Hestaflastríð ríkti 7. áratuginn og hafði Ford gert ráð fyrir að hægt væri að standast keppnina ef þeir skelltu Big Block FE (427ci) vél í léttari og minni bíl en vanalega. Hinn fíngerði Ford Fairlane 500 1964 árgerð var bíllinn sem notað var til gerðar á þessu sannkallaða tryllitæki. Ford valdi "Dearborn Steel Tubing Co" til að sjá um allar umbreytingar sem til þurfti til að þessi bíll yrði að raunveruleika. Frá Ford verksmiðjunni komu þeir með 289ci 271 bhp vél, sem strax var rifin út hjá DST og í var troðið 427 vél í staðinn og skilaðu hún um 420-500 bhp. Allir aukahlutir voru rifnir úr bílnum, svosem útvarp, hitarar, einangrun ofl ofl. Tvö af fjórum framljósum bílsins voru tekin úr til að beintengja við loftinntak vélarinnar. Vélarhlífin var með stórum upphleyptum dropa til að vélin kæmist fyrir. Þessi bíll var svo sannarlega villtur og einhver öflugasti kvartmílu bíll sem Ford hefur selt hingað til, og hann var löglegur á götum borgarinnar (þótt hann væri alls ekki til þess ætlaður). Eftir að Ford hafði selt um 50 bíla ákváðu þeir að gera aðra 50, og þá fóru mismunandi vélvirkjar hjá DST að keppast sín á milli við að tjúna vélarnar áður en þær fóru til kaupandans og voru sumir bílarnir að ná um 625 bhp.
Aðeins voru 100 svona bílar framleiddir og í dag eru fáir upprunalegir til sem lifðu af brutal notkun á kvartmílunni og eru þeir bílar svo sannarlega ómetanlegir safngripir í dag. En ef þér langar í Ford Thunderbolt er enginn sem segir að þú getir ekki bara skellt einni 427 vél í smekklegann Fairlane '64 og þá ertu nánast kominn með græjuna
Gæti vel sagt að þessi bíll sé minn draumabíll, eitthvað svo raw við hann, bara brute force í þessu ferlíki.