Kvartmílan > Almennt Spjall
Nýr þráður.......
Nóni:
Sæll Valur og þið hinir sem vitið hvað túrbóið er gott. Ég sagði aldrei að það væri línulegt samband á milli þrýstings og hestafla, ég sagði hins vegar að við svipaðar forsendur, fyllingargráðu og þrýsting gæti þetta átt sér stað. Ég veit að þú skilur ekki allt sem ég segi en það er nú svo háttað með okkur alla, bara mismikið misskilið eftir eistaklingum (þetta var t.d. frekar þvælt).
Varðandi vini mína þá finnst mér nú bara mjög gott að þeir hjálpi mér í að koma vitinu fyrir menn, það þarf að reyna að fá menn ofan af því að vera hræddir við túrbóið. Já það er staðreynd að menn eru það, hræddir við að prófa túrbóið því að einhver segir við þá:
"ég myndi fara varlega í þetta með 305 chevy með blöndung. Ef það er búið að skipta um innvolsið í henni þá er þetta kannski "
og þetta:
"en ég er engin sérfræðingur en mér finnst dáldið mikið að blása tæpu bari inn á orginal 305 kettling"
Eins og ég hef sagt við þig Valur þá ert þú ótrúlega réttsýnn maður þú þarft bara að átta þig á því. Það sést á skrifum þínum ef vel er að gáð.
Það að þú þurfir að þýða póstana þína með (lesist) og öðru slíku er merki um að þú þurfir kannski að fara á tjáningarnámskeið, ekki taka þessu illa því að það getur vel verið að ég hafi rangt fyrir mér.
Einu sinni enn að hinum fallega bíl formannsins bara af því að hann er svo gott og nærtækt dæmi, vélin í honum er víst eitthvað létttjúnuð (allavega þannig að maður heyrir það á hægaganginum) en hún er eitthvað á milli 450 og 500 hö. að mér skilst og menn eru alveg að pissa í buxurnar yfir honum (ég líka) en þetta eru jú ekki nema 78 til 87 hö á líter sem rétt rúmlega það sem er verið að taka út úr litlum vélum í fjölskyldubílum í dag.
Með það að það náist meira út úr minni vélum hlutfallslega, það hefur komið fram. En hefur þú einhverjar tölur handa mér í þessu sambandi?
Okkur ungu og nýju strákunum í KK þykir gaman að spjalla við ykkur (nú ætti að koma gömlu jálkana) reyndari mennina en þið megið ekki láta eins og við höfum ekkert fram að færa, nú er ég ekki að tala um þig og mig og okkar samtöl heldur almennt.
Baráttukveðja. Nóni
firebird400:
AMEN :D
Valur_Charade:
þó að ég sé ekki umræddur Valur í þessari grein þá gæti ég ekki verið meira sammála þér! það er um að gera að gera hvað sem er til að auka hestöflin og ekki vera hræddur við það....
baldur:
Sko hestöfl per stærðareiningu fara eftir 2 þáttum.
Það er auðvitað fyllingargráðan og mekanísk töp (sem saman ákvarða togið per stærð) og hversu hátt vélin snýst þar sem að fyllingin er í hámarki.
Mekanísk töp aukast auðvitað þegar að vélin stækkar og þyngist, töpin aukast einnig þegar að snúningurinn stækkar, og slagstutt vél vinnur betur á háum snúningi bæði vegna þess að mekanísku töpin eru minni og að það er auðveldara að fylla cylender sem er breiður og slagstuttur á háum snúningi (loftið þarf ekki að ferðast inn á eins miklum hraða, og þarf ekki að ferðast eins langt niður til þess að fylla cylenderinn)
Nema ég hafi snúið þessu öllu við og sé farinn að tala bölvaða vitleysu...
Nonni:
Það er ekkert að því að hvetja menn til varkárni. Það er hinsvegar ekki smekklegt að taka orð úr samhengi. Það sem ég sagði var m.a.:
"...ég myndi fara varlega í þetta með 305 chevy með blöndung. Ef það er búið að skipta um innvolsið í henni þá er þetta kannski einfaldara."
Með þessu var ég á engan hátt að níða niður túrbó, eða aðrar forþjöppur, heldur hvetja til varkárni.
Það er yfirleitt ekki mælt með að taka svona mikið útúr tveggja bolta chevy small block. Hann sagði "tvær 18punda turbinur?? samt bara bustaðar á 13psi". Ég átti nú von á meiru en 500 hp sem hann vill nú taka útúr þessu. Eingu að síður er yfirleitt mælt með 4ja bolta blokk þegar menn fara eitthvað yfir 400 hrossin á sbc.
Blandan í stimplum, stöngum og sveif í 305 er heldur ekki sérstaklega til stóræðanna. Ef ég væri að gera þetta við 305 (myndi líklegast velja aðra blokk) þá myndi ég reyna að styrkja kjallarann eitthvað, þó ekki væri meira en setja studda við höfuðlegur og breyta dótinu í 4ja bolta með aftermarket bökkum.
Með því að styrkja kjallarann er mögulegt að minnka líkur á bilunum.
Persónulega myndi ég ekki prófa túrbóið án þess að hafa kynnt mér það mjög vel, og vita uppá hár hvað ég væri að gera. Það eru alltof margir sem fá sér eitthvað dót og skella því saman, og rústa öllu því þeir höfðu ekki þekkingu á því sem þeir voru að gera (höfum líklegast flestir lent í einhverju svoleiðis).
Í sumum tilfellum er þetta bara hluti af því að læra, en þetta er svolítið dýr lexía.
Það bíður svo uppá sögur að maður þekki mann sem að setti túrbó á bílinn sinn og smallaði draslinu, ergo, túrbó er ómögulegt (þó að sökin liggji hjá þeim sem vissi ekki hvað hann var að gera).
Svo heldur þetta áfram út drifrásinu. Ég er ekki viss um að TH700R4 lifi góðu lífi á bakvið 500 hrossa mótor. 10 bolti GM er heldur ekki það sterkasta á markaðnum, en lifir kannski ágætlega ef dekkin eru ekki breið.
Auðvitað er hægt að kaupa aðra skiptingu og hásingu, en það er gott að menn geri sér grein fyrir þessu fyrirfram í stað þess að sitja allt í einu upp með tjón sem kemur þeim í opna skjöldu (en hefðu mátt búast við).
En túrbóið er þvílík snilld þegar þetta er vel gert, ef þessu er klúðrað einhvernveginn á án þess að hugsa útí möguleg vandamál þá bíður það uppá að menn þurfi að eyða óþarfa pening, og verði ekki ánægðir með niðurstöðuna.
Kv. Jón H.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version