Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: mustang67 on March 12, 2007, 23:57:25
-
Daginn.
Ég bý í Kópavogi og nokkrum götum fyrir ofan mig er sjoppa sem heitir Hvammsval, söluturn hlíðarvegi, vídjó rex og nonnabúð held ég haha. hefur heitið mörgum nöfnum, beint á móti býr/bjó maður. Sem á gullfallegan rauðann mustang með svartri blæju (sem er fantasíu bíllinn minn, myndi taka hann yfir hvaða bíl sem er). Veit einhver hver eigandi bílsins er og hvort hann hafi einhvern áhuga á að selja hann ? Elska þann sem finnur þetta út fyrir mig.. :roll: Til að vera nákvæmnari er þessi bíll frá árunum 1965-1969 alveg pottþétt.. Öruggur á því og ef mér skjátlast ekki er hann 65'.
Með von um svar. Atli
PS. Hann hefur staðið þarna síðan ég man eftir mér í kópavogi en er nýlega farinn. Veit einhver hvert hann fór?
-
Hann er ekki með blæju, hann er með svartan vinil topp.
Er þetta ekki hann??
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/mustang_64_66/normal_DSC01004.JPG)
-
ó. við smápattarnir þorðum nú aldrei að fara uppað honum en mér fannst þetta vera blæjubíll í fjarska.. jújú, veistu hvar hann er niðurkominn?
-
Þetta er mikið rétt hjá Leon.. hann er með svartan víniltopp og ef ég man rétt þá er hann með grindina á skottinu og dökkar rúður... stóð lengi við Hlíðarveg 28.
Þetta er sennilega bíllinn.....
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/mustang_64_66/normal_DSC01004.JPG)
Þar stóð líka lengi vel þessi bíll. 68 módel... nánast að hruni kominn.
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/mustang_67_68/dx-704.jpg)
Man ekki hvað eigandinn af bílnum heitir, held það sé sá sami og átti 68bílinn... en á sínum tíma þegar að ég var að reyna að hafa uppá eiganda þess bláa, þá komst ég eitthvað áleiðis með því að tala við konuna sem býr í þessu húsi og heitir Rósalind......... rámar nú samt eitthvað í að maðurinn heiti Guðmundur... en minnið er farið að bregast manni á þessum síðustu og verstu tímum.... :D
worth the try.....
held að ég sé ekki að skjóta mikið út í loftið.. en þið sem vitið betur leiðréttið mig þá bara..... :D
Og að sjálfsögðu er myndunum stolið af kænsku og kurteisi af www.bilavefur.net ... takktakk Maggi minn, jor ðe greitest.... :p
-
hva... voða delay á þessu hjá mér.... Leon bara búínn að bæta inn mynd í millitíðinni :D
-
Þessi rauði er alveg 100% sá sem ég er að tala um. Ég myndi gera hvað sem er til að fá að kaupa hann, jafnvel þó þetta sé ekki blæjubíll, hægt er að líta framhjá því. Takk fyrir skjót svör by the way.
En eins og ég sagði ég gæfi hægri hönd mína fyrir þennann bíl, ef einhver þekkir eigandann þá þætti mér vænt um að fá að vita hvernig væri hægt að hafa samband við hann, þessi blái er einnig algert augnayndi alveg sammála því.
Með krosslagða fingur að hann sé til sölu
Þakka, Atli.
-
Get einnig staðfest það að ef að ég myndi fá þennan bíl þá væri hann ekki bara að fara inn í bílskúr til að ryðga þar. Ó nei. Eigandinn getur verið viss um að það verði séð vel um hann :)
Meðal annars vitið þið hvaða árgerð sá rauði er ? & einhvað rámar mig í að hann hafi verið sjálfskiptur. Vitið þið líka hvort þetta sé einn af þessum mustöngum með verulega lítið pláss í aftursætunum ? Bara pæla :)
-
hehe... já það er gaman að sjá að menn/drengir eru áhugasamir að fá sér Ford, og ekki skemmir fyrir að að það sé Mustang.
En tja, sem eigandi af einu svona, þá get ég staðfest það að aftursætin eru varla nema fyrir krakka, ákaflega erfitt fyrir fullvaxinn mann að sitja þar, og tala nú ekki um ef að það sitja fullvaxnir menn líka framí... hins vegar er alveg ljómandi pláss fyrir þá sem sitja framí.
Þessi bíll er sennilega sjálfskiptur, þó svo að ég hengi mig nú ekki upp á það....
en eitthvað finnst mér ég nú lesa á milli línanna hjá þér að þú hafir ekki komið mikið nálægt þessum bíl til að skoða....
.... ef þú hefur áhuga á að skoða samskonar bíl (http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/mustang_64_66/normal_1966_mustang_R289.jpg), svona rétt til að átta þig á hvað um ræðir... þá er þér velkomið að bjalla og fá að skoða bílinn hjá mér, þá færðu þokkalega sýn á svona bíla...... svona allavega þanngað til að þú hefur uppá eigandanum eða finnur þér annan bíl t.d. á netinu...
Og þá bendi ég þér á að pæla líka í þeim kosti að flytja inn bíl, það þarf nefnilega ekki að vera neitt dýrara... þar sem vaskurinn af svona bílum er lægri en ella sökum þess að þeir eru orðnir 40ára gamlir og eldri...
En ef einhverjar spurningar eru, eða þá að þú vilt skoða samskonar bíl (sem er þó ekki til sölu) ... þá er þér velkomið að bjalla í mig hvenær sem er.
S: 863-5926 --- Olli
-
Ég er eigandinn af þessum bíl og þessi 68 var á mínum vegum þarna líka. En hann er ekki til sölu ég bý erlendis og fór með Mustanginn þangað þar sem ég eyði ekki miklum tima hér á landi en vonandi verður hann flottari næst þegar hann kemur á klakann. En Atli það er frábært að þú hafir áhuga á Mustang en held að þú verðir að finna annan. Ef þú vilt meiri upplísingar þá sendu mér bara e-mail eða 8493525 verð á landinu í 2 vikur kv.Bjarni
-
Það eru auglýstir 2 Mustang til sölu hér:
http://spjall.kruser.is/viewtopic.php?t=174
-
Já þakka Olli. Gæti þegið þetta boð þitt til að fá að líta á bílinn þinn til fræðslu :)
Bjarni, frábært að geta loksins náð í þig eftir þessi 5-6 ár sem við höfum dáðst að bílnum þínum :D þorðum einfaldlega aldrei að spyrja þig í persónu á þeim tíma :P En já leitt að heyra að þú viljir ekki láta þessa gersemi frá þér, þó að ég skilji þig vel..
Þessir sem að þú bentir mér á Gunnar eru báðir coupe. Ég er að leita mér að blæjubíl eða með vínyl top (eins og sá sem Bjarni á). Þakka samt ábendinguna.
Bjarni meðal annars, tókstu bílinn með þér til landsins núna ? S.s. ertu með hann á landinu eða er hann úti ?
-
Hey já by the way Bjarni.
Gætiru sagt mér svona Specifics um bílinn þinn í gamni.
T.d.
Hestöfl:
Afl mælt í CC:
??L/100:
Sjálfskiptur/Beinskiptur:
Stærð á upprunulegu felgunum (& Hvort þú hafir stækkað eða minnkað):
Svo einhvað sé nefnt.. Og bara það sem þér dettur í hug
-
Já þakka Olli. Gæti þegið þetta boð þitt til að fá að líta á bílinn þinn til fræðslu :)
Bjarni, frábært að geta loksins náð í þig eftir þessi 5-6 ár sem við höfum dáðst að bílnum þínum :D þorðum einfaldlega aldrei að spyrja þig í persónu á þeim tíma :P En já leitt að heyra að þú viljir ekki láta þessa gersemi frá þér, þó að ég skilji þig vel..
Þessir sem að þú bentir mér á Gunnar eru báðir coupe. Ég er að leita mér að blæjubíl eða með vínyl top (eins og sá sem Bjarni á). Þakka samt ábendinguna.
Bjarni meðal annars, tókstu bílinn með þér til landsins núna ? S.s. ertu með hann á landinu eða er hann úti ?
Þessir kallast fastback, ekki coupe :wink:
-
Já vá hvernig gat ég ruglast á þessu.. Nafnið stóð í mér bara :$ & Já meðan ég man Bjarni.. Komum í smá ímyndunarleik haha hvað myndiru selja hann á ef þú værir að fara að láta hann fara ? :P
PS. Langar svaðalega að koma einhverjum flottum nýjum svörtum gljáandi felgum undir mustanginn sem ég kaupi mér.. Mæliði á móti því ?
& ef maður kaupir svona vinyl top bíl, er hægt að breyta honum í blæju ? :P
hehe og kannski að skipta um stereo í CD spilara (sjálfsögðu myndi ég koma nýju kerfi fyrir með ekta bassa og svoleiðis með)
-
Hérna eru nokkrir bílar sem ættu að höfða til þín....
