Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Bjarni Ólafs on January 24, 2010, 21:07:33
-
Bíllinn var orðin leiðinlega mikið skemmdur, skifft um topp part úr báðum sílsum, og fals fyrir afturgluggan, og rétt að byrja :-({|=
-
Mér finnst hann svo helvíti vígalegur og flottur hjá þér, gangi þér vel með hann.. er mjög veikur fyrir stórum vígalegum pikkum :P
Hvernig eru þessi dekk annars að reynast þér? Hvaða stærð er þetta og svo hvaða vél er í kvikindinu?
-
Já þakka þér fyrir það, en hann er á '44 og '21 á breitt, mér líkar mjög vel við þessi dekk þau eru hljóðlát á keyrslu og fín í snjónum, en það er 6,2 í honum 400 skifting og 208c new process millikassi 8-)
-
var hann byrjaður að riðga pínu ? gangi þér vel með hann.
-
Sæll, þetta lítur vel hjá þér, er sjálfur að gera svipað, á 81 ram sem þurfti að skipta um topp á, gera við sílsa, gólf, burðabita undir og fl en þetta er allt að skríða saman, það vantar fleiri svona jeppa á fjöll!.
-
Er að fara að byrja á svona uppgerð, er með Blazer K5 1981 sem er aðeins farinn að ryðga. Hann fer inní skúr fljótlega :)
-
Aðalatiðið í svona aðgerðum er að hafa ískáp í skúrnum sem er fullur af bjór
-
ég smíðaði mér svo sandblásturstæki og blés bílinn
-
Aðalatiðið í svona aðgerðum er að hafa ískáp í skúrnum sem er fullur af bjór
það er rétt :bjor:
-
Er að fara að byrja á svona uppgerð, er með Blazer K5 1981 sem er aðeins farinn að ryðga. Hann fer inní skúr fljótlega :)
Nice!!
-
ég smíðaði mér svo sandblásturstæki og blés bílinn
Og var þessi græja að virka vel? Hvað eru síðan plön fyrir þennan bíl? Ég ætla láta smíða fyrir mig veltubúr inní minn því húsið er bara á standi inní skúr sandblásið og búið að sjóða helling í það, gott að nota tækifærið. Síðan ætla ég að henda gamla bekknum inn og fá mér 4 punkta belti hugsanlega. 14 bolta atturhásingu og 60 framhásingu og reyna gera 318 mótor sem ég á þokkalega öflugan og slaka ofan í, 727 skipting og 205 millikassi. Þessi bíll verður síðan múraður með sterkum efnum, læt ábyggilega rhino-a helling. Breyttur fyrir 44"
-
já sandblástursgræjan er að svínvirka eftir að ég bjó mér til rakaskilju á tækin úr slökkutæki eins og tækið sjálft er úr, annars var rakinn frá pressunni vandamál, en planið fyrir lettann er að gera hann eins solid og hægt er, og hef ég verið að pæla í loftpúðafjöðrun undir hann, bara skuggalega dýr pakki, þægilegt að grilla undir hann fjöðrun þegar boddíið er ekki á grindinni nema rétt kofinn sjálfur :smt035
Frammendinn ný sandblásinn og sprautaður 8-)
nýi toppurinn kominn á bílinn
-
Lítur vel út. Er einmitt að hugsa um að láta púða að aftan í minn. Hvernig stífusystem eru að spá í? ég verð á gormum að framan með rr stífum.
-
já ok ég er að spá í fourlink
-
Geturðu nokkuð líst betur þessu sanblásturs græju hvernig hún er virka.Mér langar að smíða mér svona :wink:
-
já ekkert mál ég ætla að taka mynd að tækjunum mínum og lýsa þessu :)
-
ég fór niðrá slökkustöð og fékk kúta sem þola þrístinginn, en til þess að þetta virki þá þarftu að geta stillt bakþrísting á sandinn, til að ýta honum út, og svo krana til að skammta útúr tækinu og einn krana sem þú gefur lofttrukkið inná slönguna og hann hef ég alveg opinn þegar ég er að blása því þetta sníst um mislítinn sand en fullt af lofti :D ég sauð síðan alveg eins tæki utan á, stytti kútinn aðeins en ég læt kútinn taka rakann, sem er nauðsynlegt 8-)
-
ég kann því ágætlega að vera rikisstarfsmaður og tekið daginn í skúrnum 8-)
-
byrjaður að byggja upp hornin á húsinu 8-) grindin máluð og botnin á húsinu
-
Flott þetta hjá þér, hlakka til að sjá meira :)