Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: playah on May 31, 2009, 23:21:57

Title: Camaro 3rd gen leit..
Post by: playah on May 31, 2009, 23:21:57
Sælir ég er frekar nýr en ég er búinn að lesa þessa þræði fram og til baka og hef ótrlulega gaman af, takk fyrir það. Gaman að sjá þessa bílasögu þar sem maður var of ungur og missti af glæsi árunum.

En hinsvegar var ég á rúntinum áðan og rakst á bláan camma fyrir utan gamla nettó á akureyri og langaði að forvitnast aðeins um hann. Hann hefur greinilega séð betri daga en núna og langar að forvitnast hvort hann sé falur eða hvort hann sé á leiðinni í uppgerð.. var ekki með myndavél en fastanr var nb505

Þætti gaman að fá að heyra hver á hann og hvort hann sé til sölu, einnig hvort þið vitið um aðra 3rd gen í þessu ástandi sem gætu verið falir..

Er ekki að biðja um ókeypis uppflettingu bara hvort menn kannist ekki við gripinn =)
Fyrirfram þökk,
Óli
Title: Re: Camaro 3rd gen leit..
Post by: playah on May 31, 2009, 23:56:38
Fann reyndar svo mynd af honum inna bilavef,

http://www.bilavefur.net/album/displayimage.php?album=114&pos=79

þarna er allavega sami litur á honum fyrir utan töluvert ryð...
Title: Re: Camaro 3rd gen leit..
Post by: kobbijóns on June 01, 2009, 00:15:44
ég átti þennan fyrir nokkrum árum þá 6cyl sjálfskiptur. var nokkuð snirtilegur þá. heyrði að það væri komið í hann 350
Title: Re: Camaro 3rd gen leit..
Post by: Tóti on June 01, 2009, 00:29:59
Hann var með 350 seinast þegar ég vissi, arfa slakann 350 meiraðsegja

Einnig var andskoti mikið sparsl í vinstra afturbretti eftir einhverja tjónaviðgerð
Title: Re: Camaro 3rd gen leit..
Post by: Belair on June 01, 2009, 07:53:01
var sprautaður ca 94-97
Title: Re: Camaro 3rd gen leit..
Post by: ADLER on June 01, 2009, 12:54:51
Sælir ég er frekar nýr en ég er búinn að lesa þessa þræði fram og til baka og hef ótrlulega gaman af, takk fyrir það. Gaman að sjá þessa bílasögu þar sem maður var of ungur og missti af glæsi árunum.

En hinsvegar var ég á rúntinum áðan og rakst á bláan camma fyrir utan gamla nettó á akureyri og langaði að forvitnast aðeins um hann. Hann hefur greinilega séð betri daga en núna og langar að forvitnast hvort hann sé falur eða hvort hann sé á leiðinni í uppgerð.. var ekki með myndavél en fastanr var nb505

Þætti gaman að fá að heyra hver á hann og hvort hann sé til sölu, einnig hvort þið vitið um aðra 3rd gen í þessu ástandi sem gætu verið falir..



Er ekki að biðja um ókeypis uppflettingu bara hvort menn kannist ekki við gripinn =)
Fyrirfram þökk,
Óli


Þessir bílar heita CAMARO  :evil: ekki cammi