Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: firebird400 on March 04, 2010, 20:30:06

Title: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: firebird400 on March 04, 2010, 20:30:06
Sælir

Ég er að velta fyrir mér hve margir af þeim sem pósta hérna reglulega séu í raun meðlimir í klúbbnum.

Þar sem lokunin mun ekki ná til núverandi meðlima og meðlima seinasta árs þá datt mér í hug að við mundum setja okkur á blað, það þarf víst til að fá að vera inni eftir lokun og þar sem það er búið að loka þræðinum þar sem við áttum að "skrá" okkur með fullu nafni þá gætum við gert það hér.

Svo eingöngu meðlimir áranna 2009 og  2010 svara hér !

Agnar Áskelsson
meðlimur 2003-2009


Það stendur auðvitað til að skrá sig í sumar og vera með  :wink:
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Belair on March 04, 2010, 20:39:37
spjallið fra September 26, 2006
KK
2008-2009-2010 og ferð 100% líka 2011
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Nonni on March 04, 2010, 22:20:20
Man ekki hvenær ég skráði mig í KK, líklegast í kringum 2000 (+/- 2 ár).  Hef ekki verið félagi öll árin síðan þá en líklegast flest.  Greiddur 2009, ekki búinn að greiða 2010.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: 440sixpack on March 04, 2010, 22:26:55
Greiddur frá 2003-2009  Ekki viss hvort ég vilji greiða 2010 eftir þessa ákvörðun stjórnar.
Þórður Ingvarsson
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: 429Cobra on March 04, 2010, 22:39:27
Sælir félagar. :)

Hef greitt félgasgjöld í KK frá 1980-2010, þó svo að það eitt kom spjallinu ekki við!

Hins vegar er ég ekki sammála þessum gjörningi sem á að byrja 1. Apríl.


Kv.
Hálfdán.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Gilson on March 04, 2010, 23:50:14
sælir

Ég hef verið hér á spjallinu frá 2007 og það var spjallið sem fékk mig til þess að mæta upp á braut. Ég sá þar að menn óskuðu eftir starfsfólki og ég mætti bara og hef verið að hjálpa til síðan.
Ég hef verið í starfsliðinu uppá braut 2007(smá), 2008 og 2009.
Ég hef verið greiddur meðlimur 2008 og 2009 og mun borga gjöldin í ár líka.

kv Gísli Sigurðsson
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: 1965 Chevy II on March 05, 2010, 00:07:52
Sælir,
Ég hef verið hér eins og æxli frá fyrsta degi nánast og borgað félagsgjöld síðan 1997 eða 98'
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Einar K. Möller on March 05, 2010, 02:02:07
Greiddur 1994-2009..sjáum til með rest
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: AlexanderH on March 05, 2010, 07:04:52
Mun greiða mitt fyrsta ár núna 2010.
Það var spjallið sem kveikti minn áhuga á kvartmílu almennilega(hann var einhver fyrir en eftir að hafa verið hér og spjallað margfaldaðist áhuginn)
og mun ég mæta uppá braut í sumar á nokkrar æfingar og King of the Street keppnina.
Ég er þó algjörlega á móti þessari ákvörðun stjórnarinnar um að meina almenningi aðgang að spjallinu nema þeir séu í KK.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: stebbsi on March 05, 2010, 09:57:40
Ég verð að vera sammála honum Alexander uppá orð nánast. Ég skráði mig á kvartmíluspjallið með þeim tilgangi að spyrjast fyrir um bíl sem var auglýstur hér og í kjölfarið hef ég skoðað spjallið daglega síðan. Nú hef ég verið inná spjallinu samtals 13 daga, 18 tíma og 45 mínútur frá því ég skráði mig hér árið 2008 og hef lært heilan helling hér inná frá mjög hjálpsömum og skemmtilegum mönnum. Ég ætla að borga félagsgjöldin 2010 og mæta uppá braut en mér finnst klúbburinn hálfpartinn ekki eiga það skilið vegna þess að þeir eru að eiðileggja fyrir sjálfum sér að koma inn nýliðum. Ég og Alexander erum dæmi um að spjallið kom okkur í þetta og ég veit um fleiri.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: 1965 Chevy II on March 05, 2010, 10:06:55
Sælir,

