Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Buddy on January 13, 2008, 01:18:42

Title: Synd og skömm :(
Post by: Buddy on January 13, 2008, 01:18:42
Hvaða snillingur gerir svona  :(

http://www.visir.is/article/20080112/FRETTIR01/80112037

Kv.

Buddy
Title: Synd og skömm :(
Post by: 1965 Chevy II on January 13, 2008, 01:29:59
Þetta heitir óhapp og getur hent alla.
Aftur á móti er magnað að vísir skuli ekki geta stafað PORSCHE rétt!
Title: Synd og skömm :(
Post by: Kristján Skjóldal on January 13, 2008, 01:34:01
já það er líka hægt að lenda í tjóni á þessum dýru bílum :?
Title: Synd og skömm :(
Post by: Valli Djöfull on January 13, 2008, 02:36:15
nýskráður 8. Janúar 2008  :?
Title: Synd og skömm :(
Post by: Einar Birgisson on January 13, 2008, 12:07:07
" Bíllinn er gjörónýtur eftir útafaksturinn. " Vísir.

Slys eða óhapp minn rass, á Grindarvíkur-veginum, auðvitað hefur 25 kúlu 911 GT3RS ekki höndlað 90 km hámarks hraðan á þessum vegi.
Og hver kemur til að borga brúsan ? VIÐ gerum það strákar.
Title: Synd og skömm :(
Post by: Jói ÖK on January 13, 2008, 13:38:44
ég sá þennan bíl keyra í gegnum árbæinn, í átt frá RVK... og ég var á leiðinni í átt að RVK, stoppaði á gömlu N1 stöðinni í ártúnsbrekku... þá horfði ég á hann koma á miiiiiiklum hraaaaða niður ártúnsbrekkuna, sikksakkandi á milli bíla og að leika sér... og það í mikilli umferð rétt eftir 5 :?
Title: Synd og skömm :(
Post by: firebird400 on January 13, 2008, 14:02:38
Hver átti svona fínt dót
Title: Synd og skömm :(
Post by: Bc3 on January 13, 2008, 14:12:51
ég keyrði frammhjá þessu þarna um nottina og bilinn var það krumpaður að ég hélt að þetta væri hvitur yaris
Title: Synd og skömm :(
Post by: Skari™ on January 13, 2008, 14:15:52
Quote
keyrður um 300 km.


Ja hérna :shock:
Title: Synd og skömm :(
Post by: AlliBird on January 13, 2008, 14:56:30
Stutt og dýrt gaman..
.. en kannski var hann í kaskó
Title: Synd og skömm :(
Post by: Porsche-Ísland on January 13, 2008, 15:32:13
(http://i217.photobucket.com/albums/cc105/tvillingefar/P1120026.jpg)

(http://i217.photobucket.com/albums/cc105/tvillingefar/P1120008.jpg)

(http://i217.photobucket.com/albums/cc105/tvillingefar/P1120030.jpg)
Title: Synd og skömm :(
Post by: Skari™ on January 13, 2008, 15:33:53
Shiiiii :shock:
Title: Synd og skömm :(
Post by: Porsche-Ísland on January 13, 2008, 15:35:33
Quote from: "AlliBird"
Stutt og dýrt gaman..
.. en kannski var hann í kaskó


Auðvitað var hann í kaskó.

Þegar þú kaupir bíl á bílasamning þá verður hann að vera í kaskól.

SP lánaði fyrir þessum.

Auðunn fékk hann á 08-01 og þá ekinn 69 km.
Og á föstudagskvöldið endai saga þessa bíls í 299 km.

Búinn að eiga áður kraftmikinn Porsche en hann var 4x4 og munar það helling.

