Kvartmílan > Almennt Spjall
Pimp my ride hvað?
ljotikall:
heyheyhey stop nu... er þetta ekki kvartmila.is en ekki live2cruize.com?
einarak:
--- Quote from: "ljotikall" ---heyheyhey stop nu... er þetta ekki kvartmila.is en ekki live2cruize.com?
--- End quote ---
uuu... og tengingin???
ég sé ekki neinar hondur eða möstur eða þessháttar grjónabrennara, með risa spoiler og 500kg af græjum...
mér sýnist þetta allt vera true american cars... sem að eru víst mest um talaða dótið á þessari síðu er það ekki? www.kvartmila.is...
það stóð í topic; pimp my ride hvað? og ef það er einhvað sem þú vilt ekki sjá, EKKI klikka þá á það! en ef þú hefur óvart klikkað á það en ekki linkinn fyrir ofan eða neðan, ýttu þá á back hnappinn í browsernum...
Takk.
Spakmæli dagsins; betra er að segja ekki neitt, en að seigja tóma vitleysu.
kv. Einar AK
firebird400:
--- Quote from: "ljotikall" ---heyheyhey stop nu... er þetta ekki kvartmila.is en ekki live2cruize.com?
--- End quote ---
Djöf. er eins og sumir séu drullu hræddir við L2C, þvílíkt að vernda sitt einhvað.Eins og þeir geti smitast eða einhvað :lol:
Þar er saman kominn margfalt meiri bílaáhugi en hér, þó að vissulega séu fávitar inn á milli en þeir eru hér inn á milli líka.
Ég er nokkuð viss um að ef sumir hérna tæku þátt í umræðunum á L2C þá sægu þeir að flestir þar eru þar til að spjalla um bíla tæki og allt sem þeim er tengt, þar á meðal kvartmílu :shock:
Ég er nokkuð viss um það var meiri umræða um kvartmílu á L2C fyrir nokkrum vikum þegar þetta spjall var algjörlega dautt. Ég er með K.K. spjallið sem upphafssíðu og stundum er ekkert að gerast hérna.
Stundum eins og bílaáhuginn standi einhvað á sér hérna meðal K.K. spjallverja :?
narrus:
Þegar allt er í snjó er fólk bara inni að gera upp vélina eða setja nýja hásingu undir bílinn, eða eitthvað álíka. Það leiðir til þess að fólk fer ekkert í tölvuna og á netið þegar það hefur annað að gera. :?
En ég er sammála þér, þetta spjall er stundum dautt. En vonandi lifnar það við þegar líða tekur á sumarið. :roll:
firebird400:
Það er nú þegar vaknað :D
Margföld traffík miðað við það sem hún var fyrir svona mánuði
Ánægjulegt
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version