Kvartmílan > Aðstoð
Vandamál með TH350 skiptingu
(1/1)
Nonni:
Skiptingin í mínum Blazer K5 var að klikka núna rétt í þessu.
Fyrir nokkrum dögum fór bíllinn að hristast þegar ég tók af stað eftir beygju. Ég var búinn að fara yfir allann framendann og allt var í lagi.
í gær tók hann upp á því að hristast þegar tekið var af stað upp brekku, en mér fannst þetta einna líkast því þegar púði við millikassa fer, en þeir voru í góðu lagi.
Í morgun var ég með félaga mínum í bilanagreiningartúr og var að sína honum hristinginn. Tók af stað í brekku, hann hristist eins og áður, en síðan heyrðist KRASS og sjálfskiptingin hætti að virka (þ.e. allt nema Park).
Ég er með kæli og mæli á henni og hún hitaði sig ekki. Ég hef nú ekki mikið vit á sjálfskiptingum en hallast helst að því að túrbínan geti valdið þessu.
Er einhver sjálfskiptisérfræðingur hér sem getur frætt mig um málið?
Kv. Jón H.
Navigation
[0] Message Index
Go to full version