Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: firebird400 on August 18, 2004, 19:12:39

Title: Varðandi reglur um glugga í keppnisbílum
Post by: firebird400 on August 18, 2004, 19:12:39
Hvernig er það? Þarf bíll að vera með alla glugga í til að keppa, ég veit að það er eflaust misjafn eftir flokkum en svona almennt sem bíll þá, engin grind eða álíka
Title: Varðandi reglur um glugga í keppnisbílum
Post by: Racer on August 18, 2004, 19:20:16
samkvæmt því sem ég hef heyrt þá er skylda að hafa rúðurnar uppi og topplúguna lokaða/T-topp fastan á til að fá að keyra út brautina svo ég tel það þýða að það verður að vera rúða í bílnum ;)

spurning með netin.

p.s. tapar tíma að hafa opna rúðu ;) , svo er hægt að fá sér plexí gler ef orginal rúða er að pirra þig
Title: Varðandi reglur um glugga í keppnisbílum
Post by: firebird400 on August 18, 2004, 19:52:42
Var bara að spá hvort maður yrði að setja hliðar og aftur rúðurnar aftur í rally-kross bíl ef maður ætlaði að mæta upp á braut þar sem það sport er löngu dautt.
Title: Varðandi reglur um glugga í keppnisbílum
Post by: Racer on August 18, 2004, 20:04:35
endilega.. hvaða bíl ertu með?

Annars er verið að reyna endurvekja Rallycrossið.

p.s. ef fleirum dettur í hug að vilja gera rallykrossara að mílubíl þá á ég einn til sölu :D (annars þyrfti að skipta vélinni fyrir rétta framleiðandavél)
Title: Varðandi reglur um glugga í keppnisbílum
Post by: firebird400 on August 20, 2004, 17:44:35
Engann reyndar en maður er alltaf að spá einhvað