Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: CAMARO #1 on May 12, 2005, 15:26:36
-
Daginn strákar.
Ég ætlaði að athuga hvort einhverjir vissu hvernig tollar eru á bílum þegar þeir eru fluttir inn sem keppnistæki (græn númer).
Ég var búinn að heyra að það væri hægt að flytja bíl inn sem keppnistæki og það myndi fyrnast eftir fimm ár,eða þá gæti ég sett hann á hvít númer án þess að þurfa að borga nein "STÓR" gjöld. :shock:
Vitið þið hvernig þetta gengur fyrir sig? :lol:
-
til þess þarf apparatið að vera samþykkt sem keppnistæki af viðkomandi akstursíþróttafélagi. þ,e Kvartmíluklúbbnum eða LíA eftir því sem við á.
engir tollar að ég held nema virðisauki en tækið getur fengið götuskráningu minnir mig eftir 7 ár á landinu..
-
hvernig er það þá með Krossara?
-
maggifinn
Þakka þér fyrir upplýsingarnar. :D
Hvað þarf bíll að vera mikið breyttur svo KK samþykki hann sem keppnistæki? :roll:
Þarf að vera búr og ...........??
-
Það setur enginn krossara á númer og þar að leiðandi á þetta ekki við um þá
-
er þá engin tollur af krossurum? :shock:
-
jú það er sko hellings tollur af krossurum
-
ekki dugar að vera með bíl í MC flokk nema í honum sé að minnsta kosti búr.
Samanber Yenco Camaro Harrys sem fékk ekki og Mustangin hans Smára sem fékk.
öll mótorhjól meira að segja minimoto "leiktæki" fá sömu tollameðferð
svo er hægt að flytja inn bíla og tæki til "aðvinnslu". þá eru þeir að minnsta kosti vélarlausir eða ókláraðir að öðru leiti. reiknast þá einhvað lægri tollar á þá og skilar maður svo virðisauka af áætluðum vinnustundum sem fara í að klára tækið, sem annars fyrnist á 7 árum..