Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: 954 on February 27, 2008, 21:23:00
-
Langar að fylgja góðu fordæmi og setja inn nokkrar myndir af yfirhalningunni. Bíllinn er Camaro RS 1980 upphaflega 305 auto.
-
Fyrst var að taka ´ann á hús....
-
og svo var að fara að gera eitthvað...
-
glæsilegt !, það verður gaman að sjá þetta tilbúið....þó það sé mikil vinna eftir :)
-
flott project 8)
-
flott vinna verður örugglega flottur hjá þér bara ekki gefast upp :wink:
-
Glæsilegt.
Endilega halda áfram að senda inn myndir.
-
Framendinn klár fyrir utan samsetnigu. Grind, framstykki, innribretti ofl komið úr polyhúðun
-
Ójááá!! Endilega klára þennan. Vantar allveg 2nd gen Camaroa á göturnar 8)
-
næs!! 100% fagmennska!
-
Þetta er flott 8)
-
Þetta er flott, þarna er verið að nýta vel þá aðstöðu sem er í boði, stærðarlega séð. Greinilega eina vitið að smella honum í svona snúnings stand :)
Má ég forvitnast hvaða stefna sé tekin með vél og hve mikið á að græja hann, fyrir götuna eða kvartmílu, eða er það gott báðumegin eins og Homeblestið 8)
-
Stefan er á sb í 427 - 454 ca 5-600 ha og að græjan verði eins og sagt er, góð báðum megin.....
Er að spá í einhverju svona eða LS2
-
Klárlega skólabókardæmi um hvernig á að standa að góðri uppgerð á bíl. :smt023
Veistu nokkuð fastanúmerið á honum?
-
Sæll.
Að þessari uppgerð er mjög vel staðið, til fyrirmyndar. :smt023
Skelltu þér á big-blokkina, engin spurning.
Bara mín skoðun.
Kv. Gunnar B.
-
Þessi 454 er SMALL BLOCK 8)
-
Fastanr er KE 304. Gaman væri ef einhver ætti gamlar myndir af kvikindinu og eins ef einhver vissi hvort hann hefði komið í orginal litunum eða rauður.
-
Fann engar gamlar myndir. :(
Eigendaferill
15.12.2006 Ásmundur Jespersen Kópavogsbraut 78
02.12.2005 Örn Ingi Magnússon Steinagerði 6
11.06.1998 Benedikt Geir Ármannsson Skógarhlíð 10
05.11.1997 Kristbjörn Heiðar Tryggvason Ægisgata 25
05.10.1997 Sigríður Guðjónsdóttir Vesturbraut 1
10.11.1996 Jóhann Benedikt Hjálmarsson Njarðvíkurbraut 52
28.05.1996 Smári Ragnarsson Skipholt 50e
18.05.1996 Viðhald og nýsmíði ehf Bauganesi 5
02.09.1992 Magni Þór Mortensen Þorláksgeisli 92
07.09.1989 Guðni Sigurbjarnason Bólstaðarhlíð 52
24.09.1987 Paul B.Younce Barmahlíð 14
Númeraferill
14.09.1989 KE304 Almenn merki
24.09.1987 JO4416 VLM - merki
-
Jæja er ekki kominn tími til að sýna ykkur hvað maður er að bjástra við þessa dagana. Eins og títt er um menn komna nálægt miðjum aldri þá gerði ég eins og svo margir aðrir, já fékk mér viðhald. Margir ykkar kannast við gripinn en svona er staðan í dag.
-
Aðeins fleiri myndir, svo er bara að muna að næst þegar ég ætla rétt aðeins að "massa" kvikindi að láta það duga að "massa" kvikindið bara létt. Upphaflega hugmyndin var sú að koma kraminu í þokkalegt ástand, skrapa upp mesta ryðið og rúllann svo. En það fór víst eitthvað úrskeiðis einhversstaðar á leiðinni..... :- :-kk
-
bara flottur 3gen, hvaða bíll er þetta eiginlega? :D
-
glæsilegt!!
var þessi dökkgrár með silfruðu kitti?
-
Bara flott Ási 8-)
-
Flott þetta! Hvað er númerið á þessum 3rd gen?
Er annars eitthvað að frétta af þessum eldri?
-
Virkilega flott hjá þér Ási og til hamingju með þennan áfanga. =D>
Kv
Ingi Hrólfs.
-
Áttu bæði 2nd Gen og 3rd Gen? =P~ =P~
-
Smá uppfærsla fyrir jólin...
Boddy komið saman en vélarskifti ekki búin. Kom í ljós þegar var farið að skoða kvikindið nánar að bíllinn er eins og kaninn segir #number matching. Rétt blokk, gírkassi og drif. Þannig að vélarskifti eru í endurskoðun og væntanlega verður farið í að gera orginalinn upp, en verður uppfærður úr tbi í tpi. Aldrei hefur staðið til að stækka mótor eða fara í grindartengingar, mín skoðun er að sama hvað gert er, T-toppari verður áfram T-toppari og þar af leiðandi tappatogari ef að það er settur alvöru mótor í þess slags kvikindi.
Gleðileg jól, farið vel með ykkur og njótið vel
-
Hann er virkilega flottur, þessi litur virðist mjög flottur á myndum allavega, hvaða litur er þetta?
Því ekki að grindartengja ? Þó ekki væri nema "bolt in", bíllinn verður miklu skemmtilegri í akstri.
-
Til fyrirmyndar =D>
-
Rosalega flottur 8-) 8-) 8-)
-
væri gaman að láta fylgja myndir af restini af bílunum þarna inni
-
Nýtt land, sama áráttan..... batnar ekkert
80 bíllin er falur, er nokkurnveginn í sama ástandi.
Kveðja frá Norge, Ási