Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: marias on April 09, 2010, 19:19:21
-
jæja ætla að reyna aftu. gat ekki breitt gamlaþræðinum :mad: Ég er ætlaði að ath hvort eithver gæti frætt mig um sögu þessa bíls og ef eithver vissi um annan svona herna á skerinu. fast númer á honum er FF 961
(http://carphotos.cardomain.com/ride_images/1/836/2141/2088570084_large.jpg)
-
Er Birgir Brynjólfsson meðal fyrri skráðra eigenda ?
-
Er Birgir Brynjólfsson meðal fyrri skráðra eigenda ?
ja það passar
-
Það litla sem ég veit er það,að Birgir Brinjólfsson (Fjalli) átti þennan í kring um 1980.Í hans eigu var hann á bílasýningu KK sem haldin var í Sýningarhöllinni við Bíldshöfða (Húsgagnahöllin/Intersport) ´80 eða ´81.Birgir hafði málað hann svartann með að mig minnir gylltum pinstripe röndum og á hliðunum á húddinu stóð "Turbocharged".Eins minnir mig að í afturrúðunni hafi staðið stórum stöfum Ford.Vélin var L-6 og við hana beinskiftur kassi.Fjalli hafði græjað túrbo við sexuna og hvað hana hafa unnið með hreinum ágætum.
-
oki eru til eithvað að myndum af þessum bíl frá þessum tíma?
afturrúðan
(http://carphotos.cardomain.com/ride_images/1/836/2141/2088570085_large.jpg)
-
Man eftir einum álíka á Akranesi,198 og eitthvað, minnir að seinni eigandinn hafi sett 302 í hann :-k
-
Fjalli á örugglega einhverjar myndir af honum og eins mundi ég ráðleggja þér að hringja í kallinn,hann hefði örugglega gaman af að vita af bílnum.
-
það er lína 6 í þessum núna beinskiptur ígólfi ....
ja maður kanski hringir í gamla... En af hverju virkar ekki síðan hjá mola? bilavefur.net
-
Það er búið að loka henni skylst mér...
-
Ef þetta er 300 línu sexa mundi ég íhuga að halda henni
-
Ef þetta er 300 línu sexa mundi ég íhuga að halda henni
ég veit ekki.. mer finst hún ekkert spes, við áttum liner með 300 vél hún var ekkert æði,, það eru kanski til fleiri útfærslur af henni?
-
Sæll Marias
Ég átti þennan bíl ´82 og þá var hann með 239 cup sexu sem kom úr ´59 vörubíl af vellinum og túrbínu sem blés í gegn um blöndunginn
það var 3ja gíra kassi og gólfskipting í honum. Ég á einhvers staðar myndir af honum sem ég þarf að finna. Það væri gaman að fá að sjá gripinn hjá þér
Kv. Orri
-
300 sexa með flækjur og 4 hólfa blöndung talanú ekki um ef búið er að setja skemtilegan knastás er algjör snild reyndar átti ég lýka F150 sjálfskiptan efi sem mér fanst ekkert spes á móti hinum beinskiptum
-
Sæll Marias
Ég átti þennan bíl ´82 og þá var hann með 239 cup sexu sem kom úr ´59 vörubíl af vellinum og túrbínu sem blés í gegn um blöndunginn
það var 3ja gíra kassi og gólfskipting í honum. Ég á einhvers staðar myndir af honum sem ég þarf að finna. Það væri gaman að fá að sjá gripinn hjá þér
Kv. Orri
ja það er nú lítið mál að fá að skoða hann.. hann stendur bara í geymslu núna og bíður eftir því að verkstæðið hjá mer verði klárt. Ég yrði mjög þakklátur fyrir gamlar myndir af gripnum
Kv. Marías
-
Svona var hann þegar ég átti hann.
-
Hvað er að frétta af þessum :?:
-
cool pallbíll gaman að sjá svona gamlan pallbíl altof fáir svona til , allavega sjáanlegir ,ég væri til í 1 svona ... .. :mrgreen:
-
Hvað er að frétta af þessum :?:
Hann stendur bara inni og bíður eftir því að ég klári iðnaðarhúsnæðið hjá mér