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/1966-Mustang-Convertible-289-Auto-PS-PT-1965-1967-1968_W0QQitemZ180093407717QQcategoryZ6236QQrdZ1QQcmdZViewItem
(http://i14.ebayimg.com/07/i/000/8c/62/ec9e_12.JPG)
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/1966-Ford-Mustang-Convertible-289-Rally-Pac-1-ownr-22yr_W0QQitemZ120093544264QQcategoryZ6236QQrdZ1QQcmdZViewItem
(http://i2.ebayimg.com/07/i/000/90/9a/a2aa_12.JPG)
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/1966-Ford-Mustang-Conv-289-AC-Power-Steering-Must-See_W0QQitemZ250093789925QQcategoryZ6236QQrdZ1QQcmdZViewItem
(http://www.onlyisuzu.com/~baysyn/8C197248-1sm.jpg)
-
Ekki elskaru mig nógu mikið til að reikna út kostnað með öllu handa mér :$?
-
Svona til viðmiðunar geturu reiknað......
Verðið í US-dollars * gengi = X
X * 1,7 = Kominn á götuna....
gæti kannski verið örlítið meira... en þetta ætti að vera nokk nálægt því.....
Og svona til gamans... Hvað ertu gamall ?
-
HEHE Búinn að bíða lengi eftir þessu og lækka vonandi ekkert í áliti vegna þess en ég er að verða 16.. Sumsé að byrja að læra... :oops: :oops: :oops:
-
En ertu sumsé að segja mér það að bíll sem kostar 20 þúsund dollara kosti 2,278 milljónir ?
Ef svo er þá verð ég að versla mér mustang undir 8 þúsund dollurum. Vá.. Bömmer :(
-
Þessi var til sölu hér á Akureyri. Veit ekki hvort hann var seldur.
Anton ætti að vita þetta?
(http://www.kvartmila.is/spjall/files/syning1...jpg)
(http://www.kvartmila.is/spjall/files/syning2...jpg)
-j
-
Veistu á hvað hann var að fara?
-
Mig minnir að það hafi verið sett 1 milljón á hann, en minnið er eitthvað farið að gefa sig á þessum síðustu og verstu...
Annars er svolítið síðan að hann var til sölu, þannig að hann er mögulega seldur.
-j
-
Þessi er ekki blæjubíll er það ? Já & ekki veistu neitt um eigandann ?
Sé það núna þetta er ekki blæjubíll haha. En já veistu ekkert um eigandann ?
-
Siggi er ekki búinn að selja hann, það var sett 1m á hann.
-
vill hann selja hann?
-
HEHE Búinn að bíða lengi eftir þessu og lækka vonandi ekkert í áliti vegna þess en ég er að verða 16.. Sumsé að byrja að læra... :oops: :oops: :oops:
Aldrei of snemmt að byrja að læra! Um að gera að spyrja sem mest og leita sér upplýsinga, annars lærir maður lítið! :wink:
-
Hehe meinti nú bílprófið sko haha :D En líka gott að geta spurt ykkur pros hérna um það sem ég er að pæla í :)
-
En já veit einhver hér hvernig er hægt að ná í eiganda mustangsins hér fyrir ofan. ?
& já er hægt að láta nýja svartar felgur undri svona bíl & skipta yfir í nýjann CD player?
-
auðvitað er hæ´gt að setja svartar felgur undir hann rétt eins og alla ara bíla.. og geislaspilara
-
hehe skrifaði þetta vitlaust. Margir eldri bíla hef ég heyrt taka bara felgum sérsmíðuðum fyrir þá tegund. En er hægt að láta bara svona nýjar svartar felgur undir þá ?[/img]
-
hehe skrifaði þetta vitlaust. Margir eldri bíla hef ég heyrt taka bara felgum sérsmíðuðum fyrir þá tegund. En er hægt að láta bara svona nýjar svartar felgur undir þá ?[/img]
Það er bara spes gatadeiling fyrir bílana. Þekki ekki gatadeilinguna á mustangnum, TD. Volvoinn er með 5x108
-
Okei takk :) En já, veit einhver hvort að þessi sem var á Akureyri sé seldur ?
-
Okei takk :) En já, veit einhver hvort að þessi sem var á Akureyri sé seldur ?
Nei
-
Okei takk :) En já, veit einhver hvort að þessi sem var á Akureyri sé seldur ?
Nei
Veistu hvort hann sé ennþá að selja hann og hvort ég geti náð í hann, og hvernig ?
-
http://bilasolur.is/Main.asp?show=CAR&BILASALA=28&BILAR_ID=203315&FRAMLEIDANDI=FORD&GERD=MUSTANG&ARGERD_FRA=1965&ARGERD_TIL=1967&VERD_FRA=700&VERD_TIL=1300&EXCLUDE_BILAR_ID=203315
Er á skrá hjá Toyota á Akureyri.
-
nau.. Ætla að kaupa þennan ef hann verður enn á sölu eftir sumarið. Sem ég held þar sem hann er búinn að vera til sölu þarna svolítið lengi greinilega!