Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Moli on August 13, 2005, 09:28:04

Title: Húsaskjól
Post by: Moli on August 13, 2005, 09:28:04
Vantar húsaskjól í vetur fyrir bílinn, sökum þess að skúrinn er upptekin af öðrum bíl, er ekki einhver þarna úti sem mælir með einhverjum  :?:
Title: Húsaskjól
Post by: Packard on August 14, 2005, 01:17:39
T.d er fornbílaklúbburinn með fína geymsluaðstöðu á vægu gjaldi.Vaktað og upphitað
Title: Húsaskjól
Post by: Moli on August 14, 2005, 09:48:53
sæll Sigurbjörn, ég verð nú að viðurkenna það að það hvarflaði ekki einu sinni að mér að kanna hvort það væri laust hjá ykkur, ég frétti að það væri alltaf búið að taka frá pláss um leið og eitthvað losnaði, en fyrst það er eitthvað laust sakar ekki að kanna málið!
Title: Húsaskjól
Post by: Packard on August 14, 2005, 09:58:33
Auðvitað gæti verið fullbókað,en kannaðu þetta sem fyrst.Hringdu í Rúnar í S:8978597.
Title: Húsaskjól
Post by: kiddi63 on August 14, 2005, 14:59:46
Jæja Sigurbjörn, ef Moli finnur ekkert þá færir þú létt með að geyma einn Capri í skottinu á Packardinum,
þarna fyrir innan varadekkið.,..  :lol:  :D

kv, Kiddi frændi.
Title: Húsaskjól
Post by: Moli on August 15, 2005, 23:46:12
Quote from: "Packard"
Auðvitað gæti verið fullbókað,en kannaðu þetta sem fyrst.Hringdu í Rúnar í S:8978597.


allt fullbókað og 9 á biðlista!  :roll:
Title: Húsaskjól
Post by: Vilmar on August 16, 2005, 18:27:50
það er fyrirtæki í hafnarfirðinum sem heitir Geymsla1 held ég.. http://www.geymsla1.is
gætir kannað það
Title: Húsaskjól
Post by: Moli on August 16, 2005, 21:40:03
Quote from: "Vilmar"
það er fyrirtæki í hafnarfirðinum sem heitir Geymsla1 held ég.. http://www.geymsla1.is
gætir kannað það


sæll, ég var búinn að kanna þetta, ég er ekki að leita mér að skúr fyrir bílinn þegar ég þarf að borga fyrir hann um 28.000 á mánuði, og ekki kemur til greina að geyma bílinn úti, takk samt!
Title: Húsaskjól
Post by: Vilmar on August 17, 2005, 13:15:33
hehe reyndar, ég tjékkaði ekki á verðinu
Title: Húsaskjól
Post by: Vilmar on August 17, 2005, 13:18:10
en svo er eitthver maður sem býr rétt hjá flúðum, hann er með stóra steinsteypta skemmu og hann tekur að sér að geyma fellihýsi og bíla, ég held að hann sé miklu miklu ódýrari og getur geymt hann lengi, man ekki hvað bærinn hét, get kannski grafið það upp.

Allavegna geymdum við fellihýsið okkar þar í 8 mánuði en ég man ekki hvað við vorum að borga, skal kanna það líka
Title: Húsaskjól
Post by: gstuning on August 17, 2005, 13:44:35
Einhver gaur í sandgerði geymdi blæjuna mína yfir veturinn fyrir 28kall eða 5kall á mánuði, margir bílar og nóg pláss þá, gætir reynt að skoða auglýsingar á vf.is eða eitthvað
Title: Húsaskjól
Post by: Jón Þór Bjarnason on August 17, 2005, 17:05:23
Mér finnst alls ekki dýrt að borga frá 2.900 til 3.500kr á mánuði fyrir geymslustæði fyrir bílinn minn hjá http://www.geymsla1.is
Title: Húsaskjól
Post by: 1965 Chevy II on August 17, 2005, 17:13:27
Þetta var einmitt verðið sem ég sá á síðunni þeirra!
Er þetta ekki inni í voða fínu húsnæði vaktað og allt?
Title: Húsaskjól
Post by: Moli on August 17, 2005, 18:10:40
Quote from: "Nonni_n"
Mér finnst alls ekki dýrt að borga frá 2.900 til 3.500kr á mánuði fyrir geymslustæði fyrir bílinn minn hjá http://www.geymsla1.is


mér skilst að þessi stæði séu úti, ekki inni í upphituðu húsnæði! þó þori ég ekki að fullyrða það! séu þessi stæði inni finnst mér verðið ekki mikið! annars frétti ég af tveim bæum í uppsveitum árnessýslu sem taka að sér að geyma bíla/fellihýsi ofl. heita Bjarnastaðir og Stóri-Bær,  á eftir að hringja og kanna frekar með pláss þar!
Title: hum
Post by: Jóhannes on August 17, 2005, 21:14:57
það er rétt hjá mola en það er ekki upphituð húsnæði ...

stærri-bær tel ég að sé betri kosturinn en þetta hjá óla á bjarnastöðum er svo sem fínt líka.. ..held meðað við það að það sé ekki upphitað þá er MJÖG gott verð á þessu hjá þeim...
Title: Húsaskjól
Post by: Vilmar on August 22, 2005, 00:57:59
Við geymdum eins og e´g sagði fellihýsið okkar í 9 mánuði og borguðum 25 þús kall, allt í allt
Title: Húsaskjól
Post by: Moli on August 23, 2005, 23:42:22
Quote from: "Vilmar"
Við geymdum eins og e´g sagði fellihýsið okkar í 9 mánuði og borguðum 25 þús kall, allt í allt


endilega græjaðu þetta símanúmer hjá þessum manni fyrir mig!  :wink:
Title: Húsaskjól
Post by: Vilmar on August 26, 2005, 01:14:12
Já, ég gleymdi því, kem með það fljótlega
Title: Húsaskjól
Post by: BB429 on August 26, 2005, 17:04:22
Þú getur prófað að tala við hann Ingvar hjá Pennzoil smurstöðinni, 565-4440, hann er að geyma fellihýsi ofl.
Title: Húsaskjól
Post by: Vilmar on August 26, 2005, 19:29:01
ég man ekki hvað maðurinn heitir né símanumer, en hann býr á bæ sem heitir Klettar rétt fyrir utan Flúðir