Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Belair on April 13, 2013, 19:38:15

Title: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: Belair on April 13, 2013, 19:38:15
(http://img.visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20130413&Category=FRETTIR01&ArtNo=130419656&Ref=AR&MaxW=420&MaxH=420&NoBorder=1)

Quote from: visir.is
Eldur kviknaði í glæsilegri Pontiac bifreið í Hveragerði í gærkvöldi. Eigandinn hafði keypt bílinn notaðan en samkvæmt lögreglu var bíllinn bilaður þegar eigandinn keypti hann.

Eigandinn hafði gert hann upp og mun hafa ætlað að prufukeyra hann í gærkvöldi. Ekki er ljóst hvað gerðist svo en eldur kviknaði mjög snögglega undir vélarhlíf bílsins. Lögreglan á Selfossi var fyrir tilviljun stödd rétt hjá þar sem kviknaði í bílnum.

Þeir komu á vettvang og reyndu að slökkva eldinn með slökkvitæki en það tókst ekki. Kalla varð því út slökkviliðið sem tókst að slökkva eldinn á innan við tíu mínútum. Bíllinn er þó stórskemmdur - hugsanlega gjörónýtur. Það er því ljóst að eigandinn situr eftir með sárt ennið.
Title: Re: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: duke nukem on April 13, 2013, 20:56:10
Ég er hræddur um ad tetta sé minn gamli ZU-682
Title: Re: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: Belair on April 13, 2013, 21:22:18
LT bill  :-k ætti þetta hafi verið nýupptekinn motorinn
Title: Re: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: Kiddicamaro on April 13, 2013, 21:23:32
Það er kannski bara ég, en mér finnst þessi fyrirsögn á þræðinum afskaplega óviðeigandi. :???: Það er gott að vita að þer er annt um eigur annara en þetta orðalag tengist öllu alvarlegri hlutum en gömlum bíl. Aðvitað hundfúlt að lenda í þessu en væntanlega tengist þetta einhversskonar vanrækslu við "uppgerðina" svokölluðu.
Title: Re: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: GesturM on April 13, 2013, 22:10:50
þetta er ZU682, við vorum að setja skiftingu í hann og ekki er vitað hvað gerðist nákvæmlega.
Title: Re: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: Belair on April 13, 2013, 22:25:16
er tjónið bara í húddinu.
Title: Re: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: GesturM on April 13, 2013, 22:38:59
Já það er bara í húddinu.
Title: Re: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: Runner on April 13, 2013, 22:41:11
þetta er sorglegt  #-o
Title: Re: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: Belair on April 13, 2013, 22:54:31
þanngi Þarf að finna front clip,hudd,rafmagn and annað
Title: Re: hugur minn er hjá eigandanum á þessum erfiðum tímum
Post by: duke nukem on April 13, 2013, 23:05:41
 :evil: