121
Spyrnuspjall / Tillaga að breytingum á reglum í MS/Flokki.
« on: January 07, 2009, 01:21:17 »
Sælir félagar.
Breytingar (lagfæringar)á reglum í MS/flokki.
MS flokkurinn var settur upp fyrir þá sem að vildu upplifa “nostalgíuna” í sinni villtustu mynd, og er þá bæði átt við keppendur og áhorfendur.
Þessi flokkur var fyrst og fremst hugsaður sem skemmtun og var hugmyndin að slípa hann til á nokkrum árum.
Nú kemur undirritaðu með eftirfarandi tillögur um breytingar á reglum í MS/flokki.
Þessar tillögur eru settar fram til að hleypa fleiri bílum sem að þegar eru til inn í þennan flokk og líka til að geta farið út í “nostalgíuna” án þess að vera að brjóta öryggisreglur.
Einnig hafa reglur verið einfaldaðar og orðalagi breytt og það mýkt.
Fyrst er það að breyta dekkjastærð í átt að því sem að var 1978-1981 þegar þessi flokkur var keyrður hér heima.
Þá voru mest notaðir slikkar sem að voru 29,5x11,5x15.
Ég legg til að leyft verði að nota slikka sem eru 30x10,5, sem myndi þá gera viðkomandi ökutæki löglegt í aðra flokka sem að leyfa þessa dekkjastærð.
Til þess að standast öryggisreglur með þessa dekkjastærð þá mega dekkin ekki ná út fyrir yfirbyggingu ökutækis, eins og þau gerðu reyndar á árum áður.
Þess vegna vil ég leyfa breytingar á hjólskálum að grindarbita (minitubbing), og að það megi færa fjaðrahengsli inn í grindarbita.
Með þessu ættu allar bíltegundir að sitja við sama borð eftir breytingar.
Flokkur eins og þessi sem að býður upp á hávaða, spól og reik er nauðsinlegur til að draga að áhorfendur, og líka keppendur sem að vilja rifja upp gamla daga.
Þessi breyting er búin að fara fyrir fund hjá reglunefnd og fékk þar brautargengi meirihluta nefndarinnar.
(Ingólfur Arnarson var forfallaður á þessum fundi.)
Kv.
Hálfdán Sigurjónsson.
(Í reglunefnd)