Kvartmílan => Mótorhjól => Topic started by: 66MUSTANG on June 30, 2014, 13:02:29
-
Hvernig væri að einhver mundi fræða okkur útlendingana hvaða hjól tók 9 sec um helgina.
-
Eitt nýtt íslandsmet leit dagsins ljós í - það setti Björn Sigurbjörnsson í B-flokki mótorhjóla. Tíminn hjá honum var 9,016sek á 154,63mph.
http://kvartmila.is/is/frett/2014/06/28/urslit_ur_annari_umferd_islandsmotsins_i_kvartmilu_ (http://kvartmila.is/is/frett/2014/06/28/urslit_ur_annari_umferd_islandsmotsins_i_kvartmilu_)
-
Mig minnir að í kringum 2001-2003 hafi Viddi tekið á Suzuki, 8,52 sek á um 160 mílum, er það hvergi skráð?
Það væri áhugavert að vita hvort þetta sé besti mótorhjólatími á brautinni.
-
Viddi segist koma aftur þegar einhver tekur tímann hans...
Viddi er enn ekki kominn.
-
Væri gaman að sjá miðann frá Vidda til að sjá hvaða tíma þarf að keppa við :)
-
Viddi á besta tíman sem farið hefur verið á hjóli þarna
-
Já hef heyrt það líka. Vantar bara að sjá miða, tíma og hraða til fróðleiks :)
Kannski að klúbburinn eigi þetta á vísum stað?
-
nei það held ég ekki. en Viddi á hann kanski, ef það voru til miðar þá í prentara og eða bara til prenari þá sem var nú ekki sjálfsagður hlutur þá :mrgreen:
-
Já það væri gaman að vita hvaða tíma hann fór nkl á þessari hayabusu :) hlýtur að vera eitthvað til um eitthverstaðar
en eina sem ég finn er þetta og það stendur bara hraði þarna á hayabusu en enginn tími, en svo stendur í öðrum flokk(O) Viðar Finnsson Suzuki GS 1260cc Dragbike 8.620
http://spjall.kvartmila.is/index.php?action=printpage;topic=23972.0 (http://spjall.kvartmila.is/index.php?action=printpage;topic=23972.0)
svo bara þessi frétt frá desember 2003 en það er bara tekið fram að ekki hafi gengið sem best síðastliðið sumar á Hayabusu
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/768822/ (http://www.mbl.is/greinasafn/grein/768822/)
sé svo hérna aðra grein um að hann náði 8.63 en það er á grind sem er nú ekki beint götuhjól hehe
http://www.mbl.is/sport/akstur/2003/08/20/islandsmet_i_kvartmilunni/ (http://www.mbl.is/sport/akstur/2003/08/20/islandsmet_i_kvartmilunni/)
(http://www.mbl.is/tncache/frimg/dimg_cache/t260x260/1/57/157186A.jpg)
hefur semsagt ekkert götuhjól farið niður fyrir 9 sek hérna þá ??
.
-
nei það er ég nokkuð viss um það er rétt hjá þér. viddi var með 2 stk dragg hjól hann náði ekki svona góðum tíma á götu bussu. Bjössi er sá sem hefur farið hvað næst 8 sek á semi götu hjóli :lol: svo öruglega Raggi og Unnar á götuhjólum =D>
-
Þetta er alveg rétt hjá ykkur. Viddi tók þennan tíma á dragganum. Held að hann hafi átt best 9.55 á Busunni.
Ég átti best 9.509 á Súkkunni minni án gaffal lenginga ( 2005).
Fór 9.42 á 151.50mph með lengingar og á pumpu bensíni ( 2007).
Á þessum árum þá var trakkið í brautinni alltaf að hrekkja okkur. Annað hvort lenntum við í spóli eða prjóni.
Kveðja Davíð S.Olafsson