Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: moni on August 17, 2004, 19:08:08
-
Ég man eftir umræðu um daginn um hvaða bílar teljast musclecar eða ekki, en ég var að lesa bílablað í gær, Popular Hot Rodding, og þar var verið að tala um ´69 Camaro og fleiri bíla, með small block, og það var talað um þá sem muscle cars, og ég fór þá að spá...
Eru ekki bílar frá svona ´62 til ´74 með bbc kallaðir musclecars, eða eru það bara allir þessir gömlu amerísku sportbílar??? :)
-
ég las eitthvern tímann í, hvort það var Hot Rod, man það ekki, að það væru t.d. mjög skiptar skoðanir á því hvort að AC Copra væri muscle car, því að hún er tveggja sæta....
-
AC Cobra er ekki Muscle Car þar sem Cobran er BRESKUR BÍLL með U.S. VÉL.
Og ég held að það skipti engu máli hvort að bíll sé með SB eða BB í sambandi með það hvort að hann sé Muscle Car eða ekki.
Það eru eflaust mjög skiptar skoðanir um það hvaða bílar teljast með,
Persónulega finnst mér nóg að þeir séu gamlir amerískir KAGGAR, sem sagt engin teppi og/eða station dollur og aflleysingjar

Já ég er mjög nálægt því að vera sammála þessu!!! mjög :D
-
Vanalega var talað um að F-body væri Pony car. Ég held að Mustanginn hafi lennt í þessum flokk líka.
Kv. Jón H.
-
Musclecarclub.com (http://www.musclecarclub.com/musclecars/general/musclecars-definition.shtml) er með skilgreiningu á þessu ..