Og ekki hjálpar að vera á breiðum sumardekkjum í frosti.
Title: Synd og skömm :(
Post by: Jói ÖK on January 13, 2008, 15:36:05
ááááts!
Title: Synd og skömm :(
Post by: AlliBird on January 13, 2008, 16:09:08
Ekki samt víst að fáist greitt úr kaskó ef sannast að um ofsaakstur hafi verið að ræða.
Tryggingarnar borga örugglega ekki ef það eru einhver vafaatriði..
Title: Synd og skömm :(
Post by: Porsche-Ísland on January 13, 2008, 16:13:06
Quote from: "AlliBird"
Ekki samt víst að fáist greitt úr kaskó ef sannast að um ofsaakstur hafi verið að ræða.
Tryggingarnar borga örugglega ekki ef það eru einhver vafaatriði..


Hvernig eiga þeir að gera sannað það.

Eiga þeir að kaupa annan á 25 milljónir og prufa að missa vald á honum á 80 og fara svo aftur ef hægt er og missa hann á 100.

Held að þetta yrði erfitt mál fyrir þá.

Eg þeir eru ekki með radarmælingu af bílnum rétt fyrir slysið þá geta þeir fátt gert.
Title: Synd og skömm :(
Post by: AlliBird on January 13, 2008, 16:44:48
Held að það sé yfirleitt metið út frá lengd bremsufara, hversu mikið tjón er á bílnum os.frv. Þeir eru með einhverja staðla sem þeir meta þetta eftir.
Title: Synd og skömm :(
Post by: motors on January 13, 2008, 17:56:49
Hálka,hálkublettir?Skiptir jú mestu máli að sleppa frá þessu óskaddaður að mestu.
Title: Synd og skömm :(
Post by: baldur on January 13, 2008, 18:17:13
Quote from: "AlliBird"
Ekki samt víst að fáist greitt úr kaskó ef sannast að um ofsaakstur hafi verið að ræða.
Tryggingarnar borga örugglega ekki ef það eru einhver vafaatriði..


Ef það eru einhver vafaatriði þá átt þú að fá að njóta vafans, ekki tryggingafélagið.
Title: Synd og skömm :(
Post by: AlliBird on January 13, 2008, 18:31:16
Skulum bara vona hans vegna að þetta fari vel því þetta er þvílíkt tjón..
Title: Synd og skömm :(
Post by: Einar Birgisson on January 13, 2008, 18:32:45
Já ég ætla að vona að hann hafi verið í kaskó svo að við getum hjálpað til við að borga dæmið.
Title: Synd og skömm :(
Post by: HK RACING2 on January 13, 2008, 20:36:44
Það sjá það nú allir heilbrigðir menn að þessi var ekki nema á hámark 50 :roll:
Það er búið að vera átak í þessum málum hjá tryggingafélögunum og eru nokkur svona mál í dómskerfinu,veit um einn STI Subaru sem tjónaðist fyrir 18 mánuðum og er enn ekki komið á hreint,Það er eitt að skemma bílinn sinn sem er leitt en stundum eiga menn það ekki skilið að fá bílinn bættan þar sem um afglöp er að ræða,ætla ekkert að segja um þennan bíl en að mínu mati er kominn tími til að gera rassíu í svona málum.
Title: Synd og skömm :(
Post by: edsel on January 13, 2008, 20:41:34
það er ekkert eftir af bílnum :shock:
Title: Synd og skömm :(
Post by: maggifinn on January 13, 2008, 21:15:39
Quote from: "HK RACING2"
Það sjá það nú allir heilbrigðir menn að þessi var ekki nema á hámark 50 :roll:
Það er búið að vera átak í þessum málum hjá tryggingafélögunum og eru nokkur svona mál í dómskerfinu,veit um einn STI Subaru sem tjónaðist fyrir 18 mánuðum og er enn ekki komið á hreint,Það er eitt að skemma bílinn sinn sem er leitt en stundum eiga menn það ekki skilið að fá bílinn bættan þar sem um afglöp er að ræða,ætla ekkert að segja um þennan bíl en að mínu mati er kominn tími til að gera rassíu í svona málum.

 
  =D>
Title: Synd og skömm :(
Post by: Valli Djöfull on January 13, 2008, 22:55:24
Quote from: "AlliBird"
Ekki samt víst að fáist greitt úr kaskó ef sannast að um ofsaakstur hafi verið að ræða.
Tryggingarnar borga örugglega ekki ef það eru einhver vafaatriði..

Af hverju virðast allir svona öruggir á því að hann hafi verið á sóðalegum hraða?

Þetta er ekkert nema hraun og rugl þarna eða hvað?  Þarf nú ekki mikið til að skemma bíl illa við að rúlla eftir hrauni..

Rannsókn málsins leiðir í ljós hvað gerðist, hvort hraðinn var of mikill og allt það..  En sumir hér virðast geta séð það á myndunum einum saman, rannsóknardeild lögreglunar væri í góðum málum með suma hér í vinnu fyrir sig, þá þyrfti ekkert að rannsaka vettvang, nóg að heyra bara hvað gerðist og þá er nokkuð augljóst hver hraðinn var?  :roll:

Mætti halda að máður væri að lesa moggablogg þegar maður les þennan þráð  :shock:
Title: Synd og skömm :(
Post by: Björgvin Ólafsson on January 13, 2008, 23:01:45
Ertu að meina; blogg - blogg - blogg - blogg - blogg - blogg - hraði, blogg - blogg - blogg - blogg - blogg - blogg - blogg - blogg - tryggingamisferli?

kv
Björgvin :lol:
Title: Synd og skömm :(
Post by: Jón Þór Bjarnason on January 14, 2008, 01:08:10
Eins og Maggi segir.
Við útrýmum aldrei hraðakstri, en það er hægt að fær'ann á lokuð svæði
Title: Synd og skömm :(
Post by: Buddy on January 14, 2008, 10:41:30
Ekki það að ég hafi ætlað að stofna þráð um samskipti manna við tryggingarfélög, heldur ótrúlega hæfileika landans að skemma eða eyðileggja ofur-sportbíla... ónefnda tölu Porsche, Ford GT og jafnvel Ferrari.

Greinilegar vísbendingar um að það vantar braut til að fá útrás og æfingu.

Kv.

Buddy
Title: Synd og skömm :(
Post by: einarak on January 14, 2008, 11:37:48
Quote from: "Porsche-Ísland"
Quote from: "AlliBird"
Ekki samt víst að fáist greitt úr kaskó ef sannast að um ofsaakstur hafi verið að ræða.
Tryggingarnar borga örugglega ekki ef það eru einhver vafaatriði..


Hvernig eiga þeir að gera sannað það.

Eiga þeir að kaupa annan á 25 milljónir og prufa að missa vald á honum á 80 og fara svo aftur ef hægt er og missa hann á 100.

Held að þetta yrði erfitt mál fyrir þá.

Eg þeir eru ekki með radarmælingu af bílnum rétt fyrir slysið þá geta þeir fátt gert.


Það þarf eflaust ekki neinn geimvísindafræðing til að sanna að það var frost þarna, og bíllinn ekki á dekkjum ætluðum í hálkuakstur. Einsog þú sagðir sjálfur. Það eitt sparar tryggingafélaginu 25millz. Svo getað þeir reiknað út hraða bílsins miðað við hvað hann fer langt útaf og allt eftir því. Tryggingarnar eru eflaust til í að setja smá púður í ranskóknir, til að losna við þessa útborgun.
Gríðarlega leiðinlegt fyrir gæjann, en gott að hann slapp ómeiddur úr þessu
Title: Synd og skömm :(
Post by: keb on January 14, 2008, 12:16:17
já flottur....

hann kann kanski að keyra hratt og allt það  -  en hann er VONLAUS í því að leggja eins og sést greinilega þa þessum myndum  :roll:
Title: Synd og skömm :(
Post by: AlliBird on January 14, 2008, 14:33:46
Skilst að eigandinn hafi þó farið á námskeið út til Porche til að læra að aka þessarri græju... kannski ekki tekið vel eftir í tímum.. :roll:
Title: Synd og skömm :(
Post by: Aron M5 on January 14, 2008, 16:56:10
Quote from: "einarak"
Quote from: "Porsche-Ísland"
Quote from: "AlliBird"
Ekki samt víst að fáist greitt úr kaskó ef sannast að um ofsaakstur hafi verið að ræða.
Tryggingarnar borga örugglega ekki ef það eru einhver vafaatriði..


Hvernig eiga þeir að gera sannað það.

Eiga þeir að kaupa annan á 25 milljónir og prufa að missa vald á honum á 80 og fara svo aftur ef hægt er og missa hann á 100.

Held að þetta yrði erfitt mál fyrir þá.

Eg þeir eru ekki með radarmælingu af bílnum rétt fyrir slysið þá geta þeir fátt gert.


Það þarf eflaust ekki neinn geimvísindafræðing til að sanna að það var frost þarna, og bíllinn ekki á dekkjum ætluðum í hálkuakstur. Einsog þú sagðir sjálfur. Það eitt sparar tryggingafélaginu 25millz. Svo getað þeir reiknað út hraða bílsins miðað við hvað hann fer langt útaf og allt eftir því. Tryggingarnar eru eflaust til í að setja smá púður í ranskóknir, til að losna við þessa útborgun.
Gríðarlega leiðinlegt fyrir gæjann, en gott að hann slapp ómeiddur úr þessu


bilinn var nyr og þá væntalega a nyjum dekkjum það er ekki i lögum að þu þurfir að vera a vetrdekkjum heldur þarf að vera nog munnstur i dekkjonum
Title: Synd og skömm :(
Post by: Jón Þór Bjarnason on January 14, 2008, 19:49:42
Þessi ökumaður var búinn að fara á öll ökunámskeið hjá # PORS fyrir utan eitt námskeið. Þessi maður er mjög vanur kraftmiklum bílum. Því miður þá er búið að sanna að hann keyrði alltof hratt.







# PORSCHE  :lol:
Title: Synd og skömm :(
Post by: Jói ÖK on January 14, 2008, 20:39:08
ég held að þessi bíll kunni nefninlega ekki að keyra hægt :oops:  :lol:  :lol:
Title: Synd og skömm :(
Post by: Aron M5 on January 14, 2008, 21:01:44
það var mjög lumsk hálka á staðnum eg tok ekki eftir henni fyrr en eg fór að bremsa
Title: Synd og skömm :(
Post by: keb on January 14, 2008, 21:42:40
Quote from: "Aron M5"
það var mjög lumsk hálka á staðnum eg tok ekki eftir henni fyrr en eg fór að bremsa


Hvernig getur hálka verið "lúmsk" ????  

læðist hún þá aftan að manni eða ....
Title: Synd og skömm :(
Post by: Gilson on January 14, 2008, 22:04:36
you get the point !
Title: Synd og skömm :(
Post by: Frikki... on January 14, 2008, 22:14:46
synd synd synd synd synd geðveikur bíll 25 kúlur fær hann eithvað úr tryggingunum
Title: Synd og skömm :(
Post by: Valli Djöfull on January 14, 2008, 22:37:09
Quote from: "Nonni_Bjarna"
Þessi ökumaður var búinn að fara á öll ökunámskeið hjá # PORS fyrir utan eitt námskeið. Þessi maður er mjög vanur kraftmiklum bílum. Því miður þá er búið að sanna að hann keyrði alltof hratt.







# PORSCHE  :lol:


Inside information?  :shock:   Ekki komið í fjölmiðla er það?
Title: Synd og skömm :(
Post by: Kiddicamaro on January 14, 2008, 23:52:28
Quote from: "Aron M5"
það var mjög lumsk hálka á staðnum eg tok ekki eftir henni fyrr en eg fór að bremsa


þá hefði þetta ekki verið vandamál ef þú hefðir verið á túttum sem hæfa  tíðarfari :? það er VETUR :idea:
Title: Synd og skömm :(
Post by: Jón Þór Bjarnason on January 15, 2008, 00:12:29
Ég vill taka það til baka að það hafi verið búið að sanna að um of hraðann akstur hafi verið að ræða.
Mínar upplýsingar voru ekki áræðanlegar.
Title: Synd og skömm :(
Post by: edsel on January 15, 2008, 00:13:33
Quote from: "KRISSI"
Quote from: "Aron M5"
það var mjög lumsk hálka á staðnum eg tok ekki eftir henni fyrr en eg fór að bremsa


Hvernig getur hálka verið "lúmsk" ????  

læðist hún þá aftan að manni eða ....

