Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Moli on June 04, 2007, 12:53:38
-
Í tilefni af eins árs afmæli Bílaklúbbsins Krúser, ætlar klúbburinn að halda veglega sýningu nk. helgi, eða dagana 9-10 Júní.
Sýningin verður haldin við Smábátahöfnina í Hafnarfirði í stóru 2000 m2 húsi að Fornubúðum 3 (við hliðina á húsnæði Mest)
Opnunartími sýningarinnar er sem segir:
Laugardagur frá 10:00-20:00
Sunnudagur frá 10:00-18:00.
Á sýningunni verða einnig nokkrir fornbílar til sölu.
Taka skal fram að aðgangur á sýninguna er ÓKEYPIS!
Takið nú góða skapið út úr skápnum, skiljið fýluna eftir heima og fjölmennið á glæsilega Bílasýningu nk. helgi!
VONUMST TIL AÐ SJÁ SEM FLESTA! 8)
Kveðja
Krúser hópurinn
Bíldshöfða 18.
-
Verða bara krúserar ?
-
Bílarnir eru líklega flestir í eigu Krúsera, en allir eru velkomnir á sýninguna sem er ókeypis, sérstaklega kvartmílumenn ef þeir fá ekki að keppa um þessa helgi :evil:
-
Ég mæti pottþétt á þessa sýningu hjá ykkur.
-
Lumar einhver á myndum? :)
-
Að gefnu tilefni og fyrir hönd Krúser langar mig að biðja þá sem taka myndir af sýningunni að setja þær myndir inn á netið EFTIR að sýningunni er lokið!
-
Engar myndir fyrr en eftir sýningu. :) :)
-
Frábær sýning hjá ykkur.
-
Flott sýning best að fá þetta beint í æð, ég þarf engar myndir frá þessu. 8)
-
Lowrider verður í dag 10.06.07 á sýninguni milli kl 15:00 og 18:00 og mun hann leika listir sýnar fyrir nærstædda.