Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Gulag on November 15, 2007, 14:52:31

Title: Willys?
Post by: Gulag on November 15, 2007, 14:52:31
Datt í hug hvort einhver viti hvað hafi orðið um þennan?
Heyrði af honum orðinn svartur á Stokkseyri eða Eyrabakka árið 82~86?


þessi mynd er tekin 1978 pabbi karlinn átti þetta þá og gerði hann svona.
Title: Willys-Bjútí
Post by: Guðmundur Björnsson on November 15, 2007, 16:56:58
Þessi willys er ótrúlega flottur  :D  :D  :D  :D
Hann fær minnst fimm Eddur í verðlaun frá mér :)
en annað, hvaða mótor er í honum? og hann er greinilega ný uppgerður
á þessari mynd, já og hvaða ár er myndin tekinn?


gabb
Title: Willys?
Post by: Gulag on November 15, 2007, 17:07:48
þetta er/var 46 árgerð, með 327 sbc,
myndin var tekin á sýningu í Laugardalshöllinni 1978,

pabbi gerði þennan upp ca árið 1975-76, keppti á honum talsvert í torfærunni, þetta er held ég fyrsti svona gamall Willys sem var gerður upp hérna og breytt svona mikið, en það getur verið vitleysa í mér..

þegar hann keypti bílinn (í kópavogi) var hann með tréhúsið held ég, og meira að segja segir sagan að sláttuvélin hafi ennþá verið boltuð í hliðina á bílnum.

Við bræðurnir eigum slatta af myndum frá þessum tíma og ætlum að koma saman og skanna þær inn og koma þeim á netið..
Title: Willys?
Post by: johann sæmundsson on November 15, 2007, 17:40:10
Átti faðir þinn 69 Cobra Jet?

kv jói
Title: Willys?
Post by: Gulag on November 15, 2007, 20:24:10
já, það held ég bara
Title: Willys?
Post by: Valli Djöfull on November 15, 2007, 21:52:38
Fann eina af Willys sem pabbi átti, þessi mynd er tekin á Raufarhöfn '79 og þá var hann víst búinn að vera á einhverjum sýningum á Akureyri..  Ekki sami bíll sýnist mér en ég mundi eftir þessarri mynd í stafla af myndum við að sjá efstu myndina í þræðinum :)

(http://www.kvartmila.is/images/mynd10.jpg)
Title: Willys?
Post by: Valli Djöfull on November 15, 2007, 21:54:10
eitthvað öðruvísi þessi svo..
(http://www.kvartmila.is/images/mynd8.jpg)
Title: Willys?
Post by: Gulag on November 16, 2007, 10:24:39
er eitthvað hægt að sjá út frá númerinu hvað varð um gripinn?
Title: Willys?
Post by: Björgvin Ólafsson on November 16, 2007, 10:44:34
Quote from: "AMJ"
er eitthvað hægt að sjá út frá númerinu hvað varð um gripinn?


Ertu búinn að lesa þetta, geri ráð fyrir að þetta hafi ekki verið Pabbi þinn :roll:  :?:

http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/1687/38616

kv
Björgvin
Title: Willys?
Post by: Gulag on November 16, 2007, 20:33:10
jú, þetta er um hann, en það er ekki alveg rétt, bíllinn endaði ekki lífdaga sína þarna þó pabbi hafi gert það..

bróðir minn átti svo bílinn eftir að pabbi dó í 1 eða 2 ár..