Kvartmílan => Muscle Car deildin og rúnturinn. => Topic started by: Moli on July 05, 2011, 20:13:17

Title: MUSCLE CAR RÚNTUR ANNAÐKVÖLD!! 6. JÚLÍ
Post by: Moli on July 05, 2011, 20:13:17
Muscle Car deild Kvartmíluklúbbsins ætlar að sameinast í svokölluðum Muscle Car rúnti Fornbílaklúbbsins annaðkvöld, þann 6. Júlí, en hann er á dagskrá hjá Fornbílaklúbbnum einu sinni á ári. Mæting er við Bílabúð Benna annaðkvöld kl. 20.00 og lagt er af stað frá Benna kl. 20.30  8-) 8-) Við hverjum sem flesta til að mæta enda er von á blaðamönnum frá bílablaði í Svíþjóð til að fylgjast með bílunum og rúntinum.  =D> :wink:

Hér er fréttatilkynning af vef Fornbílaklúbbsins.
Quote from: fornbill.is
Kvöldrúntur - Muscle-Cars

Þetta kvöld eru muscle-car meira velkomnir en venjulega og má búast við að titringur verði í loftinu þetta kvöld. Mæting er kl. 20 við Bílabúð Benna (gamla staðnum) og hefst rúnturinn kl. 20.30 eða þegar ræst verður. Í tilefni af þessum rúnti mun 10 kr. afsl. gilda þegar Shell-kort er notað hjá Shell eða Orkunni. Von er á sænskum bíla-blaðamönnum í þennan rúnt með okkur, spáð er ágætis veðri og vonumst við til að sjá sem flesta. Leiðarlýsing (http://www.fornbill.is/ferdir/0607.html) og Google kort. (http://www.fornbill.is/ferdir/060711.kmz) (opnist með Google Earth)
[05.07]jsl


Hér er dagskrá og leiðarlýsing tekinn af vef Fornbílaklúbbsins:

DAGSKRÁ OG LEIÐARLÝSING (http://www.fornbill.is/ferdir/0607.html)
GOOGLE KORT (http://www.fornbill.is/ferdir/060711.kmz) (opnist með Google Earth)


Veðurspáinn er með eindæmum góð og hvetjum við sem flesta til að mæta!!  8-) 8-)

Title: Re: MUSCLE CAR RÚNTUR ANNAÐKVÖLD!! 6. JÚLÍ
Post by: Moli on July 06, 2011, 17:34:17
Minni á þetta, rjómablíða úti!!  8-)