Stebbi og Alexander,við þökkum ykkur fyrir að ganga í Kvartmíluklúbbinn og einmitt af þessum ástæðum sem þið nefnið hefur verið ákveðið að
fara aðeins öðruvísi í fyrirhugaðar breytingar en þær verða tilkynntar í dag.
 :)
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: 69Camaro on March 05, 2010, 10:16:59
Er búinn að vera viðloðandi KK frá upphafi og frá þeim tíma þegar engar heimilstölvur voru til hér á landi. Já að hugsa sér engar tölvur, einhvern vegin var það ekki svo slæmt eftir á að hyggja  :-k

Sennilega kallaður risaeðla af ungum mönnum í dag  :wink:

kv.
Ari Jóhannsson
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: bluetrash on March 05, 2010, 10:22:54
Hef verið virkur meðlimur spjallsins síðan 07-03-2008. Hefur komið sér vel við uppgerð á Camaro og smíði hans. Ætla að skrá mig í klúbbinn nú í ár og borga félagsgjöld þar sem ég ætlaði að fara að byrja að mæta á honum á brautina og hafa gaman. Og það er sama upp á teningnum hjá mér og þeim Alexander og Srebba. Áhuginn fyrir að mæta á brautinni vaknaði hér inná með spjalli og umræðum. Áður langaði mig bara að gera öflugan götubíl og pældi í raun ekkert í að keppa á braut.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: firebird400 on March 05, 2010, 12:17:25
Jæja þá eru komnir 12 manns sem verða á spjallinu fari svo að lokunin fari í gegn eins og áður var auglýst.

Það er ekki mikil von um að það verði líflegt spjall.

Verður gaman að sjá hverjar þessar breytingar eru sem þú talar um Frikki  :D

Endilega bætið ykkur við á þennann þráð ef þið eruð félagar frá því í fyrra eða meðlimir ársins 2010
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: eva racing on March 05, 2010, 16:05:19
hæ.
  það er nú búið að draga í land með þessa lokun að stórum hluta sem ég held að sé gæfuspor, til lukku með það.
 Þá er þetta opið fyrir gesti og gangandi, og opnað fyrir nýliðun í sportið aftur.
  En gjaldkeri kemur vafalaust með lista yfir gilda limi í félaginu.. einsog hefur verið undanfarin ár.
spurning hvort selja ætti "spjallkort" t.d. 1500 kr. fyrir "óinnlimaða"
   Þeir gætu þá fengið semifull réttindi, á allt nema kannski "harðagengið"
menn mundu senda gjalkeranum póst með kreditkortanr. og fá þá aðgang.
  Þá er þetta svona opið/lokað spjall.

bara hugmynd..
kv.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Sterling#15 on March 05, 2010, 22:59:40
Gekk í klúbbinn 2009 og fékk tvöfalda rukkun þetta árið (14.000) og borgaði hana með glöðu geði.  Flott að það sé búðið að breyta þessu þannig að allir geti tjáð sig.  Mér finnst reyndar sumir vera dálítið öfgafullir og segjast ekki ætla að greyða út af lokun spjallsins.  Ég hélt að KK væri meira en bara spjallvefur?  Snýst þetta ekki um kvartmílu og er það ekki það sem við erum að greyða fyrir að vera í kvartmílklúbbnum? Spjallið er bara lítill hluti af þessu en reyndar mjög skemmtilegur og að mínu mati á hann að vera opinn en menn verða bara að vera spakir og vera ekki í einhverju skítkasti.  Tökum okkur frekar á í því og þá líður öllum dýrunum í skóginum vel.  Hættið að kvarta og höfum frekar gaman af þessu og fáum svo bara útrás á brautinni í sumar. :lol:
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: ingvarp on March 05, 2010, 23:25:47
ég er nú ánægður með þennann milliveg hjá Stjórn klúbbsins :)

