Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: SPRSNK on April 18, 2010, 01:58:07
-
Ég hef notað V-Power bensín frá Skeljungi á minn bíl frá upphafi.
Ég ætlaði að fylla tankinn í dag þegar að ég uppgötvaði að það er ekki lengur til og ekki væntanlegt!!!
Hvað er til ráða og hvað kemst næst þessu bensíni?
-
98 oktan er næsti bær við, mörgum finnst það betra meira að segja, færð það hjá N1 og olís
-
Hvur fjandinn,ég sem ætlaði að fara að prufa það.Ég hef verið að nota 98okt hjá N1.
-
Það væri gaman að fá V-Powerið oktanmælt. Ætli það hafi verið gert hérlendis?
Ég finn mun á 98oct bensíninu og V-power bensíninu frá Skeljungi. Forsprengir frekar á V-Power, vinnur ekki eins vel á snúningi.
Bíllinn er dapur á 95oct en mjög góður 100oct blýbensíni. Vélin sem um ræðir er 390 FE Ford.
Er ekki bara að prófa 98oct og sjá hvort þú finnir einhvern mun?
Kv. Boggi

já þú segir nokkuð....
hef alltaf notað Vpower aldrei 98 okt....
ætla að prófa það núna :roll:
kv Bæzi
-
Jú, það er ekki annað í stöðunni :-(
Annað hvort er Skeljungur ekki nægilega burðugt til að halda birgðir af þessu bensíni eða hitt að yfirvöld eru ekki að gefa gjaldeyrisheimildir fyrir svona LÚXUS!
Ef svo er þá spyr maður sig hvort að 98 okt. birgðirnar þrjóti einnig???
Ég prófa 98 okt. a.m.k. á meðan það er til.
Tjúnnin sem ég nota m.v. 93 okt. bensín í USA - sú tala er fundin með því að taka MON-gildi og RON-gildi bensínsins og deila með tveimur. Skv. upplýsingaskjali sem ég fann um V-Power þá var þetta gildi nálægt 93 okt. Gott væri að fá uppl. um RON og MON í 98 okt. bensíni því sem fæst á Olís og N1 (get ekki fundið þetta á vefjum þeirra)
Ef þetta eru horfurnar þ.e. LÚXUS bensínið fæst ekki flutt inn þá spyr ég mig hvað verður um kappaksturíþróttirnar í sumar! :cry:

Það á að vera til um 9-10þ ltr af V power a shell uppa á höfða f. neðan ölgerðina, talaði við stelpurnar þar og þær sögðu að það væri að koma nýtt bensin 98 okt... :?: frá Shell
veit ekki meir....
Bæzi

Það má víst ekki birgja sig upp af bensíni er það?
-
Sælir
það hefur verið svo lítil sala á v-pover undanfarinn ár að ég get ekki ímyndað mér að það sé gott
bensín. Ég hætti að nota þetta 2002 og fór að nota 98 okt af því að það var mikið meiri sala á því. Svo að maður væri ekki að kaupa einhvað drasl. Í fyrra(09) dyno testaði ég 600cc hjól sem var á 95 okt skilaði 118 hp svo var sett á það v-power og það skilaði 113 hp sem sagt tapaði 5 hp við v-power (hjólið er með þjöppu 14.4:1)
Og það staðfesti það sem að margir höfðu sagt við mig og þar á meðal Bjarni og Gunnar sem eru að selja race bensínið.
Kv.Diddi
-
Þá er greinilega best að halda sig við 98okt.

já þetta er athyglisvert Diddi ....
98okt á eftir...
hvar er N1 með 98 ekki á öllum stöðum er það?
kv Bæzi
-
olís við skeifu hefur 98 okt þegar ég var þarna fyrir nokkrum vikum.
annars hefur eða hafði n1 98 okt á þessum stöðvum: Ártúnshöfða-Hringbraut-Lækjargata (hfj)
mig hefur alltaf grunað að vpower hérna heima er ekki 99 okt heldur 95 með okt. booster og hreinsiefnum.
ég vil E85 hingað ;)
-
ég fann mikin mun á imprezu gt og srt4 neon á 95 og svo vpower
-
Ég var alltaf að keyra á 98 frá N1 en var að lenda í því að það var ekki sama hvar það var keypt.
T.d. var bíllinn að forsprengja hjá mér ef ég keypti 98 hjá N1 á stöðinni í Hf.
Síðan skipti ég yfir í V-power og það hefur aldrei klikkað.
-
usss þið eru heppnir að geta bara farið á dælu og tekið bensín sem er hærra en 95 okt , vildi að að það væri svona þjónusta hér líka
-
Ég kannaði þetta á sínum tíma með V-Power bensínið. Skv. upplýsingum sem ég fékk frá UK, á þetta að vera mjög gott bensín og þar á bæ lofsamað. Sérstaklega var það talið gott á bílanna mína, eða Audi TT og Cosworth´inn. Ég kannaði einnig hvort oktantalan væri rétt og þessi góðu aukaefni sem eiga að vera í þessu bensíni og var það allt í lagi, en þetta var fyrir 2-3 árum. Ég hef bara keypt þetta bensín og hefur það reynst mér vel en það má vel vera að annað bensín sé jafngott eða jafnvel betra? Þá kaupi ég það bara. En setup´ið fyrir Cossie er 98 okt. En það er einkennilegt að þeir skuli hætta með V-Powerið m.v. markaðstarfið hjá þeim, en kannski er salan hér ekki næganlega mikil.
-
N1 selur 98 oktana bensín á eftirfarandi þjónustustöðvum og stendur ekki til að hætta því:
Ártúnshöfði
Ægisíða
Stóragerði
Gagnvegur
Fossvogur
Lækjargata
Háholt
Hringbraut
Aðalstöðin Keflavík
Hyrnan Borgarnesi
-
Svo var náttúrulega 100 okt til á dælu uppá höfða hjá Olís, þori ekki að fara með það hvort það er enn til, er fluttur úr bænum.
Reyndar frekar dýr dropinn, en var aðgengilegt á dælu þar og með sjálfsala.

það er nú eitthvað umdeilt með það bensín hvort það sé blý í því eða ekki.....
sumir vilja halda því fram að það sé blýlaust, en ég hef aldrei fengið neina staðfestingu á því.
-
Það er alveg klárlega blý í því. Púströrið verður fallega ljósgrátt að innan.
-
Mitt var fallega ljósbrúnt að innan,hörkubenzín
-
Spurðist fyrir og þetta er bensínið sem er þar.....
AVgas 100LL, low lead
Low lead version of AVgas 100. Still containing about 0.5 gr lead per litre of fuel, low lead is a relative term. This grade is listed in the same specifications as AVgas 100, ASTM D 910 and UK DEF STAN 91-90.
Venjulegt AVgas er með 1 gr lead per litre :)
-
Alltaf verið á V power en þurfti einu sinn á setja 95 á hann og hann gekk hálf ílla á því. 100 oct. með blýi, ekki má setja það á bíla sem eru gerðir fyrir blýlaust? Fer það ekki með alla sensora í rugl og óholt fyrir vélina? Nú er bara að prófa 98 hjá N1
-
Það fer ekki illa með vélina sem slíka en það blýið sest á skynjarana í pústinu og þeir skemmast með tímanum.
-
Ég var alltaf að keyra á 98 frá N1 en var að lenda í því að það var ekki sama hvar það var keypt.
T.d. var bíllinn að forsprengja hjá mér ef ég keypti 98 hjá N1 á stöðinni í Hf.
Síðan skipti ég yfir í V-power og það hefur aldrei klikkað.
þá er ég s.s ekki sá eini sem hefur lent í því..
-
V Power hefur reynst mér Vel á 500ccFjórhjól , 900ccvélsleða , bílana og 1000cc racer. Ég held þetta séu flökkusögur um að það sé ekki að gera sig
-
Ég verð að taka undir með Didda og fleirri aðilum sem benda á að V-Power er ekki að virka. Ég hef einnig dynotestað 95 - 98 - V-Power - LL100 og mín niðurstaða að 95 gefur mesta aflið á þeim vélum sem ekki þurfa hærra octane vegna þess að þær eru með háa þjöppu. hægt er að ná svipuðu afli úr 98 og LL100 með því að flýta kveikju vegna seinni brunahraða þess eldsneytis. Til gamans má geta að ég bauð innflytjendum V-Power að dynotesta það eldsneyti fyrir þá undir eftirliti fjölmiðla, eftir að hafa ráðfært sig við tæknimenn fyrirtækisins var það afþakkað :twisted:
-
Kynning á V-power?? http://www.kvartmila.is/wiki/index.php/Mynd:Image001.png
-
Kynning á V-power?? http://www.kvartmila.is/wiki/index.php/Mynd:Image001.png
Þetta er nýtt V-Power 95 okt. :wink:
-
Sumsé venjulegt 95 oktana bensín með einhverjum íblöndunarefnum sem þó ekki hafa áhrif á þjappþolið.
-
hljómar allavega ekki traustvekjandi, hver er munurinn á þessu og venjulegu 95 okt ? það væri gaman að sjá samanburð á 95 okt V power vs 99 okt V power....