Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Gruber on October 29, 2003, 18:49:28

Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Gruber on October 29, 2003, 18:49:28
vitið þið til þess að það hafi verið smíður Kit Car úr bjöllugrind? og veit ekki einhver um síðu þar sem svona bílar hafa verið smíðaðir (kit car ofan á grind af VW bjöllu??)  :roll:
Title: bjalla
Post by: TONI on October 29, 2003, 19:23:02
Sælir.
Ég mann eftir tveimur, annar með rauðu Ferrari boddýi var síðast til sölu í keflavík en hvar hann er niður kominn núna veit ég ekki, hel það hafi verið talað um hann í ferrari umræðu hérna fyrir stuttu. Hinn stóð Skipasundi eða þar rétt hjá lengi, svartur er þar ekki lengur að ég held. Svo skoðaði ég einn þegar ég var púki með pabba, hann var frekar kantaður, rauður einhversstaðar á suðurnesjonum, hef ekkert heirt um hann né séð síðan þá. Vona að þetta kveiki á einhverjum. Kv. TONI
Title: Kit bílar?
Post by: Þórður Helgason on October 29, 2003, 23:42:24
Ég hef séð eina þrjá þannig, og þeir voru allir hörmung, reyndar rauði Ferrari 246 týpan skást tilsýndar.  

Hinsvegar er þetta mjög einfalt hafi menn grunnþekkingu á bílum og nokk sniðugt, geti menn falið VW hljóðið eða ef mönnum er sama um það.

En menn láta blekkjast af fínum myndum í auglýsingur og halda að þetta sé ekkert mál, annað kemur yfirleitt á daginn.

Yfir 90% af svona kittum kemst aldrei á götuna skv. breskri könnun sem ég á einhversstaðar í mánaðartímaritinu "KitKar" sem ég keypti oft fyrir 20 árum þegar ég var að hugleiða svona hluti.
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Ásgeir Y. on October 30, 2003, 17:21:48
fyrir tveim árum var mér boðið eitthvað sona kit á bjöllugrind sem stendur uppá geymslusvæði.. veit ekki hverju þetta á að líkjast en þetta er með ljósalokum og vængjahurðum og eitthvað.. minnir að hann sé blár og öruglega enn falur.. þarf bara að skipta um grindina
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Moli on October 30, 2003, 21:10:36
Quote from: "Ásgeir Y."
fyrir tveim árum var mér boðið eitthvað sona kit á bjöllugrind sem stendur uppá geymslusvæði.. veit ekki hverju þetta á að líkjast en þetta er með ljósalokum og vængjahurðum og eitthvað.. minnir að hann sé blár og öruglega enn falur.. þarf bara að skipta um grindina

ég man eftir einum sem stóð fyrir 4-5 árum við íbúðarhús við Seljakirkju, hann var svartur með svona ljósum sem lokuðust ofan í húddið, og vængjahurðum, hann var frekar illa farinn þá.. getur verið sami bíll?
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Caprice78 on October 31, 2003, 15:47:40
ég hef séð þó nokkra bíla en allt voru það Dune Buggy bílar ...
Title: buggy
Post by: TONI on October 31, 2003, 18:43:14
Ef þú ert að tala um þennan "eina" sem mér vitanlega var til hér þá er búið að henda honum, það er til ein skel ný og ónotuð, mótonum var víst stolið fyrir mörgum árum. Kv. TONI
Title: svartur
Post by: kiddi63 on November 03, 2003, 00:48:26
"Hinn stóð Skipasundi eða þar rétt hjá lengi, svartur er þar ekki lengur að ég held." þessi sem vitnað er í hér er/var í eigu manns sem heitir Ólafur Helgi Sigþórsson og var sá að keppa á 600 hjóli á mílunni í fyrra eða árið þar á undan, og setti hann íslandsmet í sínum flokki. þig getir örugglega fundið hann uppi í Klúbb og fengið að vita hvað varð um þennan bíl.
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Deli on November 07, 2003, 15:01:34
Í sambandi við það sem TONI sagði, þá er þetta ferrari boddy á bjöllu grindinni að ég held komið hingað austur, alla leið á neskaupstað. Allavega er það ferrari boddy á bjöllu grind, hann er í uppgerð eins og er. Hann kemur að sunnan að ég held.
Title: g´ður
Post by: Chevy Pickup 88' on November 10, 2003, 08:42:21
ekki er möguleiki að fá myndir af svona kit car bjöllu ?
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: MrManiac on November 16, 2003, 12:08:06
VOru ekki soldil brögð á að smíoða "Kit-Car"Bílana á Grunni af Pontiac Fiero þar hefuru allavegna séns á skemtilegri mótor...
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Einar Birgisson on November 16, 2003, 12:17:58
Hvað ertu gamall Mr Maniac ? eða ertu kannski fullur ?
Title: Ferrari kit
Post by: kiddi63 on December 18, 2003, 07:22:41
Quote
Sælir.
Ég mann eftir tveimur, annar með rauðu Ferrari boddýi var síðast til sölu í keflavík en hvar hann er niður kominn núna veit ég ekki, hel það hafi verið talað um hann í ferrari umræðu hérna fyrir stuttu.


Ég fann einhverjar myndir af þessum rauða ef einhver getur tekið við þeim og hent hérna inn, er "Moli" ekki klár eins og alltaf? :lol:
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Moli on December 18, 2003, 20:49:57
jújú! ég skal pósta þeim inn.. eins og áður er e-mailið bilavefur@internet.is  :wink:
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Moli on December 21, 2003, 16:00:20
(http://www.internet.is/bilavefur/stuff/ferrari_dino.JPG)
(http://www.internet.is/bilavefur/stuff/ferrari_dino_1.jpg)
(http://www.internet.is/bilavefur/stuff/ferrari_dino_2.jpg)
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Twincam on December 21, 2003, 18:48:13
Þetta er töff!!  8)
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: vignir on December 21, 2003, 22:54:56
þetta er öruglega bill sem er á neskaupstað núna
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Saloon on December 22, 2003, 00:18:39
Quote from: "-=Moli=-"
Quote from: "Ásgeir Y."
fyrir tveim árum var mér boðið eitthvað sona kit á bjöllugrind sem stendur uppá geymslusvæði.. veit ekki hverju þetta á að líkjast en þetta er með ljósalokum og vængjahurðum og eitthvað.. minnir að hann sé blár og öruglega enn falur.. þarf bara að skipta um grindina

ég man eftir einum sem stóð fyrir 4-5 árum við íbúðarhús við Seljakirkju, hann var svartur með svona ljósum sem lokuðust ofan í húddið, og vængjahurðum, hann var frekar illa farinn þá.. getur verið sami bíll?

Nei ekki sami bíll.Sá blái er enn úti á geymslusvæði og reyndar er sá svarti þar líka
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Jón Þór Bjarnason on December 29, 2003, 01:23:25
Hér er einn sem á að vera ´58 model af porsche www.duffys.com undir foreign affairs
Title: Ferrari Dino
Post by: stedal on January 02, 2004, 01:11:30
rakst á grein í gömlu bíla blaði um daginn.. þar var þessi "rauði" Ferrari Dino boddý á bjöllugrind. svo var ansi athyglisverður þáttur á Discovery í haust "A car is born" þar var verið að smíða Kitcar frá grunni.
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Caprice78 on January 02, 2004, 14:52:06
hann er með svona þætti á hverju ári
A car is born
A helicopter is born
A airplaine is born
A motorbike is born
allveg mjög skemmtilegir þættir ...
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Speedy on January 29, 2004, 17:01:37
Já þið eruð að spá í þessu en það var minnst á porsche bíl sem að er til hérna en ég á hann vísst og gaman að segja frá því að hann verður á götuni í sumar :P
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Moli on January 29, 2004, 19:13:08
þá held ég að við verðum að fá myndir af honum!  :D
ef þú getur ekki póstað þeim máttu senda mér þær á bilavefur@internet.is
Title: kit car..
Post by: Siggi H on April 12, 2004, 23:46:46
þessi bíll er staddur hérna í Neskaupstað! eigandinn heitir Alfreð. það er verið að vinna í því að koma þessum bíl á götuna eftir því sem ég best veit. hef komið nokkru sinnum inní skúr til hans.
Title: kit car
Post by: Siggi H on April 12, 2004, 23:48:41
það er þessi rauði það er að seigja. alveg hræðilega ljót farartæki!!
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Deli on April 15, 2004, 17:04:14
Hann er mikið fallegri en Malibu... hehe!
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Steini on April 15, 2004, 23:01:43
Alvöru kit á ebay http://cgi.ebay.com/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=2472917222&category=29750&sspagename=STRK%3AMEBWA%3AIT&rd=1

Þá er bara að fá sér Westfield kit og setja ein eða tvo Hayabusu mótora með túrbínu í hann, og mæta svo upp á braut.

Hayabusa turbo kit: http://www.nlrsystems.com/pages/turbosys.html

Heimasíða Westfield : http://www.westfield-sportscars.co.uk/

Steini
Title: Kit Car á Bjöllugrind
Post by: Siggi H on April 16, 2004, 01:26:05
Quote from: "Deli"
Hann er mikið fallegri en Malibu... hehe!

hehe jóhann elís minn vertu ekkert að derra þig sem átt einhverja mözdu hræ sem rétt svo fer í gang. annars tek ég bara í þig!  :twisted: