurðsson   Nissan skyline R32 GTR   OS / 5
OS   Kjartan Viðarsson   MMC Eclipse   OS / 7
OS   Þórður Birgisson   Mitsubishi eclipse gsx '90   OS / 8
OS   Guðmundur Þór Jóhannesson   MMc Lancer Evo   OS / 303
         
RS   Stefán Örn Sölvason   BMW E30 318is   RS / 9
RS   Ingþór Magnússon   honda intergra turbo   RS / 12
RS   Alfreð Fannar Björnsson   Honda Civic Turbo   RS / 69
         
14.90    Jóhannes Rúnar Viktorsson    Mercedes Benz C320 BRABUS   TF / 3
14.90   Brynhildur Anna Einarsdóttir   Opel astra Turbo   TF / 1
         
13.90   Heiðar Arnberg Jónsson   Ford Mustang   TE / 22
         
12.90   Axel Darri Þórhallsson   Chevrolet Camaro SS   TD / 23
12.90   Guðmundur Hjalti Sigurðsson   Mitsubishi 3000GT VR4   TD / 24
         
GT   Bæring Jón Skarphéðinsson   corvette z06   GT / 13
GT   Sigursteinn Sigursteinsson   Ford Mustang GT 2006   GT / 11
GT   Ingólfur Arnarson   corvette z06   GT / 12
         
MC   Þröstur Guðnason   Chevrolet Chevelle # SS 1970   MC / 70
MC   Geir Harrysson   1969 Chevrolet Camaro   MC / 69
MC   Ragnar S. Ragnarsson   Dodge Charger 1966   MC / 66
         
MS   Kristján Finnbjörnsson   Chevrolet Nova   MS / 8
MS   Garðar Þór Garðarsson   Pontiac Trans Am ´81   MS / 5
MS   Harry Herlufsen   Camaro´79   MS / 7
MS   Sigurpáll Pálsson   Chevrolet Nova   MS / 6
         
SE   Elmar Hauksson   Plymouth Road Runner '69   GF / 8
         
GF    Þórður tómasson   Camaró 1969    GF / 10
GF   Jón karl Grétarsson   1973 chevrolet vega   GF / 11
GF   Kjartan Kjartansson   Ford Mustang 1986   GF / 7
GF   Ari Jóhannsson    Chevrolet   GF / 8
GF   Kristján Skjóldal   camaro 1972   GF / 9
GF   Rúdólf Jóhannsson   Pontiac   GF / 12
         
OF   Leifur Rósinbergsson   ford pinto   OF / 1
OF   Stígur A Herlufsen   Volvo Pv 544   OF / 2
OF   Finnbjörn Kristjánsson   Volvo Krippa   OF / 4
OF   Örn Ingólfsson.   Dragster    OF / 7
OF   Gretar Franksson   Chevrolet Vega 71     OF / 6
         
Prufubíll.   Árni Már Kjartansson   Camaro Rs 632   P / 1
         
   Sæunn María Pétursdóttir   Mazda Miata   
         
Flokkur   Nafn    Tæki   Merking
I   Víðir Orri Hauksson   Suzuki gsxr 1000 árg 2005   I / 5
I    Reynir Reynisson   Yamaha R1   I / 6
I   Hafsteinn Eyland   Zx10r 2008   I / 13
I   Björn B Steinarsson   Suzuki GSXR 1000 03   I / 26
I   Stefán Þór Stefásson   Honda CBR 1000 RR   I / 9
I   Pétur V. Pétursson   kawasaki zr1000 2007   I / 10
I   Jón K Jacobsen   Yamaha R1 árg 2005   I / 8
         
J   Axel Thorarensen Hraundal   Kawasaki ZX10-R 2007   J / 10
J   Ólafur F Harðarson   Yamaha R1 ´07      J / 2
J   Björn Sigurbjörnsson   Suzuki GSXR 1000   J / 1
         
K   Guðjón Þór Þórarinsson   Kawasaki zx12R   K / 6
         
E   Oddsteinn Guðjónsson   Yamaha R6   E / 2
         
F   Ólafur H Sigþórsson      Yamaha R6   F / 45
F   Árni Páll Haraldsson   yamaha r6   F / 46
F   Agnar Fjeldsted   zx-6R   F / 5
         
M   Þórir Hálfdánarsson   Hyabusa   M / 66
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Björgvin Ólafsson on August 14, 2009, 00:33:55
Flottur listi, góða skemmtun um helgina!!

kv
Björgvin
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Kristján Skjóldal on August 14, 2009, 09:19:37
vá það var loks að men tóku við sér svo er bara næst að sjá hvort þeir mæti :Den þetta gæti orðið ein flottasta Isl keppni í langa tíð \:D/
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: baldur on August 14, 2009, 10:06:10
Já mér líst vel á þennan keppendahóp.
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: ingvarp on August 14, 2009, 10:51:21
þetta verður aðeins of góð keppni :D

Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Kristján Skjóldal on August 14, 2009, 12:35:03
jæja allt klárt og best að fara koma sér suður til ykkar í blíðuna sjáumst hressssssssss \:D/
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: 1965 Chevy II on August 14, 2009, 12:38:57
Þetta er svalt Stjáni  8-)
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Valli Djöfull on August 14, 2009, 12:45:30
Anskotinn, hrikalegt að missa af þessarri keppni  :cry:
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: SPRSNK on August 14, 2009, 12:55:22
Góða skemmtun!
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: 65tempest on August 14, 2009, 15:46:01
Heyrst hefur að ekki sé alveg á hreinu hvað hvalbakur sé
Heyrst hefur að grænlenskar sögukonur hafi ekkert vit á bílum og eigi að vera "bak" við eldavélina. :-({|=
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Dodge on August 14, 2009, 19:34:30
Já sæll!! alvöru mæting á síðustu metrunum!

djöfullegt að missa af þessu...
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Jón Bjarni on August 15, 2009, 22:09:21
ég þakka öllum fyrir skemmtilegan dag.

hér eru tímarnir frá æfingunni og keppinni

og keppandalistinn
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Einar K. Möller on August 15, 2009, 22:18:07
Þetta var alveg algóður dagur, flott mæting og vel af áhorfendum.

Og til hamingju Ari Jóhanns. með geðveikan bíl og árangurinn, þvílíka dómsdagstólið sem þessi bíll er  =D>
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: 1966 Charger on August 15, 2009, 22:43:08
Þetta var flott hjá ykkur starfsliðinu!  Þið eigið þakkir skildar fyrir að standa í þessu fyrir okkur keppendur og áhorfendur.  Vonandi verður morgundagurinn vel heppnaður líka.
Gaman að sjá að keppendum fer fjölgandi og tímarnir fara lækkandi. Féllu ekki 3-4 íslandsmet í dag?

Err
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: 1965 Chevy II on August 15, 2009, 23:09:36
Frábær dagur,bestu þakkir til starfsfólks og keppenda og til hamingju með metin,Raggi,Kristján F og Ari og jafnvel fleirri,Lolli átti rosa dag í miðjum 10 á yfir 140mph þvílíka apparatið. =D>
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Addi on August 15, 2009, 23:24:25
Takk kærlega fyrir frábæran dag, frábæra keppni, flotta tíma, til hamingju allir sem tóku met, bæði persónuleg og íslands, og Þórður átti þarna öflugasta prjón sem ég hef orðið vitni að.
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Elmar Þór on August 15, 2009, 23:44:04
Takk fyrir daginn allir, skemmtilegur dagur:)
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: 69Camaro on August 16, 2009, 01:04:05
Þakka öllum fyrir góðan dag, mér fannst vera góð stemming á svæðinu og staffið skilaði sínu :D

kv.
Ari
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudag
Post by: Lolli DSM on August 16, 2009, 01:34:06
Takk kærlega fyrir mig þetta var þvílíkur dagur! Takk starfsfólk, áhorfendur og aðrir keppendur.

Frikki: Þetta er orðinn svakalegur hraði á þessum eclipse... shii hehe
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: Kristján F on August 16, 2009, 01:36:28
Takk fyrir frábærann dag
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: stefan325i on August 16, 2009, 02:19:27
Geggjaður dagur, hefiði verið skemtilegra ef samkeppnisaðilinn hefði getað klárað en svona er þetta, bætti mig mikið í dag fór úr best 12.357 í 12.046 og bestu 60 fetin mín voru 1.680.
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: bæzi on August 16, 2009, 08:51:59
Vil þakka Staffinu enn og aftur fyrir ótrúlega vel unnin störf, dáist alveg af þeim sem eru að standa í að halda þetta aftur og aftur, virkilega flott. =D>

Dagurinn var góður hjá mér, keyrði fína tíma.
Sló 3x persónuleg met, þannig það er stöðug bæting.

best fór ég 11.53@120.6 með 60ft 1.65 og 1/8 7.39@97.6 13psi

keyrði 3x 11.5 þvílíkt sáttur  =D>
fór heim með bikar fyrir GT.......

nú er bara stefnan sett á 11.4 og fara síðan heim og panta boga  ](*,)

jú svo skrúfuðum við 20" götudekkin undir og ég prófaði 3 runn
fór best 12.3@120 60ft 2.2 1/8 8.2@96.5 45psi

Takk fyrir mig

kv Bæzi
Title: Re: 3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Post by: baldur on August 16, 2009, 13:25:25
Fáum við sem misstum af þessu að vita úrslitin?