Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: gstuning on April 16, 2005, 03:30:45

Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: gstuning on April 16, 2005, 03:30:45
það er til fornbílaspjall till þess,
Þetta á að heita kvartmílu spjall ekki "hvar er 120 skodinn sem pabbi var á 1976, hann var með 2hólfa og ansi sprækur, tók alskyns moskóvítsa og annað sniðugt, svo keypti pabbi 244 volvo og hann tapaði alltaf fyrir öllum líka mér á reiðhjólinu mínu, það var 10gíra en ég held að það hafi verið gírarnir sem voru að hjálpa mér

,,,, en svona til að halda í kvartmíluspjallshefðina, veit einhver hvar Toyota Corolla ´79 hans pabba er?Hún var rauð og tveggja dyra,,,,,,,, barn sinns tíma og svagga kaggi hérna einu sinni, ég man þegar ég var í barna stól hérna einu sinni í þessum líka rosalega kagga, tókum framúr bílum hægri vintstri, samt mest vinstri því að hinir voru parkeraðir

Endilega látið mig vita, ég ætlaði að gera hann upp og halda að ég væri spes  gera upp eitthvað sem öllum er sama um.....
 8)
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: siggik on April 16, 2005, 04:01:29
mér fynnst langbest að koma hingað og tala um / spyrjast fyrir um v8 bíla, hvernig væri þá bara búa til annan flokk sem er ekki bara kvartmíla og um sona almennt eitthvað bara, þarsem að það eru svo margir gamlir í hettunni hérna og fróðir menn ?
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: gstuning on April 16, 2005, 05:06:39
Ég er bara fullur, það vesrður mín afsökun framvegis í sumar
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: baldur on April 16, 2005, 10:50:33
Ég er innilega sammála þessu. Þetta er kvartmílu spjall. Ekki spjall um bíla sem ekki hafa keppt í kvartmílu og eru ekkert á leiðinni þangað.
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: Jón Þór Bjarnason on April 16, 2005, 11:22:24
Hvernig væri þá að þið sem eruð alltaf að byðja um að þetta verði alvöru kvartmíluspjall að þið færuð að tala um kvartmílu og létuð hitt eiga sig og kenna okkur hinum hvernig kvartmíluspjall á að vera. Nota bene það skrifar nánast enginn bara um kvartmílu á þessu spjalli en margir tala alltaf um að gera það.  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D  :D
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: Gizmo on April 16, 2005, 11:43:16
Sammála, aumkunarverð tilraun til að "glorifæja" þá sem "geta eitthvað" var gerð með sérdálki fyrir hardcore reisera hérna.  Ekki er nú lífið mikið á þeim þræði, enda lokað okkur hinum ræflunum sem getum ekkert og höfum bara áhuga á bílum......
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: kiddi63 on April 16, 2005, 12:00:09
Er þetta nokkuð Moskvitsinn sem þú varst að tala um ...????...... :lol:  8)

Nei nei, bara að fíflast en mikið rosalega er ég sammála þessu, svona dósaumræða finnst mér ekki passa hér.
Menn geta notað t.d. live2cruze til að skoða dollurnar, það er mikið af fallegum bílum í þeirri deild þar, og oft mjög skemmtilegt að lesa spjallið hjá þeim.
Og svo er spurning, væri nokkuð mikið mál að opna sér þráð hérna fyrir þetta, svona "ekki kvartmílutengt efni" ???
Auðvitað kemur uppá að menn þurfa að leita ráða með bilaðan frúarbílinn eða eitthvað og hverjir eru betri til að spyrja en einmitt alvöru kvartmílukarlarnir hérna, menn sem þekkja allavega húdd frá skotti. :D :lol:
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: siggik on April 16, 2005, 12:10:32
sammála þessu...
Title: spjall
Post by: Preza túrbó on April 16, 2005, 12:42:48
Hey com on þetta er almennt spjall þið getið ekki ættlast til að það sé eingöngu spjallað um kvartmílu. :lol:

auk þess hef ég ekki séð þann þráð sem fjallar BARA um kvartmílu.  :?
Án allra leiðinda strákar  :wink:  :wink:

Kveðja:
Dóri G. :twisted:
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: baldur on April 16, 2005, 12:48:38
Það er bara ekki nógu mikið að gerast í kvartmílu hér á landi til þess að það geti fyllt heilt spjallborð, því miður.
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: kiddi63 on April 16, 2005, 12:51:30
Quote
Hey com on þetta er almennt spjall þið getið ekki ættlast til að það sé eingöngu spjallað um kvartmílu.  

auk þess hef ég ekki séð þann þráð sem fjallar BARA um kvartmílu.  
Án allra leiðinda strákar  

Já en tókstu eftir því að þú ert inná síðu sem heitir: Kvartmíla.is ???
Og við erum inná spjalli sem er kallað "kvartmíluspjallið"  :D  8)

.. Og ég tek undir það : "Án allra leiðinda strákar"
Title: skoda
Post by: Vettlingur on April 16, 2005, 13:03:34
Hvað skyldi hafa orðið um Skodann hans Simma. Mér fannst þetta alltaf vera rosalega flottur bíll. Flottari en 442 Oldsinn sem hann átti. Þess má geta að myndin er tekin sennilega 1978 við Kleifarvatn nóttina þegar við vorum að prófa heimagerðu skóflurnar undir Kryppuna sællra minninga.
Title: Re: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: einarak on April 16, 2005, 13:29:30
Quote from: "gstuning"
það er til fornbílaspjall till þess,
Þetta á að heita kvartmílu spjall ekki "hvar er 120 skodinn sem pabbi var á 1976, hann var með 2hólfa og ansi sprækur, tók alskyns moskóvítsa og annað sniðugt, svo keypti pabbi 244 volvo og hann tapaði alltaf fyrir öllum líka mér á reiðhjólinu mínu, það var 10gíra en ég held að það hafi verið gírarnir sem voru að hjálpa mér

,,,, en svona til að halda í kvartmíluspjallshefðina, veit einhver hvar Toyota Corolla ´79 hans pabba er?Hún var rauð og tveggja dyra,,,,,,,, barn sinns tíma og svagga kaggi hérna einu sinni, ég man þegar ég var í barna stól hérna einu sinni í þessum líka rosalega kagga, tókum framúr bílum hægri vintstri, samt mest vinstri því að hinir voru parkeraðir

Endilega látið mig vita, ég ætlaði að gera hann upp og halda að ég væri spes  gera upp eitthvað sem öllum er sama um.....
 8)

Hver dó og gerði þig að stjórnanda?
Title: Einn voða sár.....
Post by: Nóni on April 16, 2005, 13:56:16
Quote from: "Gizmo"
Sammála, aumkunarverð tilraun til að "glorifæja" þá sem "geta eitthvað" var gerð með sérdálki fyrir hardcore reisera hérna.  Ekki er nú lífið mikið á þeim þræði, enda lokað okkur hinum ræflunum sem getum ekkert og höfum bara áhuga á bílum......

Vá ekki vera svona sár yfir að geta ekki eyðilagt þann þráð líka með röfli um ryðgaða dodsa sem verður að bjarga. Góðir hlutir gerast hægt og þess vegna finnst mér hard core þráðurinn hafa farið vel af stað með alls konar kvartmílutengdu spjalli. Ég til dæmis forðast að opna þræði sem heita "Novur á Íslandi" eða "hvað varð um...??"    
Og fyrir þig Gizmo (ef þú heitir það) þá er ekkert nauðsynlegt að bulla bara eitthvað til að setja inn á spjallið, það er fullt af fólki sem er til í að lesa ekkert heldur en að lesa bull, (silence is golden)

Kv. Nóni  (skrifar undir nafni)
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: Dodge on April 16, 2005, 15:01:41
já... menneru bara svona hella hressir herna :)
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: blobb on April 16, 2005, 16:43:40
ég get ekki séð að það drepi einhvern ef menn vilja forvitnast um einhvern bíl og þið sem eruð á móti því ættuð þá ekki að vera að opna þá pósta sem eru ekki um kvartmíluna (semsagt 90% af þeim :) ) þetta er vinsælasta síða um bíla á landinu að ég held Ekki bara vegna þess að hún er um kvartmíluna heldur út af því að það eru svo margir sem skoða þessa síðu daglega og margir þeirra vita margt um hina og þessa bíla þannig að ég sé enga ástæðu til þess að banna pósta sem eru ekkert tengdir kvartmílunni. Það er allavegana mín skoðun  :D
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: Nonni on April 16, 2005, 17:56:44
Eru menn ekki að tapa sér í smámunasemi?  Ég segji ekki að menn eigi að fara að spjalla um notaðar þvottavélar eða hvaða innkaupakerra er hagkvæmust, en er eitthvað að því að ræða um þá bíla sem menn eru með?

Ég hef verið í kvartmíluklúbbnum í nokkur ár (þó ég eigi eftir að borga gjöldin þetta árið  :oops:  ) ekki endilega til að keppa, heldur hef ég gaman af sportinu.  Mér hefur líka fundist þetta verðugur klúbbur til að styrkja.  

Ég á amerískan V8 bíl, sem ég hef ekki notað á brautinni.  Má ég þá ekki spyrja einhverja spurninga um svoleiðis bíla hér?  Verð ég fyrst að rúlla brautina til þess?  Hvern þarf að bera spurningarnar undir áður en ég sendi þær inn?

Er það stefna klúbbsins að menn hafi ekkert að gera í honum ef þeir rúlla ekki brautina?  Á ég þá að hætta að styrkja klúbbinn með því að borga gjöldin?  Ef svo er þá er hætt við að tekjur vegna félagsgjalda muni minnka til muna.

Það væri gott að fá þetta á hreint fljótlega, því ég nota þá 5000 krónurnar í eitthvað annað.

kv. Jón H.
Title: Menn krankí......
Post by: Nóni on April 16, 2005, 20:15:59
Quote from: "Nonni"

Það er ekkert annað.........menn bara krankí og með hótanir og svona. Já stofnum bara drusluklúbbinn.
Mönnum er að sjálfsögðu frjálst að tala um það sem þeim hentar þegar þeim hentar en ég er þó sammála þér með þvottavélar og innkaupakerrur. Menn mega líka tjá skoðanir sínar á þessari drusludýrkun og spunanum í kring um þær.

Ég skal reyna að sætta þessa hópa sem virðast skiptast í tvennt með undantekningum þó, það er nefnilega einn sem er búinn að tjá skoðun sína á þessu máli og er harður á því að þetta sé kvartmíluspjall en póstar samt á einn þráðinn um gamla ryðhrúgu sem er að drukkna í grasi. Menn verða að vera samkvæmir sjálfum sér  :D

Kv. Nóni
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: Jón Þór Bjarnason on April 16, 2005, 20:23:02
Ef klúbburinn er að hugsa um að styrkja sig þarf hann að hugsa vel og vandlega hvernig hann kemur fram við félagsmenn og aðra sem skoða þessar síður því svona skítkast er ekki vel liðið af nokkrum manni. Bara þetta að banna það að forvitnast um hina og þessa gömlu amerísku bíla er fáránlegt. Hitt er að þegar hefur komið fram kvartmílutengt umræðuefni og þar helst nefnt ökutæki framleidd í Japan þá tryllast þessir hardcore kvartmílu unnendur og vilja ekki sjá neitt nema amerískt.
ÉG BARA VARÐ AÐ KOMA ÞESSU ÚT ÚR MÉR.
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: MrManiac on April 16, 2005, 20:26:24
(http://www.96lt4.com/smileys/topicsucks.gif)(http://www.96lt4.com/smileys/sma5.gif)
Title: Re: Menn krankí......
Post by: Nonni on April 16, 2005, 20:43:56
Quote from: "Nóni"

Það er ekkert annað.........menn bara krankí og með hótanir og svona. Já stofnum bara drusluklúbbinn.
Mönnum er að sjálfsögðu frjálst að tala um það sem þeim hentar þegar þeim hentar en ég er þó sammála þér með þvottavélar og innkaupakerrur. Menn mega líka tjá skoðanir sínar á þessari drusludýrkun og spunanum í kring um þær.

