Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Rottinn on January 27, 2013, 20:32:23

Title: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Rottinn on January 27, 2013, 20:32:23
kunningi minn var að pósta þessu skemmtilega vídjói inn á netið. Datt í hug að einhverjir hér hefðu gaman að því.
https://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=NRkwtexlwt0 (https://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=NRkwtexlwt0)
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Moli on January 27, 2013, 22:39:14
Gaman að þessu, það væri fróðlegt að vita hvaða bíll þetta er?

Ég var að skoða skráningu af einni '67 Barracudu, en hún er að vísu skráð blá og þar nær ferillinn bara til 1977.
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Rottinn on January 27, 2013, 23:05:34
Ég skoðaði ferilinn á þessari og hann náði bara til ársins 85
2 eigendur af honum sem voru feðgar. Nr var R9811
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Þórður Ó Traustason on January 27, 2013, 23:11:40
Moli,þetta er bílinn sem ég var að tala um í  hinum Barracudu þræðinum.Elli bróðir heldur að þetta sé bíllinn sem Hjörtur í Olympíu átti.
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Ramcharger on January 28, 2013, 07:21:23
Flott þessi 8-)
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Moli on January 28, 2013, 08:17:10
Ég skoðaði ferilinn á þessari og hann náði bara til ársins 85
2 eigendur af honum sem voru feðgar. Nr var R9811

Það hvarflaði ekki einu sinni að mér að reyna fletta upp R9811 þar sem það var svo langt síðan hann var á því.  :lol:

Eru mörg ár síðan þessum var fargað? ég sé að eigendaskipti voru 1989.
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Ramcharger on January 28, 2013, 10:53:36
Ætli hún hafi verið v-8 miðað við húddristarnar :idea:

Svo fann ég þetta á netinu.

1967 Plymouth VIN Numbers
Serial Numbers were stamped on a plate on driver's side front door hinge pillar
 
 
First - Model
B = Barracuda P = Fury
R = Belvedere V = Valiant
 
Second Symbol - Series
E = Belvedere / Fury I K = Law Enforcement Special
L = Valiant / Belvedere / Fury II T = Taxicab
H = Signed / Belvedere II / Sport Fury S = GTX / Sport Fury 2 door
M = Fury III / Road Runner O = Super Stock
P = Barracuda / Satellite / VIP   
 
Third and Fourth Symbol - Body Style
21 - 2 door Sedan 43 - 4 door Hardtop Sedan
23 - 2 door Hardtop Coupe 45 - 4 door Station Wagon - 6 passenger
27 - 2 door Convertible 46 - 4 door Station Wagon - 9 passenger
41 - 4 door Sedan   
 
Fifth Symbol - Engine Type
A - 170 Six-Cylinder G - 383 V8
B - 225 Six-Cylinder H - 426 V8 High Performance
C - Special Order Six-Cylinder J - 426 "Street Hemi" V8
D - 273 V8 K - 440 V8
E - 273 V8 High Performance L - 440 V8 High Performance
F - 318 V8 M - Special Order Option V8
 
Sixth Symbol - Model Year
7 = 1967
 
Seventh Symbol - Assembly Plant
1 - Detroit, MI.  6 - Newark, NJ.
2 - Hammtramck, MI 7 - St. Louis, MO. 
4 - Belvedere, IL.  8 - Export
5 - Los Angeles, CA. 9 - Windsor, Ontario, Canada
 
Remaining Symbols - Production Sequence Number
Sequence numbers for each factory

 
 

1967 Plymouth Engines
Letter Code Engine Horsepower Torque Compression Ratio Carburetor
A 6-170 115 155 8.5 to 1  1 BC
B 6-225 145 215 8.4 to 1 1 BC
C 8-273 180 260 8.8 to 1 2 BC
D 8-273 235 280 10.5 to 1 4 BC
E 8-318 230 340 9.2 to 1 2 BC
F 8-383 270 390 9.2 to 1 2 BC
G 8-383 325 425 10.0 to 1 4 BC
H 8-426 425 490 10.25 to 1 4 BC
I 8-440 375 480 10.1 to 1 4 BC

 

Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: GunniCamaro on January 29, 2013, 11:02:41
Strákar, þetta er alveg frábært "vídó" í tvennum skilningi, í fyrsta lagi, gaman að sjá þessa Barracudu á ferðinni, þetta er þá væntanlega alveg nýr bíll og þið þarna Cútufræðingar, fyrst hann er með krómrista á húddinu hlýtur þetta að vera eitthvað spec, kannski S-cuda ?
Í öðru lagi er gaman að sjá hvað Borg óttans er sakleysileg og margt breyst og svo er annað "vídó" þarna með Station Dodge (hvaða?) og vinstri umferðin við lýði og skondið að sjá hvað Kringlumýrarbrautin er stutt, endar við Hamrahlíðina.

P.S. svo ég bendi nú á allt annað, að þá er þarna líka merkilegur Vídeóstubbur með svifnökkva sem kom hingað 1967 og ég man eftir honum en stórhuga menn voru með hugmyndir um að nota hann á milli Rvíkur og Akranes og ég held að þetta sé í eina skiptið sem svona stórt tæki hefur komið til lands en það var hætt við hugmyndina.
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: thor_man on August 14, 2013, 21:55:47
Man vel eftir þessari Barracudu, ég bjó um tíma í einu raðhúsanna við Hvassaleitið og hann var í næsta húsi, skoðaði hann oft og vel því þetta var alger draumur í dós. Átti svo '67 Plymma meðan Cuda'n var enn þarna og sá var með sömu vél og Cuda'n, þ.e. 273, það stóð 273 fremst á frambrettunum á henni, og hún var sjálfskipt. Var mikið að spá í að bjóða í hann þarna en átti auðvitað engan aur aflögu. Þetta var 1975-'77. Var alltaf að vona að bíllinn hefði varðveist, en svo virðist ekki vera..
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Moli on August 14, 2013, 22:51:05
Bíllinn er enn til.
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: thor_man on August 15, 2013, 00:12:52
Bíllinn er enn til.
Frábært að heyra, þá getur maður slökkt á þeirri meinloku. Í hvernig standi er hann, er hann óbreyttur, enn rauður?
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Ramcharger on August 15, 2013, 05:57:27
Vídeóið um Kringlumýrarbrautina þar er plymouth valiant station wagon 1966 á ferð.
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Ramcharger on August 15, 2013, 05:58:13
Bíllinn er enn til.

Ok og hvert er ástandið á henni :?:
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Moli on August 15, 2013, 11:18:32
Skildist á þeim svörum sem ég fékk að bíllinn þyrfti uppgerð, þekki það ekki betur en svo.
Title: Re: Barracuda 67 merkilegt vídjó
Post by: Ramcharger on August 15, 2013, 15:02:14
Nú er ég orðin meir en lítið forvitin 8-[