Hvernig er með reglur varðandi veltiboga og grindur í svokallaða götubíla? Ég virðist ekki finna neitt í sambandi við það í flokkareglum MC og RS, í aðalreglum er talað um að það eigi að skylgreina þetta í flokkareglum. Í reglum GF er talað um veltiboga ef farið er niður fyrir 11.99sek og veltibúr ef farið er niður fyrir 10.99sek. Mín spurning er hvort menn sem eru að fara á betri tíma í þessum flokkum þar sem ekkert stendur um þetta mál í flokkareglum séu undanþegnir því að setja viðeigandi öryggisbúnað í sína bíla??
Og hvernig er með reglurnar í þessum nýju flokkum, fá menn ekki færi á því að skoða þetta á þessum upplýsingamiðli kvartmíluklúbbsins (þeim eina) áður en sumarið kemur
Og plís, farið yfir reglurnar, þetta er uppfullt af villum og bulli. Og ég held líka að aðalreglurnar þarfnist skoðunar, svona að samræma þetta öllum þeim breytingum sem hafa orðið á flokkunum.