Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Jón Þór Bjarnason on May 01, 2008, 10:30:26

Title: Jarðvélar skulda 280 milljónir
Post by: Jón Þór Bjarnason on May 01, 2008, 10:30:26
Ég stór efa að þessir menn geti haldið áfram með motorpark eins og staðan er hjá þeim núna.
Trúi ekki að það sé hægt að byrja bara aftur á nýrri kennitölu.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/05/01/forgangskrofur_i_throtabu_jardvela_nema_280_milljon/
Title: Re: Jarðvélar skulda 280 milljónir
Post by: cecar on May 01, 2008, 11:08:23
Forgangskröfur nema 280 milljónum króna.
Heildarfjárhæð lýstra krafna í þrotabúið nemur rúmum 1,9 milljörðum króna, en þar af eru forgangskröfur, þ.e. aðallega launakröfur og kröfur lífeyrissjóða, rúmar 280 milljónir króna. Vinnu við þær kröfur er þó ekki að fullu lokið.
Title: Re: Jarðvélar skulda 280 milljónir
Post by: Jón Þór Bjarnason on May 01, 2008, 13:51:43
Já las fréttina með öðru auga. Setti upp gleraugun og þá gat ég lesið betur.
En án gríns þá hef ég heyrt að þessir sömu menn ætli að byrja á framkvæmdum aftur. Er þetta eitthver kjaftasaga eða er eitthvert sannleikskorn í þessu. :?:
Title: Re: Jarðvélar skulda 280 milljónir
Post by: firebird400 on May 01, 2008, 17:36:09
Toppurinn kaupir Jarðvélar
Toppurinn var með MotoPark

Lægst boð í þessa tilraun til að ljúka reykjanesbrautinni átti TOPPverk  :lol:

Hvort því verði tekið er svo annað mál, fannst eins og ég hefði heyrt að það væri búið að taka næstlægsta boði
Title: Re: Jarðvélar skulda 280 milljónir
Post by: Kristján F on May 01, 2008, 23:09:16
Það var ekki samið við Toppverktaka um að klára Reykjanesbrautina, einhver af skilyrðunum sem Vegagerðin setti náðu þeir ekki að uppfylla. Þannig að það var samið við Ístak sem voru næstlægstir og koma þeir til með að klára tvöföldunina. Hvort að Moto Park verði eða ekki hlýtur að snúast um það hvort fjármagn fæst til að klára verkefnið.Gjaldþrot Jarðvéla hlýtur að setja strik í reikninginn því þetta eru engar smá upphæðir sem um ræðir.
Title: Re: Jarðvélar skulda 280 milljónir
Post by: firebird400 on May 01, 2008, 23:30:42
Ég held að það voni allir innilega að það takist hjá þeim  8-)
Title: Re: Jarðvélar skulda 280 milljónir
Post by: Belair on May 01, 2008, 23:37:45
ja svo sannalega mig vantar braut fyrir gokartinn minn
Title: Re: Jarðvélar skulda 280 milljónir
Post by: HK RACING2 on May 03, 2008, 00:18:18
Toppurinn kaupir Jarðvélar
Toppurinn var með MotoPark

Lægst boð í þessa tilraun til að ljúka reykjanesbrautinni átti TOPPverk  :lol:

Hvort því verði tekið er svo annað mál, fannst eins og ég hefði heyrt að það væri búið að taka næstlægsta boði
Toppverktakar buðu í þetta,Toppverk er bara einn sveittur sköllóttur vörubílstjóri sem heitir Óskar :lol: