Kvartmílan => Spyrnuspjall => Topic started by: Jón Bjarni on May 01, 2012, 18:28:00
-
hæ
á fimmtudaginn á félagsfundi ætlum að ræða hvort við keyrum hard core útslátt í of eða 2 ferðir eins og hefur verið gert...
þeir sem hafa eitthverja skoðun á þessu er velkomið að mæta upp á braut svona upp úr kl 20:00
kv
Jón Bjarni
-
og mættu einhverjir?
-
það mættu allir helstu of menn og það var fallist á að prufa að keyra hard core útslátt í sumar
-
Ég hefði nú kosið að boðað hefði verið til fundar með öðrum hætti um svo stórt mál. Þar sem að ég ætla að fara keppa í OF er mér málið skylt og ætla þess vegna að hafa skoðun á þessu máli.
Opnaði netið síðastliðinn laugardag og sá þetta, það hefði nú ekki verið mikið mál að hringja í þessa fáu sem keppa í OF boða þá á fund.
Hver er hugsunin á bakvið þetta , sparnaður kanski - færri ferðir ? Eða eru menn hræddir við nýliðana :shock:
Eins og við vitum eru brautirnar mismunandi og hvað á að ráða vali á braut, besti tími í tímatökum eða sem næst indexi ?
það er ekki beint verið að bjóða nýja keppendur velkomna.
Var rituð fundagerð á þessum fundi svo hægt sé að sjá hverjir tóku þessa ákvörðu ?
Hef alltaf verið á móti að vera hræra í reglum og keppnisfyrirkomulagi korter fyrir síson
mbk Harry Þór
-
Sæll Harry,
Það var ákveðið að keyra eina ferð til útsláttar í OF í stað tveggja til þriggja ferða (sama fyrirkomulag og erlendis). Á móti kemur að það verður keppt um 3ja sætið líka í OF.
Þetta er gert til að vandamál varðandi kælitíma í OF verði ekki lengur fyrirstaða og að áhorfendur séu ekki farnir meðan beðið er eftir OF keppendum til að fara
úrslitaferðina ásamt fleirri atriðum.
Endilega heyrðu í Ingó og hann getur farið yfir málið með þér, það er fljótlegra og skilst betur en "þras" hér á netinu sem hver túlkar á sinn hátt :wink:
Kv.Frikki
-
Er þetta sem sé þras?
þetta er bara þessi fíni staður til ræða þessa hluti og eftir því sem skilst bara sýnilegur meðlimum. Sumir búa út á landi aðrir á sjó og allavega. Ég var einu sinni boðaður á fund vegna MC og það var til fyrirmyndar, náðist góð lending í því máli. Það þarf ekkert að vera að ég sé móti þessu fyrirkomulagi , bara aðferðin, leynifundur eða því sem næst, sem fer í taugarnar á mér og fleirum OF mönnum sem ég hef talað við.
mbk Harry Þór
-
Nei þetta er ekki þras ennþá en það endar oft þannig því menn eru misgóðir í að tjá sig skriflega og margt misskilst, það er nú það sem ég átti við. Ef við gætum spólað til baka myndum við örugglega velja að hringja í OF keppendur, við gerum það bara næst en fundur boðaður í fundarboði á Kvartmíluspjallinu verður nú seint talinn leynifundur þó símtalið sé skilvirkara.
Þetta verður keyrt svona í sumar og ef þetta reynist illa þá er alltaf hægt að breyta því næsta sumar.
Kv.Frikki