Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Bílaklúbbur Akureyrar on September 11, 2011, 01:39:04

Title: Skráning í sandspyrnu - LOKAUMFERÐ
Post by: Bílaklúbbur Akureyrar on September 11, 2011, 01:39:04
Skráning í þriðju og síðustu umferð Íslandsmeistaramótsins í sandspyrnu sem fram fer á Akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar laugardaginn 17. September n.k. er nú hafin. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu ba@ba.is og lýkur skráningu mánudaginn 12. September kl. 23:59.-

Það sem koma þarf fram við skráningu er: Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb.

Keppnisgjald er krónur 4. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Vinsamlegast athugið að skráning telst ekki gild nema keppnisgjald sé greitt áður en skráningu lýkur. Reglur og flokka fyrir sandspyrnu má sjá http://ba.is/static/files/sandspyrna2011.pdf (http://ba.is/static/files/sandspyrna2011.pdf)

F.h. Spyrnudeildar BA

Stefán Örn Steinþórsson
dodge@ba.is