Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar

Corvette' 75 á leið til strandar

<< < (5/6) > >>

JHP:

--- Quote from: "vette75" ---Það stóð ekki til boða að kaupa þetta á Íslandi ég bauð í þennan á Akureyri en það var bara fussað + þessi var ódýrari

Vette 75
--- End quote ---
Þessi svarti er líka fallegri.

1965 Chevy II:

--- Quote from: "427W" ---   Kaupum íslenskt ef að það stendur til boða
--- End quote ---

Ekki sammála,um að gera að kaupa að utan ef menn gera góð kaup og fjölga köggum á klakanum. Djöst mæ tú sents...

stingray:
Vette 75 til hamingju með bílinn.  Ég veit ekki hver þú ert, en ég hef ekki fengið alvöru tilboð frá neinum.  Ég tel mig ekki hafa fussað yfir neinu tilboði.  En ef þú átt við e-mail þar sem boðið er milljón stgr þá hefur maður nú leyfi til af fussa.
Ég hef svarað öllum "tilboðum"  af mikilli kurteisi og reynt að útskýra fyrir mönnum hvað þetta kostar. En fæ ekki svar eftir það.  Bílinn er til SÖLU en ég ætla ekki að gefa hann.
Ef ég ætlaði að kaupa bíl frá USA þá myndi ég nú bara kaupa mér far út og skoða bílinn og prófa.  Alltof margir sem kaupa bíla bara eftir myndum og sitja svo uppi með allskonar mál sem hefði mátt forðast með því að fara út.  Svo gleyma menn alltaf að reikna með kostnaði þegar keypt er að utan.  Tollar, flutningur á strönd, flutningur til klakans, skráningar, tryggingar í hafi, og svo gjald til stóra bróðurs (VSK) af öllu saman.   Þegar allt er svo talið saman þá er nú sjarminn oft farinn af viðskiptunum.  Og þá vakna menn upp við vondan draum stundum.  Hefði kannski verið betra að kaupa bíl á Íslandi???

Árni Elfar:

--- Quote from: "stingray" ---Vette 75 til hamingju með bílinn.  Ég veit ekki hver þú ert, en ég hef ekki fengið alvöru tilboð frá neinum.  Ég tel mig ekki hafa fussað yfir neinu tilboði.  En ef þú átt við e-mail þar sem boðið er milljón stgr þá hefur maður nú leyfi til af fussa.
Ég hef svarað öllum "tilboðum"  af mikilli kurteisi og reynt að útskýra fyrir mönnum hvað þetta kostar. En fæ ekki svar eftir það.  Bílinn er til SÖLU en ég ætla ekki að gefa hann.
Ef ég ætlaði að kaupa bíl frá USA þá myndi ég nú bara kaupa mér far út og skoða bílinn og prófa.  Alltof margir sem kaupa bíla bara eftir myndum og sitja svo uppi með allskonar mál sem hefði mátt forðast með því að fara út.  Svo gleyma menn alltaf að reikna með kostnaði þegar keypt er að utan.  Tollar, flutningur á strönd, flutningur til klakans, skráningar, tryggingar í hafi, og svo gjald til stóra bróðurs (VSK) af öllu saman.   Þegar allt er svo talið saman þá er nú sjarminn oft farinn af viðskiptunum.  Og þá vakna menn upp við vondan draum stundum.  Hefði kannski verið betra að kaupa bíl á Íslandi???
--- End quote ---

Hann gerði bara einfaldlega betri díl á  75 Vettunni. Svo er það bara miklu fallegri bíll að mínu mati. Og þú talar eins og 70 og eitthvað Corvetturnar fáist á hverju götuhorni. Þinn er sá eini sem er falur ,og er bara of dýr greinilega fyrst hann selst ekki. Og menn sem ákveða að flytja inn bíl reikna dæmið frá A til Ö. Hvað með það að það þurfi að laga hitt og þetta þegar maður kaupir eftir myndum.Maður lagar þá bara það sem kemur uppá. Það kostar nú líka alveg sitt að trippa þarna út og skoða þetta, sérstaklega ef þú ert með marga í sigtinu. Allavegana, vona að þinn seljist. En þið þarna úti, dollarinn er bara í 72krónum. Um að gera að flytja inn núna :twisted:

vette75:
Sælir strákar ,þetta er góður puntur hjá vett - 1 með að kaupa bíla meðan $ er þetta lár,spákaupmenn segja að eftir kosningar muni $ hækka þónokkuð í verði sérstaklega ef Kerry vinnur. Eftir þessu bíða fjármálamenn spentir.
Strákar verum allir vinir og virðum skoðanir annara, við höfum eitt áhugamál saman og það eru bílar,stöndum saman.
Kveðja
 
Ólafur Haukdal
Vette 75

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version