Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: Ramcharger on February 23, 2014, 15:18:57

Title: Carina E
Post by: Ramcharger on February 23, 2014, 15:18:57
Sælir.

Er með 1996 Carinu 1.8 sem á það til að ganga bara á 3.
Hún er allt í lagi þegar henni er startað á morgnana og er ekið
en eftir að þegar hún er orðin heit og drepið á henni
og ræst eftir um 5-10 mín þá lætur hún svona en kemur inn eftir dágóða stund.
Þetta virðist vera í spýssinum en nú spyr ég, er hægt hreinsa þetta eða
þarf að skifta honum út?
Title: Re: Carina E
Post by: Hr.Cummins on February 23, 2014, 18:09:10
hvað með háspennukefli :?:
Title: Re: Carina E
Post by: Ramcharger on February 23, 2014, 18:47:33
Er búin ad prófa ad svissa spíssum og elti meinid med. Hann lætur svona á nr 3 og svissadi ég honum yfir á 4 og lét hann illa á honum
Title: Re: Carina E
Post by: Hr.Cummins on February 23, 2014, 19:48:41
skiptir um spíssa þá... þegar að spólan er að gefa svona slitótt eftir hita er hann líklega að skíta í sig...
Title: Re: Carina E
Post by: Weiki on March 08, 2014, 20:21:09
spíssarnir í þessum bílum lifa bara 250-300þús km. Ég á svona bíl og spíssarnir fóru hver af öðrum þegar ég keypti hann. Þá var hann í 260 og eitthvað þús. Fékk notaða úr tjónabíl sem var bara í 170þús.
Title: Re: Carina E
Post by: Ramcharger on March 09, 2014, 09:54:14
Takk fyrir innleggið strákar.
Já þetta virðist hafa verið/er veikur punktur í þessum Carinum.
Er búin að lesa nokkrar frásagnir þar sem eigendur hafa
eitt óra tíma og fé, skift um tölvuna og mest allt í kveikjunni.