Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Valli Djöfull on December 04, 2006, 01:01:16

Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 04, 2006, 01:01:16
Ég og fleiri höfum verið að spá í opnum 4 cyl flokki... Eru einhverjir heitir?

Ég prófaði að taka reglur úr öðrum flokki, fikta aðeins í þeim og svona... Eru einhverjir heitir fyrir opnum 4 cyl flokki?

Tók reglur fyrir einhvern af amerísku bílunum, þar sem bíllinn þarf að vera orginal looking og eyddi þeim info út ásamt fleiru..  Eitthvað meira sem menn myndu vilja hafa öðruvísi í þessum flokk ef hann yrði að veruleika?

Og hve margir myndu vilja taka þátt í honum næsta sumar? :)

Quote
Flokkur fyrir 4 cylindra bíla (númerplötur eða ekki? hvað finnst ykkur?)

MÁL OG STAÐLAR

1. VÉL

VÉL:
Skal vera bílvél og hafa 4 cylindra. Ótakmörkuð tjúnning leyfð, þar með talið nítró og túrbó.

ÚTBLÁSTURSKERFI:
Opnar flækjur leyfðar. Útblæstri skal beina frá vagni, dekkjum.

ELDSNEYTI:
Allt leyft þar með talið: bensín, alkóhól, nítró og nítrómetan.

ELDSNEYTISKERFI:
Sérframleiddir eldsneytistankar(sellur) æskilegir í öllum bílum. Staðlaðar bensín "sellur" eru skylda í öllum bílum sem fara niður í 9,99sek 140mílur 225km eða neðar í tíma og/eða endahraða. Sverleiki og fjöldi eldsneytisleiðsla er frjáls en þær verða allar að vera úr viðurkenndum málmrörum eða vírofnum eldsneytisslöngum. Sjá aðalreglur 1:5.

VÖKVAYFIRFALL:
Skylda er að hafa vökvayfirfall og söfnunarkút tengdan því við kælikerfi á öllum bílum. Minnsta stærð á söfnunarkút er ½ lítri.

FORÞJÖPPUR:
Kefla og/eða afgas forþjöppur eru leyfðar á öllum tegundum véla og eldsneytis í öllum bílum í þessum flokki.

INNGJÖF:
Inngjöf skal stjórnast eingöngu af ökumann og eru öll hjálpartæki við hana hvort sem það eru tölvur, rafmagn, vökvi, loft, osf. Stranglega bönnuð.

2. DRIFRÁS

TENGSLI, KASTHJÓL, KASTHJÓLSHLÍF.
Tengsli og kasthjól samkvæmt staðli SFI Spec 1.1. skylda nema að um upprunalega hluti eða sambærileg frá upprunalegum framleiðanda vélar sé að ræða. Sprengihellt kúplingshús samkvæmt staðli SFI Spec 6.1 eða 6.2 skylda í öllum bílum sem nota kúplingu. Sjá aðalreglur 2:3, 2:5, 2:6, 2:10.

DRIFSKAFT:
Baula utan um drifskaft skylda. Sjá aðalreglur 2:4.

AFTURÁS:
Nota má hvaða afturás sem er. Sérsmíðaðir öxlar æskilegir og skylda ef notaðar eru spólulæsingar. Öxulfestingar út við hjól æskilegar.

SJÁLFSKIPTING:
Frjálst val á sjálfskiptingum og vökvatengslum.

HLÍFÐARSKJÖLDUR FYRIR SJÁLFSKIFTINGAR
Sprengihlíf á sjálfskiptingu skylda einnig má nota sprengimottu. Sprengihlíf á "flexplötu" æskileg og skylda ef bíll er kominn niður í 9,99sek og/eða í 140mil 225km endahraða og/eða er með breyttan hvalbak.

3. BREMSUR OG FJÖÐRUN

BREMSUR:
Vökvabremsur á öllum hjólum skylda. Sjá aðalreglur 3:1.

