Kvartmílan => Muscle Car deildin og rúnturinn. => Topic started by: Gunnar M Ólafsson on February 20, 2011, 20:38:33

Title: !!!HITTINGUR!!!
Post by: Gunnar M Ólafsson on February 20, 2011, 20:38:33
Nú er komið að fyrsta hitting Muscle Car deildarinnar sem verður fimmtudagskvöldið 24 feb kl 20

Allir sem ættla að vera með og þeir sem áhuga hafa á þáttöku endilega að mæta.
Utanfélagsfólk sem áhuga hefur á þáttöku endilega að mæta líka  :D
Allir velkomnir.

Kv. Gunni, Moli og Sigurjón
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: Adalstef on February 21, 2011, 11:57:02
Fjárinn, var að selja T-bird.
VANTAR BÍL !!!
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: Moli on February 21, 2011, 12:07:38
Já, um að gera að mæta og kynnast fólkinu aðeins, sér í lagi þeir sem ekki hafa látið sjá sig áður eða í langan tíma.  :wink:

Þeir sem hafa tök á, vilja, og getu eru hvattir til að mæta á bílunum upp á Kvartmílubraut kl. 20.00 til að spjalla og sýna sig.

Þetta er líka fínt tækifæri til að kynnast klúbbnum og hvað er í vændum, því þetta verður einnig síðasti félagsfundur fyrir aðalfund sem verður nk. Laugardag í Félagsheimili KK. kl. 14.00  8-)
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: emm1966 on February 21, 2011, 15:16:46
Ég ætla að mæta.
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: Guðfinnur on February 22, 2011, 23:51:46
Verður ekki þokkalegt veður? 8-), ætla að reyna að mæta!
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: Gunnar M Ólafsson on February 25, 2011, 17:50:22
Frábær mæting var á þennan fyrsta "HITTING" næstum húsfyllir  8-)

Þakka öllum kærlega fyrir skemtilegt kvöld.

Leggist menn á eitt, þá verður gaman í sumar, jarðvegurinn er sannanlega til staðar.   :D
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: Addi on February 25, 2011, 19:27:00
Flottur hittingur, stórkostleg mæting :D
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: S.Andersen on February 25, 2011, 20:08:58
Sælir félagar.

Það var flott mæting í gærkvöldi,ef þetta er það sem koma skal
þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur um góða mætingu í sumar.Það er
alltaf gaman að sjá félagsheimilið fullt af fólki.

Svo er bara að muna Aðalfundin á morgun Laugardag........

Kv.S.A.
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: Yellow on February 26, 2011, 01:06:51
Eru margir á aldrinum 16-18 sem koma á þessa fundi?
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: Racer on February 26, 2011, 01:11:06
ættir frekar að spyrja hvort margir á aldrinum 16-25 ára sem mæta sem eru nokkrir og svo eru frá 25-40 sem eru enn fleiri og svo eru 40+ sem er meirihlutinn með ungar sálir :)

annars 16-18 ára er trúlega hægt að telja á annari hendi
Title: Re: !!!HITTINGUR!!!
Post by: Yellow on February 26, 2011, 19:57:16
Takk fyrir svarið. Ætla að reyna að mæta á flesta viðburði í Sumar!