veit ekkert hvort ég skrái mig í klúbbinn eður ei, ég á ekki bíl til að keppa á en ég hef gaman af því að mynda þetta sport, spurning hvort maður græði ekki meira með því að vera skráður. Spurning hvað maður kemst líka mikið á keppnir, þarf að keyra eitthvað í kringum 300km til að komast á keppnina (heildarakstur fram og til baka) veit ekki hvað fjármagn leyfir, en ég er ánægður með stjórnina :)
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: 440sixpack on March 06, 2010, 22:29:28
............og núna greiddur fyrir árið 2010, eftir ákvörðun stjórnar.

Þórður Ingvarsson
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Racer on March 07, 2010, 15:09:03
Davíð Stefánsson greitt frá 2002 eða 2003-2010
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Jón Þór Bjarnason on March 07, 2010, 16:21:21
Kynntist fyrst klúbbnum hér á þessari síðu 2003.
Hef borgað félagsgjöld öll ár frá 2004.
Byrjaði í staffi þangað til Nóni plataði mig í að gefa kost á mér í stjórn sem ég sé ekki eftir.
Er að byrja 4 árið mitt í stjórn KK sem gjaldkeri.
Hef aðeins tekið þátt í einni keppni á Camaro 1993.
Ef guð og lukka lofa þá ætla ég að keppa í sumar á Pontiac Fiero 3800 supercharged.
Þetta er frábær félagsskapur sem maður kynnist ekki almennilega fyrr en maður mætir á félagsfundi á fimmtudögum.

KVARTMÍLUKLÚBBURINN Á 35 ÁRA AFMÆLI Á ÞESSU ÁRI.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Addi on March 07, 2010, 22:42:46
Sælir félagar, ég hef verið viðloðandi spjallið síðan einhverntíman í kringum aldamótin.
Greiddur meðlimur að meira og minna síðan 2003
Hef síðan verið að djöflast í staffinu síðan 2006
Hef ekki afrekað að keppa ennþá en það skiptir ekki öllu
frábær félagsskapur og skemmtun.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: SPRSNK on March 07, 2010, 23:07:53
Ég keypti Shelby GT500 árið 2006 svona óvart og til að láta gamlan draum ræstast. Ætlaði að geyma hann vel og vandlega í bílskúrnum og keyra hann á góðviðrisdögum. En eftir að hafa komið upp á Kvartmílubraut í ágúst 2008 með Mustang félögum var ekki aftur snúið .... síðan þá hef ég keyrt hann fleiri km á brautinni en á götunni.

Ég gekk í klúbbinn vorið 2008 og er búinn að greiða árgjaldið fyrir árið 2010

Hef mjög gaman að koma á brautina og keyra  :D - og á vonandi eftir að vera mikið á brautinni í sumar!

Nenni ekki að taka þátt í því að rífast við náungann hér á spjallinu - nota það svona eins og mér hentar hverju sinni!
Les þá þræði sem mér finnast áhugaverðir og tjái mig sjaldan.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Lödufurstinn on March 08, 2010, 19:16:43
Er búinn að vera greiddur meðlimur síðan 2008
þetta er frábær félagsskapur og frábær skemmtun að fá að vera með og taka þátt í þessu  :D
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Kimii on March 08, 2010, 20:41:44
búinn að greiða félagsgjöld síðan 07 og vinna á hverjum einasta viðburði síðan seinni part sumars 07

Frábær klúbbur og frábærir meðlimir og ég persónulega hef meiri áhuga á félagskapnum og klúbbnum heldur en á því að keyra brautina
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: Lolli DSM on March 16, 2010, 23:58:36
Ég hef greitt gjöld frá 2007 held ég og keppti í fyrra. Á ennþá eftir að greiða 2010.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: baldur on March 17, 2010, 14:39:23
Búinn að vera á brautinni við öll tækifæri síðan 2003, meðlimur í klúbbnum frá 2005.
Title: Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
Post by: SMJ on March 18, 2010, 10:35:06
Er félagi í ár eins og áður.
Styð gott málefni, ekki spurning!