STÝRI:
Aðeins venjuleg fjöldaframleidd stýri leyfð. Minnasta þvermál Stýrishjóls er 13"(33,02cm). Öll stýrishjólverða að standast skoðun hjá skoðunarstöð.

FJÖÐRUN:
Fjöðrun gerð fyrir bíla skylda. Minnst einn virkur höggdeyfir á hvert fjaðrandi hjól. Breyta má framfjöðrun frá orginal yfir í aftermarket SFI Proofed fyrir bifreiðina. Styrkingar á grind eru leyfðar.

SPYRNUBÚKKAR:
Allar tegundir af spyrnubúkkum leyfðar. Sjá aðalreglur 3:5.

PRJÓNGRINDUR:
Prjóngrindur eru leyfðar en mega þó ekki vera með málmhjólum. Sjá aðalreglur 3:6.

4. GRIND

GRIND:
Verður að vera bílgrind og eiga við viðkomandi ökutæki. Breytingar eru aðeins leyfðar á aftur hluta grindar, nema styrkingar sem má setja hvar á grind sem er. Fyrir framan hvalbak má ekki breyta grind frá upprunalegu nema með styrkingum. Breyta má grind að aftan til að koma stærri dekkjum fyrir osf…..

STUÐARAR:
Stuðarar sem eru notaðir verða að hafa verið fáanlegir á viðkomandi ökutæki frá verksmiðju. Skipta má yfir í plast stuðara ef þeir hafa sama útlit og upprunalegir.  Einnig leyfð aftermarket kit sem hönnuð hafa verið fyrir viðkomandi bíla?

HÆÐ YFIR JÖRÐU:
Minnsta hæð frá jörðu má ekki vera minni en 3"(7,62cm) frá framenda bíls að punkti 12"(30,48cm) aftan við miðlínu framhjóla. Síðan 2"(5,08cm) það sem eftir er. Undanskilið er pústkerfi og olíupanna.

VELTIGRIND OG BÚR:
Veltigrind er skylda í öllum bílum semfara 11,99sek og/eða 120mílum (195km) eða betur. Veltibúr er skylda þegar bíll er kominn í 10,99sek og/eða 140mílur (225km) eða undir. Sjá aðalreglur 4:9 og 4:10.

BIL MILLI HJÓLA:
Bili milli fram og afturhjóla skal halda upprunalegu fyrir viðkomandi bíl, frávik er leyft 2" (5,08cm).

5. HJÓLBARÐAR OG FELGUR

HJÓLBARÐAR:
Slikkar leyfðir.

FELGUR:
Allar gerðir af felgum fyrir bíla leyfðar, nema teina og mótorhjólafelgur. Minnsta felgustærð er 13" nema að bíllinn hafi komið upprunalega á minni felgum og sé með upprunalega vél.

6. INNRÉTTING

SÆTI:
Öll sæti skulu vera vel fest. Bílar sem fara 12,99sek og/eða 100míl (160km) eða betur verða að hafa sæti með háu baki. Bílar sem fara 10,99 og/eða 140mil (225km) eða betur verða að vera með keppnisstól. Æskilegt er að allir bílar séu með keppnisstóla.

BODDÝSTÁL:
Allur málmur í ökumanns og farþega klefa verður að vera ál eða stál (járn). Öll málmsmíði í ökumanns og farþegaklefa verður að vera upprunaleg eða eins og upprunaleg. Allar breytingar og endurbætur á ökumanns og farþegaklefa verða að vera úr upprunalegum efnum. Magnesíum bannað.

KLÆÐNING:
Skylda er að hafa eldvegg úr amk. 0,8mm stáli eða úr 1,2mm áli, milli farþega og farangursrýmis ef aftursæti hefur verið fjarlægt.

GLUGGANET:
Glugganet er æskilegt í alla bíla en skylda ef bíll er kominn niður í 10,99sek og/eða 140mil (225km) hraða eða betur. Sjá aðalreglur 6:3.