þá sést hún ekki, getur verið þakinn sjnó, eða að þá að klakinn er þunnur og mattur þannig að maður tekur ekki eftir honum, endilega leiðrétta mig ef ég fer með rangt mál
Title: Synd og skömm :(
Post by: 1965 Chevy II on January 15, 2008, 00:21:38
http://en.wikipedia.org/wiki/Black_ice
Title: Synd og skömm :(
Post by: Kiddi on January 15, 2008, 00:28:56
Ég held nú allveg að menn viti hvað er átt við þegar er talað um lúmska hálku....
Mér finnst það bara svo fáránlegt að kenna einhverju svoleiðis um þegar Janúar er varla hálfnaður og það er snjókoma annanhvern dag........
Við hverju búast menn :lol:

Svona tæki eiga að vera inni og undir ábreiðu á þessum tíma árs 8)
Title: Saga úr (ekki AF)hrauninu....
Post by: C-code on January 15, 2008, 08:00:16
Var að flytja Mustanginn suður í Njarðvík um miðjan Nóvember sl, sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi, nema það það þegar ég legg af stað út götuna, þá sé ég móta fyrir hjólförum á því sem mér sýndist vera marautt malbik. Icing on the cake, OK, þá er gott að vera með big block vél með 250 -260° og gríðarlegt lift og 8 - 9 tommu converter .... tekur nebblilega svo mjúklega á.

Síðan var ekið áleiðis á stöðina og tankað af besta djúsi sem hægt var að fá .... alveg við frostmark inni í bílnum ...smá hiti frá flækjunum upp í gegn um gólfið.

Svo af stað upp Hvaleyrarholtið og suður úr. Sé glitra á ís á veginum hér og þar. Við álverið mæti ég 18 - wheeler með einhvern arsloch við stýrið. Aftan í er risavagn og einhver vítisvél á honum. Úr tækinu úðast þvílíkt magn af vatni .... einhverskonar valtari með fulla tanka af vatni sem lekur út um alla götu .... ekur náttúrulega á um 100km hraða þannig að úr þessu verður fínn úði sem dreifist um allan veg. Vegurinn er ein glæra fyrir aftan þennan bjána og ég tek upp símann til þess að hringja í lögregluna, en læt það ógert, enda nóg framundan að fást við.

Þegar ég kemst inn á tvöfalda veginn í Hvassahraunslandinu er allt OK, svo kemur Kúagerðið sælla minninga og ég bæti aðeins í, enda orðið hrollkalt í bílnum. Það var nú ansi gaman í Kúagerðinu, menn með haglabyssur og brennivínsflöskur, lögreglan og hálfur bærinn þarna suðurfrá allar nætur ..,,, den tid ....

Svo fer bílunum að fjölga vegna þess að ég held ekki nógu stíft áfram, enda vegurinn eins og á sumardegi ... allt þurrt og fínt. Ek Strandarheiðina og það er ekki leiðinlegur niðurinn í 7000 rúmsentimetra vél ..... þið vitið ... með tæplega 12 :1 ....

Svo fer veginum að halla aðeins og landslagið lækkar þar sem breikkunin endaði þar til í vor, c.a. 4km austan Vogaafleggjarans .... Bílar færast nær í speglinum og einn kemur rólega upp að mér og færir sig á vinstri akrein. Ég tel mig hafa verið á c.a. 90 give or take og hafði varann a mér. Hann hikar og glápir greinilege á þessa amerísku abomination of a car með tvö þriggja tommu púströr og með skrásetningar númerið "CJ" ... Ja-á .... hann hefur verið að horfa á Baywatch þessi CJ maður ... Pam Anderson aðdáandi ... og gefur svo allt í botn þegar hann er kominn c.a. meter fram fyrir mig og vonar greinilega að ég svari og vilji taka einn gráan ...

