Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Jón Bjarni on May 09, 2012, 23:59:00

Title: Fyrsta Kvartmíluæfing sumarsins Fimmtudaginn 17 maí
Post by: Jón Bjarni on May 09, 2012, 23:59:00
Test‘n tune (æfing) verður keyrð Fimmtudaginn 17 maí
Áætlað er að opna fyrir æfingu kl 12:00 og hafa opið til 17:00 fyrir keyrslu.Ef það er verulega góð mæting þá verður æfingartími lengdur.
Til að taka þátt í test‘n tune þarftu að hafa:

Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda!

Þar sem þetta er fyrst æfing sumarsins þá geta allir prufað að keyra.
Meðlimir Kvartmíluklúbbsins fá frítt á þessa æfingu
Meðlimir annara klúbba innan ÍSÍ borga 1000 kr.
Þeir sem eru ekki í neinum klúbb borga 2000 kr. (innifalið í þessu verði er dagskírteni í kvartmíluklúbbinn)

Ef veðrið verður slæmt þá frestum við þessari æfingu til fimmtudagsins 17 maí.
Title: Re: Fyrsta Kvartmíluæfing sumarsins Laugardaginn 12 maí
Post by: Jón Bjarni on May 12, 2012, 11:48:22
það er allt blautt hér og útlit fyrir meiri bleytu, þannig við frestum þessu fram á fimmtudag...
Title: Re: Fyrsta Kvartmíluæfing sumarsins Fimmtudaginn 17 maí
Post by: Jón Bjarni on May 16, 2012, 14:33:07
minni alla á þetta!
Title: Re: Fyrsta Kvartmíluæfing sumarsins Fimmtudaginn 17 maí
Post by: Jón Bjarni on May 17, 2012, 20:12:48
tímar dagsins

http://spjall.kvartmila.is/index.php?topic=44384.msg225657#msg225657 (http://spjall.kvartmila.is/index.php?topic=44384.msg225657#msg225657)