7. YFIRBYGGING

YFIRBYGGING:
Trefjaplast yfirbyggingar leyfðar. Nota má plast bretti, vélarhlíf, hurðir eða heilar samstæður. Rúðu upphalarar verða að virka í öllum hurðum.

BRETTI:
Öll bretti skulu vera til staðar. Nota má plast bretti eða samtæður. Innribrettum má breyta eða þau fjarlægja, þó ekki þar sem þau eru hluti fjöðrunarkerfis eða demparafestinga, nema að viðeigandi styrkingar komi í staðinn. Hjólskálum má breyta að vild ss. Til að koma undir stærri dekkjum.

HVALBAKUR:
Breyta má hvalbak vegna vélaskipta og verður það þá að vera gert úr sambærilegum efnum og upprunalega og skal hann líta út sem næst hinum upprunalega. Vél má þó ekki staðsetja aftar en svo að fremsta kerti sé í miðlínu spindla. Breyttur hvalbakur skal eftir sem áður uppfylla ofangreind skilyrði um efnisval.

GÓLF:
Upprunalegt gólf eða úr sambærilegum efnum skylda. Bannað er að hækka gólf. Lækka má gólf svo framarlega sem ekki er farið niður fyrir lágmarks hæð (sjá Grind:4.) og útsýni ökumanns raskast ekki. Breyta má gólfi að aftan til að koma fyrir stærri dekkjum osf.

GÖTUBÚNAÐUR:
Öll ljós skulu vera virk. Götubúnaður skal vera til staðar og vera virkur. Sleppa má þurrkum miðstöð og loftkælingu.
VÆNGIR OG VINDKLJÚFAR.
Leyfðir svo framarlega að þeir brjóti ekki regluna um lágmarks hæð frá jörðu.

FRAMRÚÐA OG GLUGGAR:
Allar rúður verða að vera til staðar og úr upprunalegum efnum.

8. RAFKERFI

RAFGEYMAR:
Mest tveir rafgeymar leyfðir. Mega vera sýru og/eða þurrgeymar. Rafgeymar mega ekki vera staðsettir í ökumannsrými. Sjá aðalreglur 8:1, 8:4, 8:5.

TÖLVUR OG GAGNASÖFNUN:
Tölvur og önnur tæki sem afla gagna um viðkomandi ökutæki leyfð. Þau mega hins vegar ekki hafa nein áhrif á ræsingu, inngjöf, tengsli, "tranbrake" eða annað í bílnum sem hjálpar við stillingar eða ræsingu eða neitt það sem kann að hjálpa eða hindra ökumann eða vélbúnað ökutækis í ferð. Sjá aðalreglur 8:2.

BIÐBOX OG HJÁLPARTÆKI:
Leyfð.

KVEIKIKERFI

Öll kveikikerfi leyfileg nema tímastillt kveikibox (stutter box), magnetu kveikjur bannaðar.

HÖFUÐROFI:
Höfuðrofi er skylda í öllum bílum.

AFTURLJÓS:
Allir bílar verða að hafa afturljós sem virka.

9. STUÐNINGSFLOKKUR

DRÁTTARTÆKI:
Öll dráttartæki eru bönnuð.

10. ÖKUMAÐUR

ARMÓLAR:
Leyfðar, sjá aðalreglur 10:3.

RÉTTINDI:
Gillt allmennt ökuskýrteini skylda.

STAÐSETNING ÖKUMANNS:
Ökumaður skal staðsettur í ökumanns sæti sem fest er á þann stað sem gert var ráð fyrir frá framleiðanda viðkomandi ökutækis.

ÖRYGGISBELTI:
Þriggja punkta belti skylda í bílum að 13,00sek og/eða 100mil (160km). Bílar 12,99sek og/eða 100mil (160km) og undir, verða að hafa amk. Fjögurra punkta viðurkennd belti. Bílar 10,99sek og/eða 140mil (225km)og undir, verða að hafa viðurkennd og stöðluð fimm punkta öryggisbelti þriggja tommu breið.

HJÁLMUR:
Skylda sjá aðalreglur.

HLÍFÐARFATNAÐUR:
Í öllum keppnisbílum er tregbrennandi fatnaður skylda,(ekkert nælon eða flís).
Bílar 10,99sek og/eða 140mil (225km) og undir. Jakki og buxur, eða samfestingur samkvæmt staðli SFI Spec 3-2A/5, skylda.

UPPHITUN:
Sjá aðalreglur 9:10
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Marteinn on December 04, 2006, 02:18:55
þú veist ég mæti
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 04, 2006, 13:30:16
Reglur einfaldaðar:

1. Vél
Verður að vera bílvél og 4 cyl.  Tjúningar og breytingar leyfðar.  T.d. túrbó og nítró.

2. Drif
2wd, fjórhjóladrifsbílar eru ekki leyfðir.  Drif á 1-2 hjólum ok :)

3. Dekk
Eitthvað eru menn nú alltaf að væla um dekk í þessum klúbbi hehe, svo það er spurning hvort við sleppum ekki bara reglum um dekk í þessum flokki?  8)

4. Öryggismál
Sama og í hinum flokkum bara, bogi undir vissum tíma og grind undir öðrum tíma :)

Eitthvað fleira sem þarf?
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: 3000gtvr4 on December 04, 2006, 14:25:01
Þetta líst mér mjög vel á og ef þetta verður að veruleika þá kem ég til með að keppa í þessu flokk næsta sumar
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 04, 2006, 14:56:22
Alli?
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: 3000gtvr4 on December 04, 2006, 15:18:38
Alli verður með við verður báðir þarna á turbo hondum
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Geir-H on December 04, 2006, 16:43:26
Quote from: "3000gtvr4"
Þetta líst mér mjög vel á og ef þetta verður að veruleika þá kem ég til með að keppa í þessu flokk næsta sumar

Þú verður  búinn að sprengja allt draslið fyrir næsta sumar vinurinn :lol:  :lol:
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: 3000gtvr4 on December 04, 2006, 16:59:44
Ekki vera of viss um það Geir minn verð nú að fá bílinn fyrst, gengur frekar hægt að fá hann, svo það er smá séns að þetta verði í lagi allvega fram á vor :lol:
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Bc3 on December 04, 2006, 19:45:01
auðvitað er ég til i þetta en þá bara ef þessar reglur eru eins og nuna
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 04, 2006, 19:47:44
Quote from: "Bc3"
auðvitað er ég til i þetta en þá bara ef þessar reglur eru eins og nuna

eins og hér fyrir ofan þá?
Quote

1. Vél
Verður að vera bílvél og 4 cyl. Tjúningar og breytingar leyfðar. T.d. túrbó og nítró.

2. Drif
2wd, fjórhjóladrifsbílar eru ekki leyfðir. Drif á 1-2 hjólum ok

3. Dekk
Eitthvað eru menn nú alltaf að væla um dekk í þessum klúbbi hehe, svo það er spurning hvort við sleppum ekki bara reglum um dekk í þessum flokki?

4. Öryggismál
Sama og í hinum flokkum bara, bogi undir vissum tíma og grind undir öðrum tíma
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Geir-H on December 04, 2006, 20:33:14
Quote from: "3000gtvr4"
Ekki vera of viss um það Geir minn verð nú að fá bílinn fyrst, gengur frekar hægt að fá hann, svo það er smá séns að þetta verði í lagi allvega fram á vor :lol:

Haha verðum við ekki að vona það allavega  :lol:
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Bc3 on December 04, 2006, 20:58:10
Quote from: "ValliFudd"
Quote from: "Bc3"
auðvitað er ég til i þetta en þá bara ef þessar reglur eru eins og nuna

eins og hér fyrir ofan þá?
Quote

1. Vél
Verður að vera bílvél og 4 cyl. Tjúningar og breytingar leyfðar. T.d. túrbó og nítró.

2. Drif
2wd, fjórhjóladrifsbílar eru ekki leyfðir. Drif á 1-2 hjólum ok

3. Dekk
Eitthvað eru menn nú alltaf að væla um dekk í þessum klúbbi hehe, svo það er spurning hvort við sleppum ekki bara reglum um dekk í þessum flokki?

4. Öryggismál
Sama og í hinum flokkum bara, bogi undir vissum tíma og grind undir öðrum tíma

amm  :wink:
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Bc3 on December 04, 2006, 21:03:10
Ég á amerískan bíl og finnst 4 cyl bara vera sorp     
 :lol:  :lol:  

GLATAÐIR :!:  :lol:
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Geir-H on December 04, 2006, 21:09:02
Vera opinn fyrir öllu, ekki lokaður það er ekki cool
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 04, 2006, 21:11:13
Quote from: "Bc3"
Ég á amerískan bíl og finnst 4 cyl bara vera sorp     
 :lol:  :lol:  

GLATAÐIR :!:  :lol:

Gunni er nú búinn að vera að baka þá á sínum 4 cyl golf  :lol:
þeir eru bara svekktir og öfundsjúkir  :wink:  :lol:
Title: Reglur....
Post by: Gunni gírlausi on December 04, 2006, 21:53:14
Sko.

Einn power adder í RS og GT , allt klárt.

þarf ekki nýjan flokk.

Gírlaus
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Bc3 on December 04, 2006, 22:54:28
ja gaman að vera á frammhjóla drifnu að keppa við 4wd i gt flokki emmm nei gunni það er ekki gaman  :lol:
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: ElliOfur on December 04, 2006, 23:30:06
Im in.
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Gunni gírlausi on December 04, 2006, 23:34:31
Quote from: "Bc3"
ja gaman að vera á frammhjóla drifnu að keppa við 4wd i gt flokki emmm nei gunni það er ekki gaman  :lol:

Gaur! við hvað ertu hræddur? 4X4 búðinga? því að þeim gekk svo vel í sumar???

svona án gríns, þá getum við wrong wheel drive gaurarnir, með góðum slikkum og "prjóngrind", verið samhliða 4wd bílunum fyrstu 100 metrana. Eftir það hafa 2wd bílarnir vininginn.

Það sem mér finst mikilvægast er að leyfa nítró í RS og GT

Gírlaus
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Racer on December 05, 2006, 12:14:06
Quote from: "Bc3"
ja gaman að vera á frammhjóla drifnu að keppa við 4wd i gt flokki emmm nei gunni það er ekki gaman  :lol:

hvað haldið þið að gerist þegar 4 cyl opinn flokkur kemur? nú þá eru evo GT/Wrx og sti að grilla ykkur ;) , opinn flokkur er eitthvað sem allir mega koma í þaggi? , ætti frekar að heita Bannað 4x4 4cyl eða eindrifs 4cyl flokkur
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Bc3 on December 05, 2006, 18:40:16
það sem ég og fleyrri erum að gera þá verður helst að bua til nyjan flokk þar sem ég er að breyta þjöppuhlutfalli og annað sem er ekki leyfilegt i rs gt flokknum
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 05, 2006, 19:24:43
Quote from: "Bc3"
það sem ég og fleyrri erum að gera þá verður helst að bua til nyjan flokk þar sem ég er að breyta þjöppuhlutfalli og annað sem er ekki leyfilegt i rs gt flokknum

og ég vil setja vél í bíl sem var ekki fáanleg orginal í þeim bíl :)  og væntanlega fleiri með svoleiðis pælingar?
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: firebird400 on December 05, 2006, 19:39:35
Er þetta ekki þá bara komið út í það að vera ALLT flokkur  :?
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 05, 2006, 20:05:10
Quote from: "firebird400"
Er þetta ekki þá bara komið út í það að vera ALLT flokkur  :?

4 cyl allt flokkur  :wink:
Title: isss. pabbi minn......
Post by: Gunni gírlausi on December 05, 2006, 20:24:39
Já það já.

Sko, að banna breytingar á þjapphlutfalli er bara rugl og þarf að hverfa úr þessum reglum.

En þú Valli, þetta gengur aldrei hjá þér :lol:  Ertu með vél úr M850 super dúber í E20 eða hvað?? er ekki bara málið að redda sér 325 vél með túrbó og alles?

Það að bílarnir þurfi að vera á númerum er að mínu mati mjög skiljanleg krafa í svona fámennum klúbb . Skoðaður bíll ætti jú að vera í sæmilegu lagi.
Það stendur til að massa þessar reglur eitthvað til í vetur og ef þið hafið eitthverjar tillögur um hvað betur mætti fara í RS og GT, þá er þetta tækifærið :wink:

Gírlaus
Title: Re: isss. pabbi minn......
Post by: Valli Djöfull on December 05, 2006, 20:40:43
Quote from: "Gunni gírlausi"

Aight... bara pælingar :)

en kannski maður sé bara að hugsa eins og margir aðrir.. reyna að fá flokk fyrir bílinn sem maður vill búa til í stað þess að búa til bíl fyrir flokk  :wink:

Það sem ég var kannski að spá er að:

OF = opinn flokkur sem er BARA fyrir 8 cyl ÞUNGA bíla..
4F = opinn flokkur fyrir hina sem vilja gera ofurbíla sem eru undir 2 tonnum  :wink:

(mig t.d. langar að gera eitthvað ÖÐRUVÍSI, en það er ekki í boði eins og staðan er núna)
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Bc3 on December 05, 2006, 20:41:11
út með gunna út með gunna
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Kristján Skjóldal on December 05, 2006, 21:31:51
OF er ekki bara fyrir v8 :wink:
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: ElliOfur on December 05, 2006, 22:41:49
Hvaða flokk á ég þá að fara í ef það verður ekki búinn til opinn 4cyl flokkur?
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Gunni gírlausi on December 05, 2006, 23:06:40
Quote from: "ElliOfur"
Hvaða flokk á ég þá að fara í ef það verður ekki búinn til opinn 4cyl flokkur?

Villt þú ekki bara fara í EF flokk? hann er einmitt fyrir Toyotur með Saab vélar (Ella flokkur)  :lol:  :lol:  :lol:  :lol:

Eins og er er engin flokkur fyrir svona bíla. Tæki (á 4 hjólum) með 2.0L vél má ekki vikta meira en 500kg MEÐ ökumanni til að vera löglegt í OF.
 Ef það tekst að breyta OF þannig að þau tæki sem eru með "of littlar" vélar fái hámarks index tíma, (9.80) er OF rétti staðurinn fyrir þig Elli minn.

Gírlaus
Title: Re: isss. pabbi minn......
Post by: Racer on December 05, 2006, 23:09:03
Quote from: "ValliFudd"
Quote from: "Gunni gírlausi"
Já það já.

Sko, að banna breytingar á þjapphlutfalli er bara rugl og þarf að hverfa úr þessum reglum.

En þú Valli, þetta gengur aldrei hjá þér :lol:  Ertu með vél úr M850 super dúber í E20 eða hvað?? er ekki bara málið að redda sér 325 vél með túrbó og alles?

Það að bílarnir þurfi að vera á númerum er að mínu mati mjög skiljanleg krafa í svona fámennum klúbb . Skoðaður bíll ætti jú að vera í sæmilegu lagi.
Það stendur til að massa þessar reglur eitthvað til í vetur og ef þið hafið eitthverjar tillögur um hvað betur mætti fara í RS og GT, þá er þetta tækifærið :wink:

Gírlaus

Aight... bara pælingar :)

en kannski maður sé bara að hugsa eins og margir aðrir.. reyna að fá flokk fyrir bílinn sem maður vill búa til í stað þess að búa til bíl fyrir flokk  :wink:

Það sem ég var kannski að spá er að:

OF = opinn flokkur sem er BARA fyrir 8 cyl ÞUNGA bíla..
4F = opinn flokkur fyrir hina sem vilja gera ofurbíla sem eru undir 2 tonnum  :wink:

(mig t.d. langar að gera eitthvað ÖÐRUVÍSI, en það er ekki í boði eins og staðan er núna)

ég á 1600kg transam sem gæti fengið sér big block og blásara og þá eru menn búnir á því og þó við segjum undir 1400 kg þá gæti ég létt hann í eflaust 1000-1400 kg ;)

annars keypti ég mér tilvonandi hraðskreiðann "keppnis" bíl sem er ekki amerískur svo ég mun vonandi leika mér við strákana.
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 06, 2006, 02:39:14
Quote from: "Gunni gírlausi"
Quote from: "ElliOfur"
Hvaða flokk á ég þá að fara í ef það verður ekki búinn til opinn 4cyl flokkur?

Villt þú ekki bara fara í EF flokk? hann er einmitt fyrir Toyotur með Saab vélar (Ella flokkur)  :lol:  :lol:  :lol:  :lol:

Eins og er er engin flokkur fyrir svona bíla. Tæki (á 4 hjólum) með 2.0L vél má ekki vikta meira en 500kg MEÐ ökumanni til að vera löglegt í OF.
 Ef það tekst að breyta OF þannig að þau tæki sem eru með "of littlar" vélar fái hámarks index tíma, (9.80) er OF rétti staðurinn fyrir þig Elli minn.

Gírlaus

ehm.. af því að mig langar svo að keppa á e30 við ingó á dragsternum og svona  :lol:

Ég fengi forskot út hálfa brautina  :lol:
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Bannaður on December 06, 2006, 08:30:02
En hvernig er það, eiga menn sem eru með 6cyl bíla að fara "stofna" nýjan flokk líka svo að á endanum verða bara einn bíll í hverjum flokk og allir Íslandsmeistarar á endanum?

Reglur eru til að smíða eftir.

ekki

Smíða og svo búa til reglur.

þið komið aldrei til með að hafa 3-4 bíla í hverri keppni, því miður hef bara ekki séð það gerast hingað til.
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 06, 2006, 11:47:26
I know  :oops:

En það er bara ekki til flokkur sem býður upp á frumlegheit eins og er.. nema maður sé með 2-3 tonna 2000 hö tæki..:)

Og þá þarf maður sponsor  :D

Ekkert fyrir hina sem vilja gera eitthvað töff fyrir sem minnstan pening :)
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Bc3 on December 06, 2006, 14:05:23
æ fuck it sleppum þessu bara og látum v8 kallana leika sér þarna þangað til að þetta deyr ut  :roll:
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Dodge on December 06, 2006, 16:03:35
djöfull eruði klikkaðir..

ég held nú að meðalþyngd tækja í OF sé í kringum 1000kg.

og er ekki tilfellið að þessir 4 cyl bílar sleppi inn í of..?
og á meira en lítið grand indexi.
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: baldur on December 06, 2006, 17:37:40
Reglur í OF leyfa ekki bíla með fleiri en 10 pund á kúbiktommu. Þar með má bíll með 2 lítra vél ekki vigta meira en 550kg með ökumanni.
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 06, 2006, 20:00:22
Quote from: "baldur"
Reglur í OF leyfa ekki bíla með fleiri en 10 pund á kúbiktommu. Þar með má bíll með 2 lítra vél ekki vigta meira en 550kg með ökumanni.

sem þýðir að við sem viljum ekki 8 cyl 8 lítra vélar eðikkað, megum ekkert gera við bílana okkar :)

me dónt læk ðet
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Einar Birgisson on December 06, 2006, 20:20:26
"Reglur í OF leyfa ekki bíla með fleiri en 10 pund á kúbiktommu." skrifaði Baldur, þannig að bíll sem er 3550 pund með 350 cid sleppur ekki í OF vegna þess að hann er "of" þungur.............
Title: OF
Post by: Einar Birgisson on December 06, 2006, 20:22:35
http://194.144.210.202/index/Default.aspx

Index: 9,81
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Nóni on December 06, 2006, 21:25:04
Einar, reglurnar kveða á um að hlutfallið cid/lbs má ekki bera meira en 1/10.

Kv. Nóni
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Mr.GTi on December 09, 2006, 03:01:23
þetta hljómar spennandi ;)

ég ætla mæta uppá braut næsta sumar allavegana..

hvar skrái ég mig í kvartmiluklubbinn og greiði klubb/keppnisgjald og þessháttar..

er að vona sjálfur eftir að bíllinn hjá mér blási meira heldur en hann sjugi næsta sumar 8)

en það kemur allt í ljós.. ég verð allavegana með :twisted:

ég stið þetta :)
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Nóni on December 09, 2006, 10:15:01
Quote from: "Mr.GTi"
þetta hljómar spennandi ;)

ég ætla mæta uppá braut næsta sumar allavegana..

hvar skrái ég mig í kvartmiluklubbinn og greiði klubb/keppnisgjald og þessháttar..

er að vona sjálfur eftir að bíllinn hjá mér blási meira heldur en hann sjugi næsta sumar 8)

en það kemur allt í ljós.. ég verð allavegana með :twisted:

ég stið þetta :)

Hér er linkur á inngönguna, vertu velkomin/nn í klúbbinn.

http://www.kvartmila.is/display.php?PageID=5

Nóni
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Valli Djöfull on December 11, 2006, 14:23:06
Quote from: "Einar K. Möller"
Jájá.. bara mæta á aðalfund og FÁ hann....

Ekki svo auðvelt... skrifiði niður flokkareglur, DETAILED... og hafið öll ykkar plögg á hreinu og gerið grein fyrir ástæðu þess að það þurfi þennan flokk, því miður er ekki eins auðvelt og við myndum vilja FÁ bara flokka.

En geriði þetta endilega... ég styð þetta alveg...

Athugið svo að það eru þeir sem mæta á aðallfund sem eiga eftir að stjórna þessu með kosningu. Þannig að gerið vel grein fyrir öllu.

EKM

Hvenær er aðalfundur? :)
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Racer on December 11, 2006, 17:55:49
Quote from: "Einar Birgisson"
"Reglur í OF leyfa ekki bíla með fleiri en 10 pund á kúbiktommu." skrifaði Baldur, þannig að bíll sem er 3550 pund með 350 cid sleppur ekki í OF vegna þess að hann er "of" þungur.............

minnst 400 cid leyfilegt reiknaði ég einhvern tímann á eðlilega þyngd , sá svoldi að því að fá sér 400 small block
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Kristján Skjóldal on December 11, 2006, 18:00:21
græna grindin er nú búinn að keppa í mörg á með 327  :wink:  400 minst er bara rugl  :evil:  mátt vera með stóra  6 cil :D
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Racer on December 11, 2006, 18:36:04
hversu miklu munar á venjulegum bíl og grind?

dæmi:
327 cid með 3400 pund = 9,92908427134399 í index

1500 kg sirka mest
Title: 4 cyl opinn flokkur?
Post by: Nóni on March 18, 2007, 00:58:02
Með reglubreytingatillögum í GF og OF er gert ráð fyrir ofsa kraftmiklum 4ra cy. og 6 cyl. bílum.  Nú er bara að mæta á aðalfundinn og taka afstöðu.

Kv. Nóni