Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: SPRSNK on February 17, 2014, 01:57:35

Title: 6 sekúndnaklúbburinn
Post by: SPRSNK on February 17, 2014, 01:57:35
Hverjir hafa keyrt kvartmíluna á tímanum 6,00 - 6,99 sek?

Þeir sem hafa keyrt á þessum tíma pósti slippanum sínum til staðfestingar  =D>

Er það nema einn sem hefur náð þessu takmarki og telst það því vera brautarmet?
Þórður Tómasson - RE Dragster - 572cid- 6,99 sek @ 198,24 mph - (24.07.2004)
Title: Re: 6 sekúndnaklúbburinn
Post by: Lolli DSM on February 17, 2014, 22:11:39
Maður þarf að vera rúmlega ruglaður til að skella sér í svona tíma og hraðan sem fylgdi þessu. Og ekki hefur malbikið á bremsukaflanum skánað eftir að þessi tími farinn :)
Title: Re: 6 sekúndnaklúbburinn
Post by: Racer on February 20, 2014, 00:55:02
Þórður fór líka útaf þar sem brautin var ekki nógu löng.. vísu fór hann aldrei lengra en með framhjólin útaf bremsukafla.

Title: Re: 6 sekúndnaklúbburinn
Post by: Moli on February 20, 2014, 06:54:55
Þetta var rosalegt að sjá.  8-)

Brautarmet HEMI Hunter 6,99@198 MPH (http://www.youtube.com/watch?v=Q5EoXv6YSX0#)
Title: Re: 6 sekúndnaklúbburinn
Post by: Kristján Skjóldal on February 20, 2014, 09:29:12
flottasta ferð sem farið hefur verið =D> og nú er ég kominn með nánast allt sem var í þessari vél og vona að þetta komi aftur til með að virka svona \:D/ já takk
Title: Re: 6 sekúndnaklúbburinn
Post by: Kiddi on February 20, 2014, 09:46:15
flottasta ferð sem farið hefur verið =D> og nú er ég kominn með nánast allt sem var í þessari vél og vona að þetta komi aftur til með að virka svona \:D/ já takk

Þá vantar ekki nema 75% í útgerðina  =D>
Title: Re: 6 sekúndnaklúbburinn
Post by: Kristján Skjóldal on February 20, 2014, 18:32:40
það má alltaf redda því :lol: fyrst að sumir hafa ekki hetur til að nota þennan blessaða dragga eða selja sem hángir bara upp á lofti hjá ykkur og gerir ekki neitt fyrir neinn :mrgreen: