Kvartmílan > Aðstoð
púst hjálp
siggik:
Jæja, er að huga að pústi, varað hugsa um flowmaster, planið var að kaupa flowmaster kút/a og láta kokka upp afganginn hérna heima, þar sem flowmaster framleiðir ekki kerfi fyrir caprice, hvar væri best að láta gera það hérna heima ? og síðan mæltu þeir með H pipe fyrir dual exhaust, er það standard þegar þetta er sett upp, og þarf ég 1 kút eða tvo ?
EDIT: hafði planað að láta rörin koma út rétt fyrir framan aftur dekkinn og snúa örlítið niður.... með skemmtilegum króm stút og sennilega hafa flækjur við vélina ....
takk fyrir
Gizmo:
Þú þarft alltaf 2 kúta nema þú ætlir að hafa kerfið einfalt.
H-Pipe (tenging milli hægri og vinstri helmings) á að gera gott sé hún sett nógu framarlega.
Það er flowmaster í mínum og stútarnir koma niður aftast undir stuðara. Mér finnst hávaðinn vera alveg í það mesta fyrir minn smekk og er jafnvel að spá í að þagga örlítið niður í honum.
Ef þú setur flowmaster kúta og flækjur með stútana fyrir framan afturdekk þá yrði ég hissa ef þú heyrðir í nokkru nema pústinu inni í bílnum. Getur verið skemmtilegt til að byrja með en með tímanum geta menn farið að þreytast á því.
Ég myndi ráðleggja þér að tala við strákana í Pústþjónustu BJB ef þú ætlar að fá þér nýtt sérsmíðað púst. Þeir eru að þessu alla daga og hafa allt það sem til þarf, þmt ágæta hljóðkúta.
Jón Þór Bjarnason:
Ertu búinn að athuga með þessa.
http://www.gibsonperformance.com/
firebird400:
--- Quote from: "Gizmo" ---Þú þarft alltaf 2 kúta nema þú ætlir að hafa kerfið einfalt.
H-Pipe (tenging milli hægri og vinstri helmings) á að gera gott sé hún sett nógu framarlega.
Það er flowmaster í mínum og stútarnir koma niður aftast undir stuðara. Mér finnst hávaðinn vera alveg í það mesta fyrir minn smekk sama hjá mér og er jafnvel að spá í að þagga örlítið niður í honum.
Ef þú setur flowmaster kúta og flækjur með stútana fyrir framan afturdekk þá yrði ég hissa ef þú heyrðir í nokkru nema pústinu inni í bílnum. Nákvæmlega Getur verið skemmtilegt til að byrja með en með tímanum geta menn farið að þreytast á því.
Ég myndi ráðleggja þér að tala við strákana í Pústþjónustu BJB ef þú ætlar að fá þér nýtt sérsmíðað púst. Þeir eru að þessu alla daga og hafa allt það sem til þarf, þmt ágæta hljóðkúta.
--- End quote ---
siggik:
ha ?
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version