Þá gerist það .... í slow motion sé ég þennan multi milljón króna Lexus SC-300 hefja sig til flugs ... bókstaflega .... hægra afturhjól virðist lyftast upp og græjan byrjar að lensa ....svo er það út á hlið vinstri ... broadside beint fyrir framan mig og ég sleppi bensíninu ... hann snýst 180° og lýsir nú beint framan i mig á um 110-120 km hraða .... afturábak og ég hugsa .... this is it ... ég fer á hann á fullri ferð og ekki meir um það. Svo snýst hann heilhring fyrir framan mig og við þessar aðstæður hverfur allt í ofboðslegum rykmekki og nú er hann að missa bílinn út af veginum hægra megin. Shit .. ég er flæktur í eitthvað sem líkist World´s wildest police videos......

Nú kastast vinurinn inn á veginn aftur og snýst annan heilhring á götunni á þessum líka fínu low profile dekkjum.... rennur svo á fullri ferð út af hægra megin og snýst hálfhring, skoppar eins og blaðra ... dekk rifna og felgur bogna eða brotna. Endar þar þvert á veginn c.a. bíllengd utan vegar, með ljósin inn á veginn. Á hjólunum ... shaken not stirred!

Einn stoppar fyrir aftan .... ég í kantinum ... og hann gengur að bilnum snarast að þessum metro gæja  sem hefur skriðst út úr bílnum og spyr: "Er ekki í lagi meððig maður?" Vinurinn svara með miklum hreim: "Do you speak english?"

OK ... hann er í lagi en aðeins boginn eftir að hafa spælt bjúkkann þarna á hraðbrautinni og ég tek upp símann og hringi í 112. Þar er mér gefið samband við lögregluna og ég sagði frá þvi sem fyrir augun bar og dro ekkert undan.

Svörin voru mjög einkennileg ... svona ... lítil viðbrögð og ekkert gefið fyrir það sem ég var að segja ... svo ég lét fjúka í og sagði viðkomandi að bera vegagerðarmönnum eða starfsmönnum Vogakauptúns að get off the lard ass og saltbera veginn, því þarna væri að skapast algert neyðarástand. Þessu var lofað.

Svo legg ég af stað og c..a 2 km lengra stendur lögreglubíll í vegkantinum hægra megin ..... og skýringin á þvi af hverju ég fékk engin viðbrögð frá HQ ... en það var pallbíll .... svona .... medium ... gæti hafa verið Toyota DC eða Nissan ... á þakinu c.a. 50 metrum utan vegarins og  búinn að klippa niður ljósastaur.

Þegar við komum til baka hálftíma síðar var ekki þverfótað fyrir saltbílum og staffi sem var að sópa ruslinu upp af götunni......

Mustanginn er bæði undir plasti og yfirbreiðslu .... og miðstöðin er komin í lag ..

En sú var tíðin að maður vílaði ekki fyrir sér að gera það sama og þessi gaur.
Title: Synd og skömm :(
Post by: keb on January 15, 2008, 08:00:52
ég hefði kannski átt að orða þetta betur ..... á þessum árstíma er ekki lúmsk hálka heldur má gera ráð fyrir því að það sé hreinlega lítið sem ekkert grip alltaf og alls staðar

þess vegna datt þessi heimskulega orðaða spurning upp !
Title: Synd og skömm :(
Post by: Aron M5 on January 15, 2008, 08:50:45
lúmsk það var þurrt og það leit engan veginn ut fyrir að vera hálka það var ekki buið að vera hálka neinnstaðar nema þarna akkurat
Title: Re: Saga úr (ekki AF)hrauninu....
Post by: 1966 Charger on January 15, 2008, 10:38:17
Arnaldur Indriðason hvað??????

Ég mæli með að KK fái Doctor Cyclone til að skrifa fasta pistla á þennan vef.  Hér er nefnilega vandað til verks og mörg gullkorn að finna:

Ragnar

Quote from: "Cyclone CJ"

 Icing on the cake, OK, þá er gott að vera með big block vél með 250 -260° og gríðarlegt lift og 8 - 9 tommu converter .... tekur nebblilega svo mjúklega á.

Síðan var ekið áleiðis á stöðina og tankað af besta djúsi sem hægt var að fá .... alveg við frostmark inni í bílnum ...smá hiti frá flækjunum upp í gegn um gólfið.

svo kemur Kúagerðið sælla minninga og ég bæti aðeins í, enda orðið hrollkalt í bílnum. Það var nú ansi gaman í Kúagerðinu, menn með haglabyssur og brennivínsflöskur, lögreglan og hálfur bærinn þarna suðurfrá allar nætur ..,,, den tid ....

og það er ekki leiðinlegur niðurinn í 7000 rúmsentimetra vél ..... þið vitið ... með tæplega 12 :1 ....

númerið "CJ" ... Ja-á .... hann hefur verið að horfa á Baywatch þessi CJ maður ... Pam Anderson aðdáandi ... og gefur svo allt í botn þegar hann er kominn c.a. meter fram fyrir mig og vonar greinilega að ég svari og vilji taka einn gráan ...

og nú er hann að missa bílinn út af veginum hægra megin. Shit .. ég er flæktur í eitthvað sem líkist World´s wildest police videos......

Á hjólunum ... shaken not stirred!

Einn stoppar fyrir aftan .... ég í kantinum ... og hann gengur að bilnum snarast að þessum metro gæja  sem hefur skriðst út úr bílnum og spyr: "Er ekki í lagi meððig maður?"

En sú var tíðin að maður vílaði ekki fyrir sér að gera það sama og þessi gaur.
Title: Synd og skömm :(
Post by: AlliBird on January 15, 2008, 10:50:20
Hálka eða ekki hálka, lúmsk eða ekki..- ÞAÐ ER VETUR !! mætti ætla að sá sem hefur efni á 25 mills bíl hefði efni á að kaupa undir hann vetrardekk,.. eða setja hann á keðjur ??...
Title: Synd og skömm :(
Post by: Kimii on January 15, 2008, 12:13:30
Quote from: "AlliBird"
Hálka eða ekki hálka, lúmsk eða ekki..- ÞAÐ ER VETUR !! mætti ætla að sá sem hefur efni á 25 mills bíl hefði efni á að kaupa undir hann vetrardekk,.. eða setja hann á keðjur ??...


haha sé fyrir mér 25 spíru porcshe á keðjum
Title: Synd og skömm :(
Post by: Gilson on January 15, 2008, 14:00:05
Quote from: "Aron M5"
það var mjög lumsk hálka á staðnum eg tok ekki eftir henni fyrr en eg fór að bremsa


varst þú ökumaðurinn s.s.  :?  ?
Title: Synd og skömm :(
Post by: Aron M5 on January 15, 2008, 15:05:58
nei eg koma þarna þegar þetta var nylega buið að ske
Title: powewradderar!!
Post by: jo on January 27, 2008, 02:45:47
nei vitið þið að tryggingarnar eru bunar að búa til 350 blaðsína bók um bíla og poweradera og þessi flokkast undir ca 4 addera svo hann sleppur,,,,,ef þú hefðir farið útaf á landrover á 65 km hraða´þa værir þu glæpon,,,en á svona bíl vegna addera kv klubbsins þá er í lagi að vera á svona bíl á 350,,,,,það telst sami hraði,,,,en bömmerið er að landroverinn yrði íslansmeistari vegna þess að hann ógnar engum svo sá láglaunaði mun alltaf vinna!!!! þökk é Jóni ásgeiri að sponsa rannsóknina,,,,,!"!!!!
kv
Sá sem ekkert veit!!!!