Ég skal reyna að sætta þessa hópa sem virðast skiptast í tvennt með undantekningum þó, það er nefnilega einn sem er búinn að tjá skoðun sína á þessu máli og er harður á því að þetta sé kvartmíluspjall en póstar samt á einn þráðinn um gamla ryðhrúgu sem er að drukkna í grasi. Menn verða að vera samkvæmir sjálfum sér  :D

Kv. Nóni

Hvorki í vondu skapi né með hótanir.  Mér fannst menn bara fara full langt í að reyna að útrýma annari umræðu en um kvartmílubíla án þess að hugleiða hvað það þýðir í raun.  

Ef það væri rétt að innan Kvartmíluklúbbsins væri aðeins pláss fyrir hardcore kvartmílumenn (en ekki áhugamenn um aflmikla bíla) þá ætti ég að verja mínum peningum í annan klúbb en kvartmíluklúbbinn, og félagsmenn sem greiða gjöldin væru líklegast ekki fleiri en keppendur á hverju ári.  Ég efast um að nokkur okkar vilji sjá þá þróun.

Ég held því að menn ættu ekki að missa sig þó það sé rætt um gamlar Novur og svoleiðis dýrgripi hér á spjallinu, ekki viljum við hrekja menn úr þessum klúbb í aðra klúbba.

kv. Jón H.
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: Nóni on April 16, 2005, 23:01:17
Quote from: "Nonni_n"
Ef klúbburinn er að hugsa um að styrkja sig þarf hann að hugsa vel og vandlega hvernig hann kemur fram við félagsmenn og aðra sem skoða þessar síður því svona skítkast er ekki vel liðið af nokkrum manni. Bara þetta að banna það að forvitnast um hina og þessa gömlu amerísku bíla er fáránlegt. Hitt er að þegar hefur komið fram kvartmílutengt umræðuefni og þar helst nefnt ökutæki framleidd í Japan þá tryllast þessir hardcore kvartmílu unnendur og vilja ekki sjá neitt nema amerískt.
ÉG BARA VARÐ AÐ KOMA ÞESSU ÚT ÚR MÉR.

Ég held að þú verðir að losa eitthvað fleira út úr þér..........ehemm

Menn hafa rétt á sinni skoðun ef þeim er þetta spjall kært, svo lengi sem þeir ekki móðga eða særa aðra. Mér sýnist að það hafi verið komið við viðkvæmar taugar í einhverjum hérna, mér finnst það nú bara svolítið fyndið að þetta skuli vera efni í rifrildi þegar ekki er merkilegra sett fram en það sem Gunni gstuningur ropaði upp úr sér hér að framan.
Þetta sem þú segir um kvartmílutengt það ernú alveg ótrúlegt og til vitnis um það að þú lest eitthvað takmarkað af því sem hér er skrifað, hér hrósa menn túrbóinu í hástert þó að það sé í japönskum eða evrópskum fjölskylduvögnum. Við sem setjum fram eitthvað mílutengt erum bara dálítið þreyttir á því að þegar eitthvað svoleiðis kemur fram er óðar búið að drekkja því í einhverju ********** úhaaaaa þetta má ekki segja........

Jæja allavega, menn mega ekki gera í buxurnar af æsingi bara af því að einhverjir hafa aðra skoðun á þessu, það var enginn að niðurlægja neinn kalla neinn hálfvita eða svoleiðis, eða hvað?  Við björgum þessu bara með einu pennastriki og ræðum þetta svo ekki meir.

Búinn að bæta við einu borði sem menn geta leitað að þessum bílum og spjallað að vild. Biðst ég hér með afsökunar á því ef einhver hefur móðgast eða einhverjum sárnað í æsingnum.

Kv. Nóni, druslulegur
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: Ó-ss-kar on April 16, 2005, 23:45:21
hættið þessu rugli , fleiri umræður kalla á fleira fólk og gefur fleira fólki en sem á einhvað "tryllitæki" á að gefa séns að vera með og tjá sig
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: Ó-ss-kar on April 16, 2005, 23:47:03
ok þetta kom í einhverju rugli sem ég skrifaði , en þið verðið bara að skilja þetta , það er feel good time í gangi og kannski 2-3 bjórum of mikið :)
Title: Kvartmiluspjall
Post by: Jóhannes on April 17, 2005, 00:17:53
sko auðvita á að reyna að halda um fólkið og reyna gera þetta stæra og betra, það er fólkið með bíladelluna sem heldur lífi í þessu..
en ég segji það ekki ef fólk er að spjall hérna eitthvað þá á það að hefja umræður á réttum stöðum á spjallinu og á ekki að dreyfa þessu útum allt..
það er miklu skemtilegra að lesa þetta með smá reglu á hlutonum ...
svo mætti vera hægt að skrá sig í félægið á netinu ég nenni ekki að keyra í rvk en mig langar samt að vera félægi og fá að prufa brautina einhvern tíman og filgjast með og fá afslát hér og þar !..!!!

hættu nú alveg pepsi eða kók.... ,'o)
Title: Re: Einn voða sár.....
Post by: Anonymous on April 17, 2005, 17:12:06
Vá ekki vera svona sár yfir að geta ekki eyðilagt þann þráð líka með röfli um ryðgaða dodsa sem verður að bjarga. Góðir hlutir gerast hægt og þess vegna finnst mér hard core þráðurinn hafa farið vel af stað með alls konar kvartmílutengdu spjalli. Ég til dæmis forðast að opna þræði sem heita "Novur á Íslandi" eða "hvað varð um...??"    
Og fyrir þig Gizmo (ef þú heitir það) þá er ekkert nauðsynlegt að bulla bara eitthvað til að setja inn á spjallið, það er fullt af fólki sem er til í að lesa ekkert heldur en að lesa bull, (silence is golden)

Kv. Nóni  (skrifar undir nafni)[/quote]

Nóni minn sjáðu nú til, Kvartmíluklúbburinn væri ekki til og heldur ekki þessi spjallsíða ef ekki væri svona margir áhugasamir um gamla ryðgaða Dodge eða Novur.  Kvartmíluklúbburinn er miklu meira heldur en bara klúbbur fyrir hardcore kvartmílumenn eins og þú átt að vita. Ef þú vilt ekki opna og skoða þræði um hitt og þetta, þá er okkur alveg sama.  Kvartmíluklúbburinn er opinn klúbbur fyrir alla bíla- og hjólaáhugamenn. Kanski er nafn klúbbsins soldið villandi, en það er 30 ára gamalt og þarf ekki endilega að vera nákvæm starfslýsing viðkomandi klúbbs.

Til þess að þið Hardcore Racerar getið keppt á brautinni þarf KK peninga, þeir peningar verða til fyrir fjáröflun sem byggist helst á sýningu á uppgerðum ryðguðum dodsum, Novum, Musclecar bílum og sportbílum.

Þannig að þín eigin tilvitnun passar vel svona í lokin "Silence is golden" :D

Tóti
Title: Re: Einn voða sár.....
Post by: 440sixpack on April 17, 2005, 17:16:53
Quote from: "Nóni"
Quote from: "Gizmo"
Sammála, aumkunarverð tilraun til að "glorifæja" þá sem "geta eitthvað" var gerð með sérdálki fyrir hardcore reisera hérna.  Ekki er nú lífið mikið á þeim þræði, enda lokað okkur hinum ræflunum sem getum ekkert og höfum bara áhuga á bílum......

