Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: 57Chevy on March 01, 2008, 21:41:55

Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: 57Chevy on March 01, 2008, 21:41:55
Það hefur verið lítið um bíla dagsins undafarið. Nú skoðum við GM. Fann þessa í gömlum myndum. Kannast eitthver við þennan Camaro, gæti hafa verið í Garðinum? :shock: 8)
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Ingvar Gissurar on March 01, 2008, 22:29:03
Myndin er amk. tekin í Garðinum.  Nánar tiltekið á túninu á Vörum sýnist mér.
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Gummari on March 01, 2008, 23:50:30
er þetta bíllinn sem er gulur fyrir austan í dag :?:
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Moli on March 02, 2008, 00:03:56
Ef þetta er kann þá kannski kannast einhver við fyrrum eigendur bílsins


Eigendaferill
13.10.2003 Jóhannes Geir Sigurjónsson Brjánsstöðum
20.08.2002 Kristbjörn Haraldsson Bræðraborgarstíg 37
27.10.1999 Benedikt Bergmann Svavarsson Kríuási 47
17.03.1997 Yngvi Eiríksson Heiðvangi 64
24.10.1994 Kristján Arndal Eðvarðsson Borgarvík 9
25.03.1991 Sveinn Ásgeirsson Faxastíg 43
08.07.1986 Sigfús Pétur Pétursson Hólagötu 18
30.06.1980 Ingimar Jón Þorvaldsson Norðurgarði 21
21.02.1980 Sigurbjörn Þ Guðmundsson Akurgerði 4
10.07.1979 Arngrímur Friðrik Pálmason Háaleitisbraut 87
13.02.1979 Guðjón Sveinsson Krummahólum 10
29.06.1977 Áslaug Jónsdóttir Vestursíðu 26

Númeraferill
08.09.1995 AX811
10.07.1986 V2111
30.06.1980 Ö2196
21.02.1980 E830
10.07.1979 R65954
13.02.1979 L809
02.06.1977 A2956
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Belair on March 02, 2008, 00:15:20
þá er þetta kann (hann) 1986 úrþinnu safni Moli

(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/camaro_67_69/1968_camaro_fusi_327.jpg)

(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/camaro_67_69/normal_1968_camaro_fusi1_327.jpg)
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Ingvar Gissurar on March 02, 2008, 00:15:49
Þetta er þáverandi eigandi. Hann átti einmitt heima þar sem myndin er tekin og átti allnokkra skemtilega bíla á sínum tíma.
"30.06.1980 Ingimar Jón Þorvaldsson Norðurgarði 21"

Það má bæta því við að bróðir hans á rauða ´73, 455 Transinn.
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Belair on March 02, 2008, 00:35:30
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/camaro_67_69/1968_camaro_gulur_1.JPG)

hver valdi þennan lit hann svona
Quote from: "Bob Falfa "
Sort of a cross between piss yella' and puke green ain't it?


 :D
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: 57Chevy on March 02, 2008, 11:52:43
Þá vitum við það að þessi er á lífi enn þá. Ætli sé verið að vinna eitthvað í uppgerðar málum?
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: crown victoria on March 02, 2008, 12:33:36
http://bks.informe.com/viewtopic.php?t=4

þetta er allavega linkur frá því fyrir rétt rúmu ári síðan það var einn hér á spjallinu sem heitir Jóhannes sem átti hann...hann hefur greinilega verið búinn að gera slatta gott fyrir hann þannig að það er spurning hvort hann sé ekki bara í ágætis standi  :)
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Moli on March 02, 2008, 12:48:55
Ég spurðist fyrir um hann bara í vikunni og það er bróðir Jóhannesar sem á hann, keypti hann víst af honum. Veit ekki um ástandið.
Title: ´68 Camaro
Post by: Sævar Pétursson on March 02, 2008, 21:33:39
Það er gaman að sjá þessa mynd (fyrstu). Ég á nefnilega enga mynd af honum sjálfur. Ég vann mikið í þessum bíl fyrir Inga í Vörum og þetta var útkoman, strípur og alles eins og þetta var í þá daga. Ingi keypti þennan Camaro ofan af Skaga og var hann þá Grænn með grænum "Flames" og vinyl og þessum líka æðislega spoiler að aftan sem við nenntum ekki að taka af(úr járni og soðinn á) Ég fór með honum upp á skaga til að ná í hann og síðasta spölinn ss alla Reykjanesbrautina var 327 kjúklingurinn látinn vinna fyrir kaupinu sínu í kappakstri við ´72 Road runner með 433 drif sem þoldi ekki álagið þ.e.a.s. drifið  

Bara svona smá innskot

Kveðja Sævar P.
Title: humm
Post by: Jóhannes on March 06, 2008, 22:20:03
Já það má eiginlega ekki segja frá því að við bræður höfum ekki gefið þessum mikla athygli undan farið ...og hreinlega dottið í hug að selja hann og svo stoppað sölur útaf eftir sjá ...en ég setti hann nú gang í gær og bakkaði honum tvö metra svona bílnum til ánægju, en jeppa og sleða sportið er svo mikið þessa dagan að ég held að hann þurfi að kvíla sig aðeins lengur þangað til við förum að spíta í lófana og gera hann upp eða taka í höndina á næsta eiganda ...vona að við gerum hann upp  :?

en það sem er búið að hugsa um gullið það vantar bara smá kick í rassinn

454 vél aðeins heitur ás
400 skifting kopardiskar og shift kit

bodýhlutir sem voru keyftir nýir og eru en til pökkum
frambrettinn
afturbrettinn
toppur
allt gólf efni ...frá bílstjóra tám til aftur ljósa
húdd frá ómar norðdal ...mega speisað
stk fyrir framan húddið

það var eitthvað meira komið líka
kælar, drifskaft, felgur, dekk, grindarteinging so on so on

mikil vinna eftir til að ná þessu í hreint ástand en er meira en þess virði

en þessi mynd þarna sýnir hvað þessir camaroar eru andskoti flottir ...mér þótti meira segja mjög gaman að sjá hana ...þetta ýtir undir það að fara gera eitthvað í honum  :roll:

fór og tók myndir af honum ...getið séð hvað hann rykfellur greyið  :lol:
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: íbbiM on March 07, 2008, 17:48:19
ég skal taka hann upp í minn 8)
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Jóhannes on March 08, 2008, 02:23:53
Quote from: "íbbiM"
ég skal taka hann upp í minn 8)


selst aðeins gegn staðgreiðslu ...stend fast á því

  1.100.000krónur íslenskar það er verðið
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Anton Ólafsson on March 27, 2008, 18:01:51
Er þetta ekki hann líka?
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Jóhannes on March 27, 2008, 18:58:19
hann er seldur ...og komin í akstur ...  :?
Title: Bíll Dagsins 01-03-08
Post by: Moli on March 27, 2008, 20:08:58
nú.... hver keypti?  :)
Title: *
Post by: SnorriRaudi on April 06, 2008, 13:11:04
Djöfull var hann hrottalega flottur þegar hann var svartur maður.  Þangað til fyrsti litblindi sprautarinn gluðaði þessum hryllingi á hann