Vá ekki vera svona sár yfir að geta ekki eyðilagt þann þráð líka með röfli um ryðgaða dodsa sem verður að bjarga. Góðir hlutir gerast hægt og þess vegna finnst mér hard core þráðurinn hafa farið vel af stað með alls konar kvartmílutengdu spjalli. Ég til dæmis forðast að opna þræði sem heita "Novur á Íslandi" eða "hvað varð um...??"    
Og fyrir þig Gizmo (ef þú heitir það) þá er ekkert nauðsynlegt að bulla bara eitthvað til að setja inn á spjallið, það er fullt af fólki sem er til í að lesa ekkert heldur en að lesa bull, (silence is golden)

Kv. Nóni  (skrifar undir nafni)

Nóni minn sjáðu nú til, Kvartmíluklúbburinn væri ekki til og heldur ekki þessi spjallsíða ef ekki væri svona margir áhugasamir um gamla ryðgaða Dodge eða Novur. Kvartmíluklúbburinn er miklu meira heldur en bara klúbbur fyrir hardcore kvartmílumenn eins og þú átt að vita. Ef þú vilt ekki opna og skoða þræði um hitt og þetta, þá er okkur alveg sama. Kvartmíluklúbburinn er opinn klúbbur fyrir alla bíla- og hjólaáhugamenn. Kanski er nafn klúbbsins soldið villandi, en það er 30 ára gamalt og þarf ekki endilega að vera nákvæm starfslýsing viðkomandi klúbbs.

Til þess að þið Hardcore Racerar getið keppt á brautinni þarf KK peninga, þeir peningar verða til fyrir fjáröflun sem byggist helst á sýningu á uppgerðum ryðguðum dodsum, Novum, Musclecar bílum og sportbílum.

Þannig að þín eigin tilvitnun passar vel svona í lokin "Silence is golden"  

Tóti
Title: Úffff.....
Post by: Nóni on April 17, 2005, 17:20:50
Púhaaaa.......maður er bara bitchslappaður fram og til baka fyrir að reyna að sætta sjónarmið hinna og þessa, ég er búinn að búa til nýjan þráð fyrir þetta og nú getur hann sko blómstrað og það er vel.

Kær kveðja, Nóni (þinn)
Title: Re: Einn voða sár.....
Post by: Nóni on April 17, 2005, 17:32:11
Quote from: "440sixpack"

Til þess að þið Hardcore Racerar getið keppt á brautinni þarf KK peninga, þeir peningar verða til fyrir fjáröflun sem byggist helst á sýningu á uppgerðum ryðguðum dodsum, Novum, Musclecar bílum og sportbílum.

Þannig að þín eigin tilvitnun passar vel svona í lokin "Silence is golden"  

Tóti

Ergo: Druslurnar, nei sko kaggarnir halda uppi kvartmílunni, nýtt nafn: Kaggaklúbburinn.

Tóti, þú ert spaugari.

Kv. þinn Nóni (líka spaugari)
Title: hum..
Post by: Jóhannes on April 17, 2005, 18:09:49
ég veit bara eitt við verðum að sigra heiminn...
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: Nonni on April 18, 2005, 16:42:52
Ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg viss um hvernig menn vilja hafa þetta spjall eftir síðustu umræður.  

Samkvæmt því sem að mér skilst þá á helst ekki að tala um annað en kvartmílubíla á öðrum hlutum spjallsins.  Hér á svo að leita að gömlum bílum.

Almennt spjall er um spjall um kvartmíluna
Bílarnir og græjurnar eru um kvartmílugræjurnar

Ef mig langar til að spyrja um reynslu af ákveðnum götubílum, t.d. F-body með LS1 eða nýlegum Mustang hvert á ég þá að leita?

Ég var að dunda mér í mínum bíl og setti meðal annars sæti úr nýrri bíl í hann.  Ég sendi inn þráð um það undir bílarnir og græjurnar, og prýddi þann þráð myndum.  Mér sínist að þar hafi ég þverbrotið allar reglur, þar sem að ekki var efnið kvartmílutengt.

Ef við förum að túlka reglur þröngt þá er líklegt að þetta spjallborð deyji drottni sínum, og við förum á mis við áhugaverða hluti sem menn eru að gera í skúrum sínum.  Hluti sem strangt til tekið eru ekki kvartmílutengdir, en gætu nýst mönnum með kvartmílubíla (svo og öðrum).

Ég held því að við ættum að túlka nöfn og reglur spjallborða mjög rúmt, eins og verið hefur, því það er ómögulegt að stofna nýtt spjallborð um hvern einasta þráð.

kv. Jón H.
Title: Þeir sem eru að leita að bílum sem pabbar þeira áttu
Post by: maggifinn on April 18, 2005, 20:00:29
nær þætti mér að menn fylgdu því betur eftir að ekki sé verið að auglýsa alla skapaða hluti ekki tengda kvartmílu hér á spjallinu.
allir þessir hælúxar og passatar ættu að vera þurrkaðir út, í því liggur líka bandvídd sem væri betur varið í það sem menn sem eru að gera í sínum bílum einsog Jón H hér á undan bendir á..
Title: róni,dóni,prjóni,rjómi,ljómi,
Post by: Jóhannes on April 18, 2005, 23:25:27
það þarf bara einhvern sem flokkar póstinn :)
Title: .
Post by: NovaFAN on April 27, 2005, 14:40:17
í tilefni af 3 blaðsíðna löngu röfli um hversu ókvartmílutengt þetta spjall er að verða,

Menn röfla og röfla yfir því að það sé röflað svo mikið um hluti sem ekki eru kvartmíla eða neitt því tengt, en hvað tengist það kvartmíla, seinusti 3 blaðsíður hef ég ekkert séð sem tengist kvartmílu nema orðið kvartmíla, sem er búið að slá öll met í notkun á í einum þræði,

og ég veit, þetta kemur mér ekkert við, hef ekki einu sinni séð brautina, hvað þá lufsast hana á linernum mínum, býst við að ég reyni það í sumar svo ég verði ekki bannaður hér,

í hvaða flokk myndi ég lenda á 38" econoline með 6,9 dísil??
Title: Re: Einn voða sár.....
Post by: Packard on May 21, 2005, 20:43:34
Quote from: "Nóni"
Quote from: "Gizmo"
Sammála, aumkunarverð tilraun til að "glorifæja" þá sem "geta eitthvað" var gerð með sérdálki fyrir hardcore reisera hérna.  Ekki er nú lífið mikið á þeim þræði, enda lokað okkur hinum ræflunum sem getum ekkert og höfum bara áhuga á bílum......

Vá ekki vera svona sár yfir að geta ekki eyðilagt þann þráð líka með röfli um ryðgaða dodsa sem verður að bjarga. Góðir hlutir gerast hægt og þess vegna finnst mér hard core þráðurinn hafa farið vel af stað með alls konar kvartmílutengdu spjalli. Ég til dæmis forðast að opna þræði sem heita "Novur á Íslandi" eða "hvað varð um...??"    
Og fyrir þig Gizmo (ef þú heitir það) þá er ekkert nauðsynlegt að bulla bara eitthvað til að setja inn á spjallið, það er fullt af fólki sem er til í að lesa ekkert heldur en að lesa bull, (silence is golden)

Kv. Nóni  (skrifar undir nafni)

Já,ef þetta hefði verið dálkur um lúinn Saab 9000 Turbo sem þyrfti að bjarga  nú eða hvað varð um græna turbo Saabinn sem var happdrættisvinningur
þá yrðir þú örugglega fastagestur þar.

Kv